Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. júlí 2026 09:34 Micah Richards varð fyrir miklu áfalli skömmu áður en leikur Englands og Argentínu hófst. getty/Mike Egerton Micah Richards fékk þær harmafréttir að faðir hans væri látinn skömmu áður en bein útsending BBC frá leik Englands og Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta hófst.
Englendingar töpuðu leiknum, 2-1, og bið þeirra eftir að komast í úrslitaleik HM lengist því enn. Stuttu eftir að útsendingu BBC frá leiknum í Atlanta lauk greindi Richards frá því að faðir hans hefði fallið frá fyrr um daginn. „Skömmu áður en við fórum í loftið í dag fékk ég þær skelfilegu fréttir að faðir minn, Lincoln, væri látinn. Andlát hans var óvænt og hann yfirgaf okkur allt of snemma,“ skrifaði Richards á Instagram. „Hann var minn stærsti aðdáandi og missti varla af leik með mér allan minn feril. Hann fór með mig hvert sem ég þurfti að fara þegar ég var krakki og hann var stoltasta mögulega foreldri á ferlinum mínum. Hann var nánast alltaf mér við hlið. Ég veit hversu mikla þýðingu það hefur fyrir alla heima að horfa á leiki Englands á HM og ekkert annað tengir kynslóðirnar eins saman. Ég veit, sérstaklega sem Yorkshire-maður af gamla skólanum, að pabbi hefði viljað að við héldum áfram í kvöld sem við og gerðum. Ég hugsa til systkina minna og stórfjölskyldunnar í dag þar sem við minnumst föður míns, Lincolns, hetjunnar minnar og innblásturs.“ View this post on Instagram A post shared by Micah Richards (@micahrichards) Eftir að fótboltaferlinum lauk hefur Richards átt farsælan feril sem álitsgjafi í sjónvarpi, meðal annars á BBC og CBS þar sem hann fjallar um Meistaradeild Evrópu. Richards, sem er 38 ára, lék þrettán leiki fyrir enska landsliðið á sínum tíma og varð Englandsmeistari með Manchester City.
HM 2026 í fótbolta Andlát Tengdar fréttir Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Jude Bellingham lét skapið hlaupa með sig í gönur í gærkvöld, eftir 2-1 tap Englands gegn Argentínu í undanúrslitum HM í fótbolta. 16. júlí 2026 07:35 „Mig dreymdi þetta“ Lautaro Martínez var hetja Argentínumanna í kvöld en hann kom inn á völlinn sem varamaður og skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri á Englandi í undanúrslitaleik HM þegar hann skoraði með skalla eftir frábæra fyrirgjöf Lionel Messi. 15. júlí 2026 22:15 Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Argentínska landsliðið tryggði sér sæti í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta eftir 2-1 endurkomusigur á Englandi í leik sem var ekki bara fótboltaleikur. 15. júlí 2026 21:51 „Miður mín fyrir hönd allra“ Harry Kane, fyrirliði Englands, sá sætið í úrslitaleiknum í hillingum þegar sex mínútur voru eftir og England 1-0 yfir. Argentínumenn skoruðu tvö mörk í lokin og sáu til þess að sextíu ára bið Englendinga eftir úrslitaleiknum lengist enn. 15. júlí 2026 21:35 Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Heimsmeistarar Argentínu eru komnir í úrslitaleikinn á öðru heimsmeistaramótinu í röð eftir 2-1 endurkomusigur á Englendingum í undanúrslitaleik HM í fótbolta í Atlanta í kvöld. 15. júlí 2026 21:03 Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Enski boltinn Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Fleiri fréttir ÍA - FH | Heldur sigurganga Skagamanna áfram eða nær FH vopnum á ný? Keflavík - ÍBV | Heimamenn vilja halda sér í efri hlutanum KA - KR | Hvað gerir Eiður Smári í nýju starfi fyrir norðan? Stjarnan - Þór | Nýir menn við stjórnvölinn hjá Stjörnunni Ísak skoraði og klúðraði víti í íslenskum nýliðaslag Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Brynjólfur hélt áfram að skora en allt hrundi á hinum endanum Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Thelma gaf stoðsendingu í hefndarsigri Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Brynjar og Daníel byrja tímabilið í brekku Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Messi skoraði en Miami heldur áfram að tapa Gamli Primark-starfsmaðurinn sem var nálægt því að skemma fyrir Mourinho Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Sjá meira
Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Jude Bellingham lét skapið hlaupa með sig í gönur í gærkvöld, eftir 2-1 tap Englands gegn Argentínu í undanúrslitum HM í fótbolta. 16. júlí 2026 07:35
„Mig dreymdi þetta“ Lautaro Martínez var hetja Argentínumanna í kvöld en hann kom inn á völlinn sem varamaður og skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri á Englandi í undanúrslitaleik HM þegar hann skoraði með skalla eftir frábæra fyrirgjöf Lionel Messi. 15. júlí 2026 22:15
Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Argentínska landsliðið tryggði sér sæti í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta eftir 2-1 endurkomusigur á Englandi í leik sem var ekki bara fótboltaleikur. 15. júlí 2026 21:51
„Miður mín fyrir hönd allra“ Harry Kane, fyrirliði Englands, sá sætið í úrslitaleiknum í hillingum þegar sex mínútur voru eftir og England 1-0 yfir. Argentínumenn skoruðu tvö mörk í lokin og sáu til þess að sextíu ára bið Englendinga eftir úrslitaleiknum lengist enn. 15. júlí 2026 21:35
Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Heimsmeistarar Argentínu eru komnir í úrslitaleikinn á öðru heimsmeistaramótinu í röð eftir 2-1 endurkomusigur á Englendingum í undanúrslitaleik HM í fótbolta í Atlanta í kvöld. 15. júlí 2026 21:03