Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. júlí 2026 10:26 Þrúður Vilhjálmsdóttir starfaði sem flugfreyja í rúm tuttugu ár og lék á sviði, í sjónvarpi og í kvikmyndum auk þess sem hún talsetti töluvert og ljáði fjölda hljóðbóka rödd sína. Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin 53 ára að aldri. Hún lést á líknardeildinni í Kópavogi sunnudaginn 5. júlí síðastliðinn eftir erfið veikindi. Þrúður var lærð leikkona, lék á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi og starfaði sem flugfreyja í tvo áratugi samhliða leiklistinni.
Þrúður Vilhjálmsdóttir fæddist í Reykjavík 31. mars 1973, önnur þriggja barna Önnu Ragnhildur Ingólfsdóttur, tónlistarmanns, tónlistarkennara og þýðanda, og Vilhjálms Rafnssonar, læknis og prófessors, og ólst hún að hluta upp í Svíþjóð. Stjúpmóðir Þrúðar er Álfheiður Steinþórsdóttir og stjúpfaðir hennar um þrjátíu ára skeið var Bragi Halldórsson. Alsystkini Þrúðar eru Linda Vilhjálmsdóttir og Ingólfur Vilhjálmsson, stjúpbræður hennar eru Andri Björnsson og Arnór Björnsson, sem er látinn og stjúpsystir hennar er Hrefna Bragadóttir. Eftirlifandi eiginmaður Þrúðar er Halldór Örn Óskarsson og sonur hennar er Róbert Vilhjálmur Ásgeirsson. Leikkona og flugfreyja Þrúður lærði við Leiklistarskóla Íslands og útskrifaðist sem leikkona þaðan árið 1997 í öflugum útskriftarárgangi. Eftir útskrift lék hún Ófelíu í Hamlet sem var settur á svið í Þjóðleikhúsinu veturinn 1997 og í leikritinu Að eilífu á vegum Hafnarfjarðarleikhússins Hermóðs og Háðvarar. Þrúður sem Ófelía og Erlingur Gíslason sem Póloníus í Hamleti. Sama ár þreytti hún frumraun sína á stóra skjánum í fjölskyldumyndinni Stikkfrí (1997) og lék næstu ár eftir það í kvikmyndunum Sporlaust (1998) og 101 Reykjavík (2000) þar sem hún fór eftirminnilega með hlutverk Hófíar. Undir lok tíunda áratugarins lék Þrúður einnig í leikritunum Sölku-ástarsögu og Okkur feðgunum í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Samhliða leiklistinni fór Þrúður að vinna sem flugfreyja hjá Icelandair og leið henni vel í því starfi, þar sem einstaklega hlý nærvera hennar og smitandi bros nutu sín til fulls. Varð það hennar aðalstarf í tvo áratugi en hún hélt þó áfram að leika með reglulegu millibili á sviði, í sjónvarpi og kvikmyndum. Þrúður lék í hinu geysivinsæla leikriti Ökutímum hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 2009 og gamanleiknum 39 þrepum hjá Leikfélagi Akureyrar sama ár. Þá liggja eftir hana fjölmargar talsetningar, útvarpsleikrit og upplestrar hljóðbóka, og rödd hennar er mörgum kunn. Þrúður lék aðalhlutverkið í kvikmyndinni Pale Star eftir Grame Maley. Ferill Þrúðar í kvikmyndum og sjónvarpi spannaði rúm tuttugu ár og lék hún þar í kvikmyndunum Foreldrum (2007), Gauragangi (2010), Djúpinu (2012), Pale Star (2016) og Undir halastjörnu (2018) og sjónvarpsþáttunum Spaugstofunni (2010), Ástríði (2009-13), Mannasiðum (2018), Broti (2020) og Ófærð 3 (2021) og áramótaskaupinu árið 2010. Þrúður greindi frá veikindum sínum á samfélagsmiðlum 25. apríl síðastliðinn. Hún hefði farið í lyfjameðferð um miðjan janúar og lokið henni í febrúar þar sem hún hefði ekki borið árangur. „Núna snýst lífið um að reyna að finna einhver jákvæð og falleg augnablik sem fyrirfinnast í hverjum degi. Það reynist þó oft erfitt. Stundum er ekki nóg að taka einn dag í einu heldur einn klukkutíma eða bara fimm mínútur. Allt hefur breyst og ekkert verður eins og áður. En það sem er alltaf efst í huga er fólkið mitt. Að eiga fallegar stundir með Halla mínum, Róberti syni mínum og Ingunni tengdadóttur ásamt mínum allra nánustu. Að finna fyrir væntumþykju í garð annarra eflist mjög mikið,“ skrifaði Þrúður. Þrúður greindi frá veikindum sínum í apríl. Hún brýndi fyrir fólki að njóta alls þess sem það ætti eftir því lífið gæti svo sannarlega breyst á svipstundu. „Forðist að eyða orku í smáatriði sem skipta ekki máli. Njótið birtunnar á fallegum sumardegi, njótið fuglasöngsins, njótið hljóðsins í blaktandi laufum trjáa, njótið radda áhyggjulausra barna að leik,“ skrifaði hún. Þrúður lætur eftir sig soninn Róbert Vilhjálm Ásgeirsson, sem hún eignaðist árið 2000 með Ásgeiri Halldórssyni, og tengdadótturina Ingunni Önnu Kristinsdóttur. Eftirlifandi eiginmaður Þrúðar er Halldór Örn Óskarsson, ljósameistari í Þjóðleikhúsinu og síðar verkefnastjóri í Hörpu. Þau hófu sambúð árið 2010 og giftu sig árið 2016. Þau bjuggu alla tíð í hjarta miðborgarinnar, á Lokastíg. Þau nutu lífsins saman af fullum krafti, ferðuðust víða og áttu yndislegar stundir í sumarbústaðnum sínum í Munaðarnesi þar sem kyrrðin og náttúran veittu þeim hvíld og gleði. Útför Þrúðar fer fram frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 15. júlí klukkan 13.
Andlát Bíó og sjónvarp Leikhús Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Bautista hleypur í skarðið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Sjá meira