„Eins og fjölskylda í sólarlandaferð“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júní 2026 13:00 Erling Haaland og félagar í norska landsliðinu eru komnir til Bandaríkjanna þar sem þeir hefja leik á HM eftir ellefu daga. Getty/Lewis Storey Norska karlalandsliðið er komið til Greensboro í Bandaríkjunum þar sem fram undan er fyrsta heimsmeistaramót karlaliðs þjóðarinnar í 28 ár.
Norska landsliðið vann alla leiki sína í undankeppninni, þar á meðal báða leikina á móti Ítölum, 3-0 og 4-1. Markatalan var 37-5 í tíu leikjum og Erling Haaland skoraði sextán af þessum mörkum. Það þarf ekkert að koma á óvart að spennan er mikil meðal norsku þjóðarinnar enda trúa margir að liðið geti komist langt. Enn sem komið er virðast allir hlutaðeigandi vera ánægðir með aðstöðuna í Bandaríkjunum. „Þetta var eins og fjölskylda í sólarlandaferð þar sem krakkarnir ætla að prófa allt á fyrsta degi,“ sagði aðstoðarþjálfarinn Brede Hangeland við norska ríkisútvarpið. Á hótelinu hafa norsku leikmennirnir fengið heila hæð út af fyrir sig, sem þeir tóku fagnandi. „Meðal annars er þar sér líkamsrækt, endurheimtarherbergi og afþreying sem leikmönnunum líkar og auðvitað margt annað sem ég vona að leikmennirnir kunni að meta,“ sagði HM-stjórinn Truls Dæhli. Dagurinn í dag verður fyrsti dagurinn sem leikmennirnir fá að glíma við hitann á HM. „Það er engin æfing í dag af ásettu ráði. Það snýst um að losna við flugþreytu og ferðaþreytu úr líkamanum og koma sér fyrir hér á hótelinu,“ sagði Hangeland. Fyrsti leikur Noregs á HM er gegn Írak aðfaranótt 17. júní.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Sjá meira