„Fannst mikilvægt að byrja þetta með krafti“ Árni Gísli Magnússon skrifar 19. júlí 2026 19:19 Stelpurnar hans Aðalsteins Jóhanns Friðrikssonar eru komnar upp í 7. sæti Bestu deildar kvenna eftir gott gengi að undanförnu. vísir/diego Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þór/KA, var ánægður eftir 2-1 sigur gegn ÍBV á heimavelli í 13. umferð Bestu deildar kvenna.
Þór/KA komst í 2-0 snemma í seinni hálfleik áður en Eyjakonur minnkuðu muninn. Lokamínúturnar voru svo æsilega og Aðalsteini var létt eftir að loka flautið gall. „Já ekki spurning, þetta var svona svolítið kaos í uppbótartímanum en mjög ánægður með að vinna og leikurinn svona heilt yfir bara fínn. Við byrjum ofan á og mikil orka og skorum og svona fyrstu 20-25 mínúturnar, kannski styttra ég veit það ekki, en allavega í fyrri hálfleik og svo svona jafnaðist hálfleikurinn. 1-0 í hálfleik, seinni hálfleikur fer bara af stað frábærlega fyrir okkur, náum marki og 2-0. Eftir það erum föllum við kannski of mikið frá þeim og verjum forystuna og þær skora tiltölulega snemma. Eins marks forysta er aldrei, svolítið órólegur þá, en akkúrat núna skiptir það engu máli, við unnum leikinn og erum mjög hamingjusöm með það.“ Þór/KA pressaði Eyjakonur hátt á vellinum strax frá fyrstu mínútu og var mikil orka í liðinu og leikplanið augljóslega að reyna keyra yfir þær strax í upphafi sem skilaði marki strax eftir sjö mínútur. „Við töluðum um það í aðdraganda leiksins að það er styttra á milli leikja hjá þeim, þær spiluðu degi seinna en við núna og svolítið langt ferðalag þannig okkur fannst mikilvægt að byrja þetta með krafti og vera ofan á í baráttu og orku og við byrjuðum þannig og uppskárum eftir því. Eins og ég segi það gaf okkur möguleikann á að leiða eftir fyrri hálfleikinn og það var planið og stelpurnar fylgdu því og Þór/KA liðið átti skilið sigurinn í dag.“ ÍBV minnkaði muninn í 2-1 eftir tæpan klukkutíma leik og Þór/KA liðið féll neðar á völlinn í kjölfarið og voru síðustu mínútur leiksins sérstaklega spennuþrungnar á meðan Eyjakonur leituðu eftir jöfnunarmarki. „Ég veit ekki hvað var stutt á milli 2-0 marksins og 2-1 marksins, það er oft þannig að þegar það er kannski 2-0 að þá er það frábært en við fengum mark beint í kjölfarið eftir það. Þá er stundum kannski betra að hafa bara 1-0 því þá svona sveiflast augnablikið svo mikið með liðinu sem minnkar en í grunninn þá var ÍBV mikið að dæla honum inn í teiginn okkar og vindurinn grípur það og boltinn dettur dálítið mikið þar. Við þurftum að verja það svolítið mikið og ég held við höfum gert það vel. Svo svona eftir því sem sá skjálfti fór úr þeim í restina þá sluppum við í gegn og hefðum geta skorað 3-1 markið en akkúrat núna, upp við vegginn, skiptir þetta ekki öllu máli.“ Karen Hulda frábær Karen Hulda Hrafnsdóttir átti frábæran leik í hjarta varnarinnar hjá Þór/KA og hefur vaxið vel sem leikmaður eftir því sem líður á tímabilið. Hún er einungis á sautjánda ári og virðist virkilega þroskaður varnarmaður miðað við það. Aðalsteinn Jóhann átti nokkur orð um frammistöðu hennar. „Hún er kannski þroskaður leikmaður miðað við aldur og þetta var ekki hennar aðalstaða og ekki hennar uppáhaldsstaða í vetur og kannski hugsa ég að það sé breytt hjá henni akkúrat núna. Hún er með ótrúlega marga skemmtilega eiginleika, hún er stór og stæðileg og sterk í loftinu og sterk bara líkamlega en svo er hún líka bara róleg á boltann, góð á boltann og bara tekur betri og betri ákvarðanir þannig hún er að standa sig vel og það er alltaf gaman þegar ungir leikmenn koma inn og taka sénsinn.“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir er einn efnilegasti leikmaður landsins en hún er aðeins 16 ára gömul og spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2023 þegar hún var aðeins 13 ára. Hún gekk á dögunum í raðir Þróttar og var Aðalsteinn spurður út í ástæðuna fyrir skiptum hennar. „Bríet Fjóla var bara búin að plana að fara suður í skóla og þetta var einhver lending og bara gangi henni sem allra allra best í Þrótti eða hvar sem er sem hún fer. Hún er efnilegur leikmaður og við eigum svolítið mikið í henni en akkúrat núna er hún leikmaður Þróttar við bara vonum að hún standi sig vel þar en ekki á móti okkur samt“, sagði Aðalsteinn og brosti. Langt á milli leikja Deildin hefur verið skrítin í sumar kvennamegin þar sem oft er langt á milli leikja og nú eru 10 dagar í næsta leik Þór/KA sem er úti gegn Breiðablik. „Þetta er svo ótrúlegt sko. Ég veit það ekki, við erum alltaf að hugsa um það hvernig er best að finna taktinn til að vera sem ferskastar í hverjum leik því það er annað hvort mjög stutt á milli leikja eða dálítið langt á milli leikja og núna bara þýðir ekkert að væla, þetta er eins fyrir öll lið og við reynum að fá þetta í okkar hag en það er alltaf næsti leikur sem er á erfiðum útivelli. Við þurfum bara bæði eins og ég segi að ná okkur niður eftir þennan leik svo við séum rétt stilltar þegar við mætum þeim.“ Úrslitaleikur HM í fótbolta karla megin er í þann mund að fara í gang þegar þetta er skrifað og var Aðalsteinn spurður hvernig hann héldi að sá leikur færi á milli Spánar og Argentínu. „Ég gæti tekið langt núna. Ástríðan eða fótbolti? Ég ætla að segja að ástríðan og geðveikin hjá Argentínu taki þetta, það verður óvænt en þeir ná þessu á geðveikinni“, sagði Aðalsteinn léttur að lokum.
Besta deild kvenna Þór Akureyri KA ÍBV Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Handbolti Fleiri fréttir Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Sjá meira