Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Jakob Bjarnar skrifar 16. júní 2026 14:09 Vilhjálmur segir Krambúðina hafa þjónað bæjarbúum af stakri samviskusemi og verið opin alla daga frá klukkan átta til hálf tólf á kvöldin. vísir/vilhelm/vilhjálmur Verkalýðsleiðtoginn Vilhjálmur Birgisson greinir frá því að á næstu dögum muni Krambúðin á Akranesi loka. Þetta var eftir að eigendur tóku þessa erfiðu ákvörðun. „
Fyrir mig er þetta ekki bara enn ein verslunin sem hverfur, því konan mín hefur verið verslunarstjóri þar í hartnær aldarfjórðung og því hefur Krambúðin verið stór hluti af okkar lífi.” Vilhjálmur segist, á Facebook, tala fyrir hönd margra Skagamanna þegar hann segir að mikill söknuður verði af þessari verslun sem þjónað hefur bæjarbúum af einstakri samviskusemi. „Verið opin alla daga ársins frá klukkan 8 á morgnana til 23:30 á kvöldin og höfum oft bjargað málunum þegar eitthvað hefur vantað á síðustu stundu. Þarna hafa líka fjölmargir ungir Skagamenn stigið sín fyrstu spor á vinnumarkaði, lært ábyrgð og þjónustulund og staðið sig með miklum sóma. Með lokuninni munu um 12 störf tapast, sem er sárt fyrir samfélagið okkar.“ Vilhjálmur bendir á að nú standi yfir rýmingarsala með helmings afslætti af öllum vörum, að tóbaki undanskildu, svo nú sé tækifæri fyrir Skagamenn að gera góð kaup áður en dyrunum verður lokað í síðasta sinn. „Ég mun sakna Krambúðarinnar – svo mikið er víst. Takk fyrir allt sem hún hefur gefið okkur í gegnum árin,“ segir Vilhjálmur og lætur hjarta fylgja.
Verslun Akranes Tímamót Matvöruverslun Mest lesið Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Fleiri fréttir Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Sjá meira