Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. júní 2026 10:55 Nýja bókin fjallar um ævintýri Kalla um borð í Esmeröldu. Gyldendal Danski barnabókahöfundurinn Ole Lund Kirkegaard lést langt fyrir aldur fram árið 1979 eftir að hafa gefið út níu barnabækur á tólf ára ferli. Nú tæpri hálfri öld síðar er von á nýrri bók eftir höfundinn: Kalli og Kapteinn Skipper. Óklárað handrit bókarinnar fannst fyrir 35 árum síðan og ákvað Nana Bang Kirkegaard, dóttir höfundarins, svo að ljúka við það.
Danska ríkisútvarpið greinir frá þessu en danski útgáfurisinn Gyldendal gefur út nýju bókina. Óklárað handrit bókarinnar sem heitir Kalle og Kaptajn Skipper eða Kalli og Kapteinn Skipper fannst í skúffu Kirkegaard fyrir 35 árum síðan en hann hafði þá verið látinn í rúm tíu ár. „Ég held að mamma hafi fundið það þegar hún var að þrífa húsið. Hún hugsaði að ef einhver gæti lokið við bókina þá yrði það að vera ég,“ segir Nana Bang Kirkegaard um bókina á vefsíðu Gyldendal. Kirkegaard er einn ástsælasti barnabókahöfundur Norðurlanda og skrifaði fjölmargar klassískar sögur á borð við Gúmmí-Tarzan, Ottó nashyrning og Fúsa froskagleypi. Hann lést aðeins 39 ára gamall eitt vetrarkvöld í mars 1979 eftir að hafa drukkið ótæpilega, hrasað í snjónum og frosið til dauða á staðnum. Sjö verk Kirkegaard hafa komið út eftir andlát hans og nú bætist það áttunda við. Bókin Kalli og Kapteinn Skipper fjallar um unga drenginn Kalla sem býr í litlu sjávarplássi og dreymir um að sigla um höfin sjö. Einn daginn siglir skipið Esmeralda í höfn en skipstjóri þess er Kapteinn Skipper. Kalli litli laumar sér um borð og við tekur ævintýri á sjónum. Nana Kirkegaard lýsir sögunni sem hægri, myndrænni og einfaldri. „Ég held að það sé mjög mikilvægt í barnaheimi þar sem þarf að fylgjast með svo mörgum hlutum,“ sagði hún um bókina. Auk þess að ljúka við bókina þá er Nana upptekin við að spila tónlist fyrir börn með hljómsveit sinni Skrallebang, sem hún er með manni sínum í, en tónlist hennar er mjög innblásin af textum Ole Lund.
Börn og uppeldi Bókmenntir Danmörk Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Fleiri fréttir Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira