Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2026 19:30 Divock Origi kyssir Meistaradeildarbikarinn en hann skoraði í úrslitaleiknum á móti Tottenham. Getty/Stuart Franklin Divock Origi, fyrrverandi framherji Liverpool, hefur tekið óvænta ákvörðun um að leggja fótboltaskóna á hilluna.
Það sem gerir þetta að svo óvæntum fréttum er að Origi er aðeins 31 árs gamall. „Markmiðum mínum sem leikmaður hefur verið náð,“ segir hann í upphafi færslu sinnar á Instagram. Origi hefur ekki spilað síðan lánssamningur hans við Nottingham Forest frá AC Milan rann út sumarið 2024. Hann hefur verið á mála hjá AC Milan síðustu ár en ekki spilað neina leiki. Origi er best minnst fyrir tíma sinn hjá Liverpool, þar sem hann skoraði meðal annars í 2-0 sigri á Tottenham í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2019 auk þess að skora fjórða markið sem tryggði endurkomusigurinn á móti Barcelona í undanúrslitunum. Ári síðar fékk hann að fagna enskum meistaratitli með félaginu. Alls spilaði hann 175 leiki fyrir Liverpool og skoraði í þeim 41 mark. „Ég hef upplifað drauma bernsku minnar um að spila á stærstu leikvöngunum og vinna stærstu titlana. Ég þakka Guði fyrir allt saman,“ skrifar Origi. Origi lék 32 landsleiki fyrir belgíska landsliðið. Hann skoraði þrjú mörk. View this post on Instagram A post shared by I—ORIGI (@divockorigi)
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Enski boltinn Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Fleiri fréttir Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Sjá meira