Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 4. júní 2026 11:47 Pelley gagnrýndi reynsluleysi Weiss og Bilton á fundinum á mánudaginn og sakaði fyrrnefndu um miskunarlausa framgöngu gegn starfsmönnum. Óvíst er um framtíð fréttaskýringaþáttarins 60 mínútur eftir að blaðamanninum Scott Pelley var sagt upp störfum í vikunni. Víst þykir að framleiðslu þáttarins verði haldið áfram en óttast er um veg hans og virðingu nú þegar lykilstarfsmenn eru horfnir á braut. Pelley var látinn fara eftir að hann sakaði Bari Weiss, ritstjóra CBS News, um að hafa „myrt“ 60 mínútur en mikil óánægja hefur verið uppi hjá starfsmönnum miðilsins eftir að tilkynnt var um ráðningu Weiss. Weiss, sem var fyrst og fremst þekkt fyrir að vera dálkahöfundur, er afar umdeild og þótti næsta víst að henni væri ætlað að færa miðilinn nær stjórnvöldum í Washington, sem raungerðist þegar hún frestaði gagnrýnni umfjöllun 60 mínútna um alræmt fangelsi í El Salvador, þangað sem stjórn Donald Trump sendi meinta ólöglega innflytjendur án málsmeðferðar. Blaða- og sjónvarpsmaðurinn Anderson Cooper hafði þegar horfið á braut vegna þróunar mála hjá CBS þegar greint var frá því í síðustu viku að blaðamönnunum Cecilia Vega og Shary Alfonsi hefði verið sagt upp. Þá var framleiðslustjórinn Tanya Simon látin taka pokann sinn en Nick Bilton ráðinn í hennar stað. Bilton skrifaði áður um tækni fyrir New York Times og var rannsóknarblaðamaður hjá Vanity Fair en hefur enga reynslu af sjónvarpsfréttum. Boðað var til fyrsta fundar starfsmanna með Bilton á mánudaginn, þar sem Pelley er sagður hafa átt í mesta vanda með að hemja reiði sína. Fordæmdi hann reynsluleysi nýja yfirframleiðandans og sakaði nýja stjórnendur um að grafa undan 60 mínútum. Vendingar á fjölmiðlamarkaðnum vestanhafs CBS Broadcasting Inc. er dótturfélag Paramount Skydance og er stjórnað af David Ellison. Sá er sonur Larry Ellison, stofnanda Oracle og eins efnaðasta manns heims. Feðgarnir höfðu betur en Netflix í nýafstaðinni baráttu um Warner Bros. Discovery Inc. en David er sagður hafa heiti stjórnvöldum því að „taka til“ hjá CNN ef af samruna verður. Bilton sagði fyrir sitt leyti að þátturinn þyrfti að þróast í takt við tímann en það stæði ekki til að breyta honum í Tik Tok innslög. Þá reyndi hann að fullvissa starfsmenn um að Weiss „elskaði 60 mínútur“. „Hún er að myrða 60 mínútur,“ svaraði Pelley um hæl. „Hún elskar ekki þennan vinnustað. Hún var ráðin til að drepa hann og það er nákvæmlega það sem hún hefur verið að gera.“ Óvíst um framhaldið Weiss var ekki viðstödd fundinn en samkvæmt erlendum miðlum höfðu hún og Bilton áður freistað þess að ná Pelley á einkafund. Pelley krafði Bilton ítrekað skýringa á uppsögnum Alfonsi og Vega og spurði hann hvers vegna hann hefði þegið starf þar sem hann vissi að hann yrði aldrei velkominn. „Scott, ég hef verið blaðamaður í 25 ár. Ég hef, líkt og þú, setið á móti afar valdamiklum einstaklingum og hræðist ekkert af þessu. Þér mun ekki takast að hafa í hótunum við mig fyrir framan þetta fólk hér. Ég vil að það sé alveg skýrt,“ svaraði Bilton. Þeir sem voru viðstaddir voru hins vegar sagðir hafa kappað Pelley lof í lófa eftir að Bilton yfirgaf fundinn. Bilton greindi frá því daginn eftir að Pelley hefði verið sagt upp störfum. Sjónvarpsmenn 60 mínútna hafa verið dýrmætasta auðlind þáttarins og áhorfendur haldið tryggð við þau andlit sem hafa heimsótt þá heim í stofu í áratugi.CBS Í opnu bréfi til Pelley sakaði Bilton hann um að hafa tekið yfir fyrsta fund sinn með starfsmönnum, gert lítið úr sér og verið dónalegur. Með þessu hefði Pelley sýnt að hann hefði enga löngun til þess að leggja sitt af mörkum til þáttarins í framtíðinni. Þeir sem fylgjast með fjölmiðlum velta því nú fyrir sér hvað tekur við en auk þess að hafa tapað nokkrum af þekktustu andlitum 60 mínútna hefur Weiss gengið mjög rösklega fram í því að skipta út helstu einstaklingum á bakvið framleiðslu þáttanna. Beðið er fregna af því hvort Lesley Stahl og Bill Whitaker, sem hafa líkt og Pelley starfað hjá CBS um áratuga skeið, hyggjast halda áfram. Bandaríkin Fjölmiðlar Bíó og sjónvarp Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna Erlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Fleiri fréttir Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Sjá meira
Vendingar á fjölmiðlamarkaðnum vestanhafs CBS Broadcasting Inc. er dótturfélag Paramount Skydance og er stjórnað af David Ellison. Sá er sonur Larry Ellison, stofnanda Oracle og eins efnaðasta manns heims. Feðgarnir höfðu betur en Netflix í nýafstaðinni baráttu um Warner Bros. Discovery Inc. en David er sagður hafa heiti stjórnvöldum því að „taka til“ hjá CNN ef af samruna verður.
Bandaríkin Fjölmiðlar Bíó og sjónvarp Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna Erlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Fleiri fréttir Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Sjá meira