Arnór seldur til Grikklands Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júní 2026 08:39 Arnór Sigurðsson í leik með íslenska landsliðinu á móti Haíti í mars. Getty/Indrawan Kumala Íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson er á leið til grísku nýliðanna í Kalamata eftir að sænsku meistararnir ákváðu að selja hann til Grikklands. „
Þetta er besta lausnin fyrir alla aðila,“ segir yfirmaður íþróttamála, Philip Berglund, í yfirlýsingu sem Fotballskanalen segir frá. Arnór, sem er 27 ára gamall, snéri aftur í sænsku úrvalsdeildina í febrúar 2025 þegar hann gekk til liðs við Malmö FF. Dvöl hans hjá Skánarliðinu stóð aðeins yfir í eitt og hálft ár. „Við höfum tekið skýrt fram að Malmö FF stendur frammi fyrir stefnubreytingu í íþróttamálum, þar sem leikmannahópurinn á almennt að verða bæði yngri og minni. Með það í huga og út frá þeim stað sem Arnór er á á sínum ferli, ásamt þeim spiltíma sem hann hefur fengið hjá okkur, erum við sammála um að þetta sé besta lausnin fyrir alla aðila. Við óskum Arnóri alls hins besta í Grikklandi,“ sagði Philip Berglund, yfirmaður íþróttamála, í umræddri yfirlýsingu. Arnór hefur aðeins spilað fjóra leiki í sænsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og verið bara inni á vellinum í samtals 106 mínútur. Grikkland verður sjötta landið sem Arnór spilar í en auk Íslands og Svíþjóðar þá hefur hann spilað í Rússlandi, á Ítalíu og í Englandi. Kalamata F.C. er að fara að spila í efstu deild í Grikklandi í fyrsta sinn í 25 ár en liðið var síðast meðal þeirra bestu tímabilið 2000–01. View this post on Instagram A post shared by Malmö FF (@malmo_ff)
Sænski boltinn Gríski boltinn Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira