Að loka augunum fyrir hinu augljósa Bryndís Haraldsdóttir skrifar 12. júní 2026 15:30 Fjármálaáætlun hverrar ríkisstjórnar leggur grunnin að fjárlögum og rekstri ríkisins til fimm ára í senn. Hún á að vera stefnumarkandi, birta skýra mynd af stöðu mála og því hvernig ríkisstjórnin hyggst ná sínum markmiðum á komandi árum. Með hliðsjón af stöðunni í dag ætti fjármálaáætlun því aðsýna hvernig ætlunin er að tryggja stöðugleika í efnahagslífinu, ná niður verðbólgu, skapa svigrúm til vaxtalækkana og tryggja sjálfbær opinber fjármál til lengri tíma. Markmið um hallalaus fjárlög farin í veður og vind Lögum samkvæmt á fjármálaáætlun að „byggja á traustum forsendum og gögnum, sem unnin eru hlutlægt og kerfisbundið, og opinberum hagtölum og þjóðhagsspám þar sem tekið er mið af fjárhagslegum og efnahagslegum áhrifum af áformum stjórnvalda.“ Forsendur fyrirliggjandi fjármálaáætlunar byggjast á spá Seðlabankans frá því í febrúar. Á milli umræðna í þingsal birti Seðlabanki svo uppfærða þjóðhagsspá þar sem hagvöxtur er tekinn niður, sem minnkar áætlaðar tekjur ríkisins, og útlit er fyrir aukið atvinnuleysi sem eykur útgjöld. Þá hlutu áform um stytting bótatímabils atvinnuleysisbóta ekki fyllilega framgang á þinginu sem dregur úr þegar áætluðum sparnaði vegna þessa. Engu að síður ákvað meirihluti fjárlaganefndar að sleppa því að uppfæra töflur fjármálaáætlunar til samræmis við breyttar forsendur, þrátt fyrir að gangast við því að forsendur áætlunarinnar væru brostnar. Ganga má út frá því að hallalaus fjárlög árið 2027, helsta baráttumál forsætisráðherra, séu úr sögunni, hið minnsta að óbreyttu, nema til komienn frekari hækkunar á sköttum eða hagræðingar í rekstri. Þessu vilja stjórnarliðar hins vegar ekki gangast við og fjármálaáætlun eins og hún liggur fyrir þinginu núna stenst því ekki skoðun. Athugasemdir fjármálaráðs að engu hafðar Í umsögn Fjármálaráðs um fjármálaáætlun eru settar fram alvarlegar athugasemdir þar sem m.a. er varað við því að fyrirhuguð vísitölutenging almannatrygginga geti ógnað sjálfbærni opinberra fjármála, framkvæmd stöðugleikareglu sé ógagnsæ, óútfærðar afkomubætandi aðgerðir dragi úr trúverðugleika stefnumörkunar, og svo mætti áfram telja. Fjármálaráð hefur það hlutverk að veita stjórnvöldum faglegt aðhald og meta hvort áætlanir þeirra standist kröfur laga um opinber fjármál og eru athugasemdir þess ekki eitthvað sem ætti að láta í léttu rúmi liggja. Ábendingar ráðsins fá enda venjulega skýra og skilmerkilega umfjöllun við meðferð málsins í fjárlaganefnd og þær, ásamt viðbrögðum við þær, reifaðar í áliti meirihlutans. Að þessu sinni er engu slíku til að dreifa í áliti meirihluta fjárleganefndar. Góðar fyrirætlanir tryggja ekki árangur Það má öllum vera ljóst að það að ítreka einungis að stefnt sé að hallalausum fjárlögum árið 2027, þrátt fyrir breyttar efnahagsforsendur, dugar ekki til. Trúverðugleiki opinberra fjármála byggir á gagnsærri áætlanagerð. Þá duga orðin tóm ekki til heldur er nauðsynlegt að koma hreint fram og marka leiðina að settu marki skýrt og skilmerkilega. Á tímum þar sem verðbólga og háir vextir þyngja róður heimila og fyrirtækja ættu stjórnvöld að leggja sérstaka áherslu á aga, gagnsæi og trúverðugleika í opinberum fjármálum. Stjórnarliðar virðist því miður ekki hafa áhuga á því. Lausnin er engu að síður einföld: uppfærum fjármálaáætlun út frá nýjum forsendum svo hægt sé að ræða málin og takast á við krefjandi verkefni ríkisfjármálanna með hlutlægum og skynsamlegum hætti. Skorti ríkisstjórninni tíma til verksins er eðlilegt að þing verði kallað saman í ágúst til að klára málið í stað þess að keyra í gegn jafn mikilvægt mál og raun ber vitni á röngum forsendum. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bryndís Haraldsdóttir Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar