Þurfti að fara í aðgerð á eista eftir bolta á vondan stað Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júlí 2026 06:31 Joshua Kuroda-Grauer liggur hér sárkvalinn á vellinum eftir höggið. Þeir sem þekkja hversu harður hafnabolti er geta rétt ímyndað sér sársaukann, það er að segja ef þú ert karlmaður. Getty/Norm Hall Hafnaboltamaðuirnn Joshua Kuroda-Grauer þurfti að leggjast á skurðarborðið eftir að hafa fengið boltann á viðkvæman stað í leik.
Kuroda-Grauer, sem spilar fyrir Athletics í MLB-deildinni, fór í aðgerð vegna sprungins eista eftir að hafa slegið bolta í kynfæri sín í leik liðsins gegn Arizona Diamondbacks. Bandarískir blaðamenn grínuðust á hans kostnað með því að segja að orðatiltækið „ballplayer“ hafi fengið alveg nýja merkingu fyrir greyið Joshua Kuroda-Grauer. Atvikið má sjá hér fyrir neðan. Joshua Kuroda-Grauer in yesterday's game:👉 hit his first big league home run👉 suffered a ruptured testicle from a foul ball 👉 singled for his 25th hit in just 16 MLB gamesand he did it in that order.... 😮pic.twitter.com/a8NfMOCVg6— Codify (@CodifyBaseball) July 21, 2026 Kuroda-Grauer virtist ná að jafna sig og náði að slá einu sinni eftir atvikið en hann var svo tekinn af velli þar sem hann var augljóslega enn mjög kvalinn. Hinn 23 ára gamli leikmaður frá Rutgers-háskóla fór í aðgerð á sprungna eistanu í gær og er nú að jafna sig. Aðgerðin fór fram á St. Joseph's-sjúkrahúsinu í Phoenix. Þetta var ekki aðeins mikið áfall fyrir Kuroda-Grauer, heldur einnig fyrir Athletics, í ljósi þess hversu vel honum hefur gengið með liðinu síðan hann kom þangað. Hann hafði komist í sína fyrstu heimahöfn í sama leik. Þar sem sprungið eista er sjaldgæfur áverki er óljóst hversu langan tíma það mun taka Kuroda-Grauer að jafna sig og komast aftur á völlinn. Sumar áætlanir gera ráð fyrir að hæfilegur batatími sé fjórar til sex vikur, þó það fari eftir líðan Kuroda-Grauer þegar hann reynir að snúa aftur. Vonandi getur Kuroda-Grauer snúið aftur á völlinn fljótlega og vonandi getur hann enn átt von á að eignast börn í framtíðinni.
Hafnabolti Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Tarik framlengir við Víking Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Leikmaður ársins missir af landsleikjum Áföllin halda áfram að dynja á Russell Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Rahm segist vilja rifta við LIV Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Sérfræðingar skilja ekki landsliðsþjálfarann Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Arteta framlengir við Arsenal Fékk „brjálæðislegt“ magn rasískra skilaboða eftir umdeilt atvik Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Mun ekki stíga aftur á völlinn það sem eftir er tímabilsins Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Sjá meira