Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar 23. júlí 2026 14:02 Tilgangur peninga er þríþættur. Peningar eru greiðslumiðill til að verðleggja og kaupa og selja vörur og þjónustu. Peningar eru notaðir sem mælieining verðmæta t.d. í staðinn fyrir kúgildi og ullarlagða eða aðrar mælieiningar sem áður tíðkuðust. Þriðji tilgangur peninga er að geyma verðmæti til seinni nota. Íslensk króna hefur nýst sem greiðslumiðill við kaup og sölu og einnig sem stundleg mælieining verðmæta. Þetta hefur hún gert þrátt fyrir dýrtíð og stöðuga rýrnun gagnvart flestum öðrum gjaldmiðlum. En sem leið til að geyma verðmæti, t.d. innlegg í banka eða sem fjárskuldbinding, þá hefur hún ekki dugað sem skyldi. Þegar Íslendingar urðu fullvalda 1918 og deildu fullveldi sínu áfram með Danmörku þá var til íslensk króna prentuð á seðla en verðgildi hennar jafnt danskri krónu sem er svipuð tilhögun og með færeyska krónu í dag. Færeyskir seðlar eru með sama verðgildi og danskir. Hinn 13. júní 1922 var verðgildi íslenskrar krónu í fyrsta skipti skráð annað en verðgildi hinnar dönsku. Þannig má segja að íslenska krónan hafi „fagnað“ 104 ára afmæli í sumar. Áhugavert er að skoða þróun þessara beggja gjaldmiðla frá því að leiðir þeirra skildu. 1922 voru þær jafngildar en 2026 er íslensk króna minna virði en danskur fimmeyringur að teknu tilliti til þess þegar núllin voru tekin aftan af krónunni 1981. Krónan og fullveldið Þegar komið var fram á áttunda áratug síðustu aldar var hverju mannsbarni ljóst að íslensk króna var vonlaus sem leið til að geyma verðmæti svo farin var sú leið að heimila vísitölubindingu fjárskuldbindinga og til varð hin verðtryggða króna. Það svaraði að nokkru leyti þörfinni fyrir að geyma verðmæti í íslenskri krónu. Frá þeim tíma má segja að þjóðin hafi búið við tvenns konar gjaldmiðil í landinu, krónu og vísitölubundna krónu. Hefði þjóðin verið betur sett með danska krónu heldur en íslenska? Við því er ekkert einhlítt svar en ljóst er að við byggjum ekki við vísitölubindingu fjárskuldbindinga, líkt og nú er, með kostum hennar og göllum. Á ævi sinni hefur krónan stöðugt tapað verðgildi gagnvart helstu gjaldmiðlum ef undanskilin eru örfá skammvinn tímabil á árum áður auk allra síðustu ára. Þetta þýðir að þeir sem áttu fjármuni, jafnvel í stutta stund, þurftu nær alltaf að greiða hærra verð fyrir nauðsynjar og muni frá útlöndum ef þeir biðu með viðskiptin. Rétt á meðan íslenska krónan stóð við í launaumslaginu eða á bankareikningi tapaði hún verðgildi sínu. Höfundur er hagfræðingur og formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Bolli Héðinsson Mest lesið Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Sjá meira
Tilgangur peninga er þríþættur. Peningar eru greiðslumiðill til að verðleggja og kaupa og selja vörur og þjónustu. Peningar eru notaðir sem mælieining verðmæta t.d. í staðinn fyrir kúgildi og ullarlagða eða aðrar mælieiningar sem áður tíðkuðust. Þriðji tilgangur peninga er að geyma verðmæti til seinni nota. Íslensk króna hefur nýst sem greiðslumiðill við kaup og sölu og einnig sem stundleg mælieining verðmæta. Þetta hefur hún gert þrátt fyrir dýrtíð og stöðuga rýrnun gagnvart flestum öðrum gjaldmiðlum. En sem leið til að geyma verðmæti, t.d. innlegg í banka eða sem fjárskuldbinding, þá hefur hún ekki dugað sem skyldi. Þegar Íslendingar urðu fullvalda 1918 og deildu fullveldi sínu áfram með Danmörku þá var til íslensk króna prentuð á seðla en verðgildi hennar jafnt danskri krónu sem er svipuð tilhögun og með færeyska krónu í dag. Færeyskir seðlar eru með sama verðgildi og danskir. Hinn 13. júní 1922 var verðgildi íslenskrar krónu í fyrsta skipti skráð annað en verðgildi hinnar dönsku. Þannig má segja að íslenska krónan hafi „fagnað“ 104 ára afmæli í sumar. Áhugavert er að skoða þróun þessara beggja gjaldmiðla frá því að leiðir þeirra skildu. 1922 voru þær jafngildar en 2026 er íslensk króna minna virði en danskur fimmeyringur að teknu tilliti til þess þegar núllin voru tekin aftan af krónunni 1981. Krónan og fullveldið Þegar komið var fram á áttunda áratug síðustu aldar var hverju mannsbarni ljóst að íslensk króna var vonlaus sem leið til að geyma verðmæti svo farin var sú leið að heimila vísitölubindingu fjárskuldbindinga og til varð hin verðtryggða króna. Það svaraði að nokkru leyti þörfinni fyrir að geyma verðmæti í íslenskri krónu. Frá þeim tíma má segja að þjóðin hafi búið við tvenns konar gjaldmiðil í landinu, krónu og vísitölubundna krónu. Hefði þjóðin verið betur sett með danska krónu heldur en íslenska? Við því er ekkert einhlítt svar en ljóst er að við byggjum ekki við vísitölubindingu fjárskuldbindinga, líkt og nú er, með kostum hennar og göllum. Á ævi sinni hefur krónan stöðugt tapað verðgildi gagnvart helstu gjaldmiðlum ef undanskilin eru örfá skammvinn tímabil á árum áður auk allra síðustu ára. Þetta þýðir að þeir sem áttu fjármuni, jafnvel í stutta stund, þurftu nær alltaf að greiða hærra verð fyrir nauðsynjar og muni frá útlöndum ef þeir biðu með viðskiptin. Rétt á meðan íslenska krónan stóð við í launaumslaginu eða á bankareikningi tapaði hún verðgildi sínu. Höfundur er hagfræðingur og formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands.
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar