Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. júní 2026 00:01 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. vísir/ívar Dómsmálaráðherra segir samþykkt Alþingis á frumvarpi sínu um brottfararstöð ekki kalla fram sigurtilfinningu. Með stöðinni sé Ísland að uppfylla sínar skuldbindingar en á sama tíma sé úrræðið íþyngjandi ráðstöfun.
Frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð fyrir útlendinga var samþykkt á Alþingi síðdegis. Frumvarpið var samþykkt með 42 atkvæðum en tíu þingmenn greiddu ekki atkvæði. Þingmenn Miðflokksins og Framsóknar sátu ýmist hjá eða voru ekki viðstaddir. „Auðvitað er opnun á svona úrræði, það framkallar ekki sigurtilfinningu. En ég var mjög meðvituð um það þegar ég tók við sem dómsmálaráðherra, ég sá afleiðingar stefnuleysis liðinna ára. Ég vissi að það þyrfti að taka ákveðnar ákvarðanir og fara í ákveðnar aðgerðir og það hefur ríkisstjórnin gert. Ég vissi að sumt af þessu yrði umdeilt og var undir það búin og það er bara veruleiki starfsins í þessu ráðuneyti, ég var mjög læs á það,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra. Aðrir forverar hennar hafi reynt við málið en það hafi aldrei verið lagt formlega fyrir Alþingi. Dómsmálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins reyndu að fara með það í gegnum ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur en telur Þorbjörg að stefnuleysi ríkisstjórnarinnar hafi valdið því að málið komst ekki í gegn. Afstaða Miðflokksins áhugaverð Þorbjörg segir afstöðu Miðflokksins hafa vakið athygli, en þeir ýmist sátu hjá eða voru fjarverandi þegar atkvæðagreiðslan fór fram. „Ég er auðvitað ekki besta manneskjan til að útskýra það hvað var þar að verki en þetta úrræði, og ég hef allan skilning á því. Auðvitað vekur þetta upp umræðu og þetta vekur upp tilfinningar, ég meina ég staldraði við þetta sjálf,“ segir hún. Ísland hafi hins vegar verið með tvær skuldbindingar, annars vegar gagnvart Schengen-samstarfinu og hins vegar á sviði mannréttinda. „Þetta er úrræði sem á bara við um þann hóp sem fær nei við alþjóðlegri vernd, ætlar ekki að virða ákvörðun stjórnvalda, neitar að fara af landi brott. Það er mikill minnihluti því flestir gera það á endanum að þeir fara úr landinu. Við smíðuðum frumvarpið þannig, eins og önnur Norðurlönd, að þetta er alltaf síðasta hálmstráið, síðasta verkfærið í kistunni sem notað er þegar fyrir liggur að önnur og vægari úrræði virka ekki.“ Þorbjörg segir að um sé að ræða íþyngjandi og erfiða ráðstöfun. „Hún verður sjaldan notuð en við þurfum að hafa hana og við erum skuldbundin til þess samkvæmt Schengen-samkomulaginu,“ segir Þorbjörg. Spreyjað á ráðuneytið Frumvarpinu hefur verið mótmælt töluvert í samfélaginu. Eftir að það var samþykkt gáfu No Borders-samtökin út yfirlýsingu þar sem þau hvetja almenning til þess að hafna lögunum og beita öllum ráðum til að koma í veg fyrir að þau verði færð í framkvæmd. „Ég finn auðvitað fyrir þessum mótmælum sem eru. Þau eru í fréttunum, mótmæli á Austurvelli og mótmæli inni í þinghúsi og veruleikinn minn sem dómsmálaráðherra er ekki mjög á annan veg en þeirra sem hafa verið á undan mér,“ segir Þorbjörg. Aðspurð játar hún að skemmdarverk hafi verið framin á dómsmálaráðuneytinu, til að mynda hafa ýmis orð verið spreyjuð á húsið. Um sé að ræða skilaboð til Þorbjargar og önnur ummæli um hana. „Mér finnst ekkert aðalatriðið í því hvað er verið að segja við mig. En þetta hafa verið skilaboð, orð eins og Auschwitz hafa verið spreyjuð á ráðuneytið og annað eftir því,“ segir hún. „Stóra breytingin finnst mér vera núna varðandi þennan málaflokk, það er samstaða í ríkisstjórninni um að fara í þær aðgerðir sem þarf að fara í. Við erum líka samstíga gagnvart þeim hópi fólks sem að hér er, að við viljum taka á móti honum. En það er alveg skýrt að við verðum að hafa stjórn á þessum málaflokki eins og öðrum. Það er alveg skýrt að þegar stjórnvöld taka ákvarðanir þá ber mönnum að fara eftir þeim og við verðum að hafa úrræði til þess að geta framfylgt okkar ákvörðunum.“ Vonandi hafi úrræðið fyrirbyggjandi áhrif Að sögn Þorbjargar hafa 180 manns látið sig hverfa á undanförnum árum en það sé dæmi um það af hverju þörf er á úrræði á við brottfararstöð. „Líklegast er þetta fólk farið úr landinu en við vitum það hins vegar ekki. Það segir allt sem segja þarf, að þetta er ekki bara einhver harðneskja út í bláinn,“ segir hún. „Þetta er úrræði sem þörf er á en svo getur það líka gerst að bara það að úrræðið sé til verði til þess að fjölga þeim hópi manna sem sættir sig við það að fara af landinu eftir að hafa fengið ákvörðun um það frá stjórnvöldum.“
Brottfararstöð fyrir útlendinga Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Færir Selenskí eldflaugateikningar Erlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Fleiri fréttir Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Sjá meira