„Sársaukinn er gríðarlegur“ Andri Broddason skrifar 20. júlí 2026 19:00 Lionel Messi var sár eftir að hafa tapað úrslitaleik heimsmeistaramótsins. Hann getur þó séð það góða sem gerðist á mótinu. Maja Hitij /Getty Images Lionel Messi er virkilega sár eftir að hafa tapað úrslitaleik heimsmeistaramótsins. Hann reynir þó að horfa á mótið með bjartsýnisaugum og hugsar um allar góðu stundir mótsins.
Lionel Messi og liðsfélagar hans í argentíska landsliðinu komust í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta í annað skiptið í röð. Þrátt fyrir það er sárt að tapa úrslitaleiknum. „Sársaukinn er gríðarlegur og þetta sár mun taka tíma að gróa. Ég held þó fast í allt það góða við mótið, alla leikina sem við snerum við með því að gefa allt sem við áttum. Það eru stundir sem lifa með þjóðinni að eilífu.“ View this post on Instagram A post shared by Leo Messi (@leomessi) Argentína komst í úrslitaleikinn þar sem allir leikir útsláttarkeppninnar voru mjög jafnir. Allir leikirnir voru jafnir og vann Argentína alla leikina annaðhvort með því að skora í uppbótartíma venjulegs leiktíma eða í framlengingu. „Enn og aftur tókst okkur að sameinast sem þjóð og standa saman og deila því mikla stolti sem er að vera frá Argentínu.“ Umdeilt atvik varð eftir leik Englands og Argentínu þar sem leikmenn Argentínu héldu á fána um að Falklandseyjar tilheyrðu þeim. Argentína og England hafa lent í stríðsátökum yfir landsvæðinu en England hefur stjórnað þeim síðan þá. Segir hvergi að hann ætlar að hætta Í færslunni segir Messi ekkert um að hann sé að hætta hjá landsliðinu og því ekki búið að útiloka hvort að hann verði með á næsta heimsmeistaramóti. Messi er 39 ára og verður því orðinn 43 þegar næsta heimsmeistaramót verður haldið árið 2030. Í lok færslunnar óskar Messi Spáni til hamingju með heimsmeistaratitilinn. Messi hefur stóran hluta ævi sinnar búið á Spáni þar sem hann var leikmaður Barcelona frá unga aldri. Hann fór þaðan árið 2021 eftir að hafa verið hjá félaginu í átján ár og gekk til liðs við PSG í Frakklandi. Þar var hann í tvö ár og árið 2023 gekk hann til liðs við Inter Miami og er þar enn.
HM 2026 í fótbolta Argentína Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira