Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júlí 2026 19:23 Það urðu mikil læti eftir úrslitaleikinn en þau voru aðallega í boði tapsárra Argentínumanna. gETTY/Tom Weller Spænski knattspyrnumaðurinn og nýkrýndi heimsmeistarinn Dani Olmo hefur hafnað afsökunarbeiðni Roberto Ayala, aðstoðarþjálfara Argentínu, vegna áreksturs þeirra eftir sigur Spánar í úrslitaleik heimsmeistaramótsins um síðustu helgi.
Sjónvarpsupptökur sýndu Ayala þrýsta höndum sínum af krafti að hálsi miðjumanns Barcelona. Argentínumaðurinn baðst afsökunar á miðvikudag og bætti við að þetta hafi verið viðbrögð við einhverju sem Olmo sagði. Olmo hefur í framhaldinu svarað fyrir sig: „Sá sem segist vera miður sín, en réttlætir högg með því að segja að það hafi verið svar við ummælum, er örugglega ekki miður sín, því hann er að ljúga. Ég sagði ekkert við hann, svo hann þarf ekki að biðjast afsökunar,“ sagði Olmo við katalónska dagblaðið Diari de Terrassa. 💥 Dani Olmo, en el @DiarideTerrassa sobre Ayala: "Alguien que confiesa estar arrepentido pero justifica un puñetazo afirmando que era una respuesta a 'un dicho', es que seguramente no se arrepiente"💬 "Está faltando a la verdad, porque no le dije nada, así que no me hace falta… pic.twitter.com/tNhz7WOVaU— Mundo Deportivo (@mundodeportivo) July 26, 2026 „Það sem raunverulega skilgreinir okkur eru ekki mistökin, heldur hugrekkið til að viðurkenna þau með auðmýkt, heiðarleika og reisn,“ sagði Olmo. „Þegar börnin mín, fjölskylda mín og allir þessir stuðningsmenn horfa á leikinn vil ég að þau séu stolt af því hvernig við kepptum, hvernig við unnum og umfram allt af hegðun okkar, því mikilvægi fótboltans þýðir að við leikmennirnir erum fyrirmynd fyrir börn og nýjar kynslóðir, og því fylgir gríðarleg ábyrgð,“ sagði Olmo. Þegar Ayala baðst afsökunar í viðtali við Valencia Capital Radio á miðvikudag mótmælti hann því að hann hefði slegið Olmo. 🗣️🇦🇷 Roberto Ayala, ayudante de Scaloni en la Selección Argentina, ha pedido perdón por este momento con Dani Olmo tras la final del Mundial:"Fue más un EMPUJÓN que otra cosa, no fue un puñetazo como quieren decir. Si veo a Dani le pediré DISCULPAS en persona""Obviamente que…— Madrid Sports (@MadridSports_) July 22, 2026 „Auðvitað er ég miður mín. Í minni stöðu get ég ekki leyft tilfinningum, eða hvað sem ég kann að fá frá hinum aðilanum, að hafa áhrif á skap mitt eða gjörðir,“ sagði Ayala. „Fyrir mér þurfum við að draga strik í sandinn og láta þar við sitja. Þetta var meira hrinding en nokkuð annað, þetta var ekki högg eins og þeir vilja meina. Þetta voru viðbrögð við einhverju sem hann sagði, en það er allt og sumt. Ef ég sé hann mun ég augljóslega biðja hann afsökunar í eigin persónu,“ sagði Ayala. Argentína sætti harðri gagnrýni fyrir framkomu sína við lokaflautið í úrslitaleiknum 19. júlí, þar sem liðsmenn og starfsfólk, einkum Leandro Paredes, lentu í líkamlegum árekstrum við nokkra leikmenn Spánar. FIFA hefur hafið agamálarannsókn á atvikunum.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira