„Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Jakob Bjarnar og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 8. júní 2026 10:56 Bubbi Morthens segir leiðan misskilning hafa sprottið upp í kjölfar tónleikanna. Sem að öðru leyti tókust eins og best verður á kosið. Sjálfur gefur hann sér 9,7 fyrir frammistöðuna. vísir/vilhelm „Málið er að ég var að fara að spila lagið Þingmannagæla. Í því er kórusinn: „þingmaður og svarið er, já“ og „þingmaður og svarið er nei“. Ég hafði orð á því að ég vildi bara það besta fyrir æsku landsins eins og börnin mín og ef krónan væri ekki að virka væri ég alveg sáttur við evru,“ segir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens.
Eitthvað skoluðust heimildir til og á Vísi, í frétt um tónleikaröð Bubba í Laugardalshöll, var fullyrt að Bubbi hefði sagt eitthvað á þá leið, þegar Evrópusambandið væri annars vegar: Fokk jú! Þetta hefur verið lagfært. Bubbi er ekki þekktur fyrir að liggja skoðunum sínum. „Sko, ef evran væri að virka og ekki að virka, og krónan væri að virka þá væri ég sáttur við það. Svo eru sumir á móti og aðrir með. Síðan var ég að tjá mig um orðræðuna sem hefur verið að poppa upp núna undanfarið, til dæmis hjá Miðflokknum, um samkynhneigð, regnbogafánann og allt þetta. Það væri ekkert fallegra en ást og kærleikur. Og ég sagði líka að kynlíf væri eitt það fallegasta í mannlegu eðli. Það væri ekkert skítugt við kynlíf og svo bætti ég við: Ef ég ætti eitt svar til þeirra sem töluðu þannig þá væri það fokk jú.“ Evrópusambandið er jarðsprengjusvæði Bubbi segist hafa passað sig vel á því að tala ekkert um ESB. „Nei, ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið. Enda ég ekki að reyna að hafa áhrif þar. Þar á fólk að hafa sína skoðun.“ Bubbi er nú staddur í verðskulduðu fríi úti í Noregi, í glampandi sól þar sem hann er við laxveiðar. Hann hélt sögufræga tónleika um helgina og hefur fengið glimrandi dóma fyrir þá. Sjálfur Jónas Sen gefur honum fullt hús í glimrandi dómi sem birtist á Vísi í morgun. „Já! Jónas! Ég gef mér sjálfum fimm stjörnur,“ segir Bubbi og skellihlær. „Ég lagði gríðarlega mikið upp úr því að þetta væri gott. Fyrir það fyrsta, fólk er búið að borga rosalega mikinn pening og fólk er með væntingar. Þannig að ég hafði þetta sem hernaðarleyndarmál, að ég hefði slitið liðböndin nokkrum dögum áður.“ Meðhöndlaður af sjálfum Súper Maríó Bubbi segir að þess hafi verið gætt vel að þessi meiðsl myndu ekki leka út. „Við vildum ekki að nokkur manneskja færi að hugsa: Ahh, hann er ekki nógu góður út af löppinni eða eitthvað. Síðan ákváðum við umboðsmaður minn, hann Ísólfur Haraldsson, að taka Háskólabíó á leigu. Þar undirbjuggum við og forrituðum það sem við vorum að gera: Ljósin. Við höfðum rúman tíma til að gera þetta eins vandað og hægt var. Síðan fengum við að komast inn í Höllina á mánudegi. Þar vorum við að vinna og prógrammera því við vissum að við værum með í höndunum eitthvað sem ekki hefur sést á Íslandi, hvorki hjá innlendu bandi né erlendu. Það var gríðarleg vinna lögð í þetta og mikill metnaður. Það voru yfir 160 manns að vinna að þessum tónleikum.“ Meiðslin þurfti að meðhöndla. „Já, ég var með Súper Maríó frá Akranesi (Mario Majic sjúkraþjálfari ÍA) og hann vafði mig, ökla að hætti hermanna. (Strákar, grill! – hrópar Bubbi) Síðan tók ég bara verkjatöflur og svo fór ég bara á svið. Um leið og þú ert kominn fór á svið, það er til svona sletta: Battlefit! Ég hugsaði þetta þegar ég laumaðist í myrkrinu á svið: Bubbi, þú ert Battlefit.“ Bubbi gefur sjálfum sér 9,7 Svo gerðist einhver ótrúlegur galdur, samspil ljóss og hljóðs. „Salurinn öskursöng frá fyrsta lagi. Ég ætla bara að leyfa mér það, það er ekki oft sem ég mæri sjálfan mig vegna þess að oftar en ekki er maður ekki dómbær í eigin sök. Þú getur litið út eins og gömul sveskja en um leið og þú lítur í spegilbrotið sagt: Djöfull lít ég vel út,“ segir Bubbi og hlær. „Þú getur verið rammfalskur en hugsað: Djöfull er ég að syngja vel. En ég held, í alvörunni, að ef ég gef mér einkunn frá einum upp í tíu þá er þetta 9,7.“ Bubbi segist telja þetta verðskuldaðan dóm. „Ég held að svona tónleikar hafi ekki verið haldnir á Íslandi áður. Þetta er ísköld staðreynd og greinilega almennings.“ Þetta eru ekkert kveðjutónleikar, eða hvað? „Ég veit að höllin er bókuð eftir tuttugu ár. Í alvörunni? Nei, ég held að eftir þessa reynslu og getustig mitt, þrátt fyrir að vera með slitin liðbönd, geti menn átt von á því eftir tíu ár að ég taki aðra eins rönn.“
Tónleikar á Íslandi Tónlist Evrópusambandið Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Fleiri fréttir Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Sjá meira