Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 21. júlí 2026 22:19 Óskar Smári, þjálfari Stjörnunnar, var skiljanlega ekki ánægður eftir stórtap gegn FH á útivelli. Anton/Vísir „Hvað er hægt að segja? Betra liðið vann, liðið sem vildi vinna leikinn vann leikinn og við vorum langt frá okkar besta í dag. Þegar þú gefur FH einhvern möguleika á að ganga á lagið þá gerast svona hlutir. Það gerðist í dag og margt í okkar leik sem var ekki í lagi í dag,“ sagði Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir tapið stóra í kvöld. „
Fyrstu tíu mínúturnar voru í lagi en svo tóku þær bara yfir og þær byrja bara á grunnatriðunum í leiknum og þær gerðu það betur en við í dag. Við vorum lengi að bregðast við og vorum ekki samstilltar og einhvern veginn ekki á sömu blaðsíðu. Við höfum spilað frábæra vörn í allt sumar en í dag var varnarleikurinn okkar bara oft mjög barnalegur og lélegur,“ en fyrir leikinn hafði Stjarnan fengið á sig fæst mörk í sumar eða ellefu talsins í jafn mörgum leikjum. Óskar Smári segir sína leikmenn þurfa að sýna úr hverju þeir eru gerðir eftir svona skell. „Örugglega eitthvað í uppsetningunni sem ég get tekið ábyrgð á. Eftir svona tap þá fæ ég að vita úr hverju leikmennirnir mínir eru gerðir því þetta var ljótt og vont tap og mér fannst margt í þessum leik alls ekki í lagi. Á sama tíma getum við horft á nokkra hluti jákvæðum augum.“ „Held að það finnist öllum vont að tapa 7-3, ég held að það sé ekki spurning og við erum ekki fyrsta liðið til að kjamsa á því frá FH í sumar að tapa stórt á móti þeim. Það er ekki tapið sem skilgreinir þig heldur hvernig þú ætlar að bregðast við því. Við þurfum að bregðast við þessari frammistöðu og þeim atriðum sem fór úrskeiðis. Það er spurningin sem ég spurði stelpurnar inn í klefa og það er fróðlegt að sjá hvaða svar ég fæ. Síðast þegar við töpuðum var á móti FH, 2-1. Sá leikur var allt öðruvísi. Ég vona að þessi leikur er bara smá svona niður á jörðina og svo bara áfram gakk og við gerum áfram það sem við höfum gert vel í sumar,“ sagði Óskar Smári að lokum.
Besta deild kvenna Íslenski boltinn Stjarnan Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira