Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Freyja Þórisdóttir skrifar 2. júlí 2026 14:07 Það viðraði vel til hátíðarhalda á Írskum dögum fyrir ári, árið 2025. viktor freyr Einn stærsti dagskrárliður Írskra daga er tónlistarviðburðurinn Lopapeysan sem samanstendur af sextán mismunandi tónlistaratriðum þetta árið og fer fram næsta laugardag, þann 4. júlí. Þeir Valdimar Ingi Brynjarsson og Hjörvar Gunnarsson voru árið 2024 ráðnir viðburðastjórar bæjarhátíðarinnar sem hefur verið haldin síðan árið 1999 og fer, rétt eins og vanalega, fram á Akranesi nú á dögunum. „
Írskir dagar eru settir í kvöld með fjölskyldutónleikum á þyrlupallinum en það er búin að vera dagskrá alla vikuna. Við byrjuðum á mánudaginn. Það voru stórir tónleikar bæði á þriðjudag og miðvikudag,“ segir Hjörvar í samtali við blaðamann Vísis og bætir við að „svo bara heldur partíið áfram fram á sunnudag“. Hann segir hátíðina fara stækkandi ár frá ári en hún hefur verið haldin síðan árið 1999, að undanskildu tveggja ára hléi vegna heimsfaraldurs árin 2021 og 2022. Valdimar segir markmið skipuleggjenda að bæta sífellt upplifun fólks og gera hana enn betri og skemmtilegri. „Það er alltaf hægt að stækka þetta en, jú, hún hefur farið stigvaxandi þessi hátíð síðustu ár og fólk á Akranesi er bara svo til í að taka þátt og gera skemmtilegt og það þarf bara að taka fleiri daga undir,“ segir Hjörvar sömuleiðis. Vona að veðurguðirnir verði þeim hliðhollir Undirbúningurinn hafi að hans mati gengið vel en það helsta sem aftri fullkominni bæjarhátíð séu veðurguðirnir. Hjörvar segir veðurspána ekki hafa verið „með þeim í liði“ en Valdimar segist sjá fram á bongóblíðu um helgina. „Það verður bongóblíða. Við ákváðum að klára slæma veðrið bara núna í vikunni og svo verður bara gott veður á morgun og hinn,“ segir hann. Dagskráin í ár er mjög fjölbreytt en það eru sumir viðburðir sem eru hafðir með í dagskránni á hverju ári. Meðal þeirra er keppni um rauðhærðasta Íslendinginn. Fólk á öllum aldri skemmtir sér vel á hátíðinni.viktor freyr „Það eru náttúrulega fastir liðir þar sem venjulega, við náttúrulega útnefnum hérna rauðhærðasta Íslendinginn, gerum það á fjölskylduskemmtun á laugardaginn,“ segir Hjörvar en annar fastur liður er sandkastalakeppni að morgni laugardags. Meðal annars sem er á boðstólum er fjölskyldujóga, froðuball fyrir unglinga og laser tag. Svo er brekkusöngur á laugardag sem er að sögn Valdimars hugsaður sem eins konar upphitun fyrir Lopapeysuna. Eru enn til miðar á lopapeysuna? „Það eru enn þá til miðar en þeir verða ekki til neitt rosalega lengi í viðbót, en það þarf að hafa hraðar hendur,“ segir Hjörvar en Valdimar ítrekar að þeir seljist „eins og heitar lummur“. Meðal þeirra sem fram koma eru Skálmöld, Bubbi Morthens, Herra Hnetusmjör, XXX Rottweiler hundar, Stuðlabandið, Birgitta Haukdal, Helgi Björns og margir fleiri. Atriðin verða alls sextán talsins og dreifast á þrjú svið og um það bil þrefalt fleiri klukkustundir. Fyrr um daginn verður það sem kallast Portið opið öllum gjaldfrjálst en þar verður tónlist, matarvagnar og önnur skemmtun og er þar áætlað að mæti um 1500 til 2000 gestir.
Tónleikar á Íslandi Tónlist Akranes Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Fleiri fréttir Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Sjá meira