„Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Gunnar Egill Daníelsson skrifar 9. júní 2026 23:06 Ingibjörg Sigurðardóttir með boltann í leiknum í kvöld. Vísir/Anton Ingibjörg Sigurðardóttir, miðvörður íslenska landsliðsins í fótbolta, viðurkenndi að leikurinn gegn Spáni í lokaumferð A3 riðils í undankeppni HM 2027 hafi verið afskaplega erfiður. Leiknum á Laugardalsvelli í kvöld lauk með 1-6 tapi. „
Þetta var mjög erfiður leikur. Mér fannst við einhvern veginn ekki ná að klukka þær, eiginlega allan leikinn. Við erum náttúrlega góðar í að vera árásargjarnar í einvígin en við komumst varla í þau. Þær eru ekkert eðlilega góðar.Við verðum bara að sætta okkur við það að þær voru miklu betri en við og við hittum ekki heldur á góðan dag,“ sagði Ingibjörg í samtali við Vísi eftir leikinn.Miklu erfiðara en gegn EnglandiStaðan var 0-3 í hálfleik þar sem Spánn skoraði í upphafi leiks og svo næstu tvö mörk seint í fyrri hálfleik.„Það er náttúrlega erfitt að fá mark á okkur snemma og síðan er bara ógeðslega erfitt að spila á móti þeim. Bara ef maður ber það saman við England, það er miklu erfiðara að spila á móti þeim.Þá er auðvitað erfitt að lenda 0-3 undir rétt fyrir hálfleik og reyna svo að peppa sig í gang. Mér fannst þær sem komu inn á gera gríðarlega vel, koma inn með mikla orku. Það kom auka orka í seinni hálfleik,“ sagði hún.Þurfum að klára leikina í októberÞriðja sætið varð niðurstaðan hjá Íslandi í riðlinum og fer liðið í umspil í október og í seinni umferð umspilsins í lok nóvember og byrjun desember.„Markmiðið var auðvitað þriðja sætið þannig að við erum ánægðar með það. Mér líst vel á þetta þó ég skilji ennþá voða lítið hvernig þetta verður. Mér finnst mjög erfitt að átta mig á því hvaða liði við erum að fara að mæta.Mér heyrist að við séum að fara að mæta C-deildar liði í október og það eru leikir sem við þurfum að klára. Svo verða erfiðir leikir í nóvember þannig að þetta eru ótrúlega mikilvægir leikir.Við höfum oft áður verið í þessari stöðu. Við höfum verið nálægt því að komast á HM og við þurfum bara að klára þetta núna,“ sagði Ingibjörg Sigurðardóttir að endingu í samtali við Vísi.
HM 2027 í Brasilíu Landslið karla í fótbolta Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira