Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi Birgir Olgeirsson skrifar 28. maí 2026 16:40 Gítarleikarinn Rubin Pollock á tónleikum með Kaleo í Berlín. Rubin segir tónleika Kaleo á Þingvöllum í sumar vera stærsta verkefnið sem sveitin hefur tekið þátt í. Kaleo snýr aftur heim í sumar eftir að hafa spilað á stórum sviðum víða um heim og orðið ein þekktasta íslenska rokksveit síðari ára. Hljómsveitin segir tónleikana Bergmál á Þingvöllum í sumar þó vera í sérflokki.
Kaleo hefur í gegnum árin spilað á tónleikum sem hafa verið haldnir á sögufrægum stöðum. Þar á meðal við Colosseum í Róm, Red Rocks Amphitheatre í Colorado og Ryman Auditorium í Nashville. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=hpJ5LJQLgNE">watch on YouTube</a> Rubin Pollock gítarleikari Kaleo segir það magnaða upplifun að spila á slíkum sögufrægum stöðum. „En ég held að þetta sé stærsta og magnaðasta verkefni sem við höfum tekið þátt í,“ segir Rubin um tónleikana á Þingvöllum. Kaleo vakti fyrst verulega athygli hér heima áður en sveitin sló í gegn á heimsvísu með plötunni A/B sem kom út árið 2016. Á henni voru meðal annars lögin Way Down We Go, All the Pretty Girls og No Good. Platan hefur selst í meira en einni milljón eintaka á heimsvísu, Way Down We Go fór á topp Billboard-listans í flokki Alternative Songs og No Good skilaði sveitinni Grammy-tilnefningu fyrir besta rokkflutning. Davíð Antonsson, trommari Kaleo, segir alltaf meiri pressu að spila Íslandi en úti í heimi. Nú, tíu árum eftir að A/B kom Kaleo endanlega á heimskortið, sendir sveitin frá sér viðhafnarútgáfu plötunnar. Þar verður meðal annars að finna áður óheyrt efni og nýja útgáfu af No Good, sem ber heitið Still No Good. Rubin segir endurútgáfuna fyrst og fremst vera leið til að halda upp á tímamótin. Hann segir nýju útgáfuna bera þess merki að tíu ár séu liðin frá upprunalegu upptökunni. „Það er nú búið að hægjast aðeins á okkur síðustu tíu árin, þannig að tempóið er aðeins búið að detta niður. Þetta er svona blússkotið og aðeins þroskaðra, held ég.“ Heimavöllurinn meiri pressa Kaleo fylgir útgáfunni eftir með tónleikaferð um heiminn. Sveitin fer til Evrópu, kemur síðan heim til Íslands og heldur svo áfram til Bandaríkjanna. „Við erum að fara núna til Evrópu í smá törn, svo komum við funheitir og höfum tónleika á Þingvöllum, svo förum við til Bandaríkjanna eftir,“ segir Davíð Antonsson trommuleikari sveitarinnar. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=qMDq4CGckW4">watch on YouTube</a> Þrátt fyrir að Kaleo hafi spilað á frægum tónleikastöðum erlendis segir Rubin sérstakt að spila fyrir tuttugu þúsund manns heima á Íslandi. „Það er bæði mannfjöldinn og svo líka bara er þetta að spila heima fyrir 20.000 manns á þessum reit er náttúrulega bara ótrúleg upplifun.“ Davíð segir heimavöllinn ekki endilega auðveldari en stóru sviðin erlendis. „Mér finnst vera meiri pressa á að spila á Íslandi. Það eru allir sem þú þekkir í salnum og frændi og frænka og já, það er kannski helsti munurinn, þú þekkir andlitin í salnum.“ Tuttugu þúsund manns á Þingvöllum Bergmál verður haldið á Þingvöllum 20. júní næstkomandi, á sumarsólstöðum. Auk Kaleo koma meðal annars fram Emilíana Torrini, Mugison, Stuðmenn, Helgi Björnsson, Hjálmar, GDRN, Júníus Meyvant, KK og Árný Margrét. Heimild er fyrir allt að tuttugu þúsund gestum á svæðinu. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=NZVcIPg9B-g">watch on YouTube</a> Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður og einn aðstandenda Bergmáls, segir umfangið miklu meira en á tónleikunum Vor í Vaglaskógi sem Kaleo kom fram á í fyrra. „Þetta eru kannski liðlega tvöfalt fleiri en voru þar en ég get alveg sagt að það er svona tífalt meiri skipulagning og stærra starfslið og öryggisþættir og umferðarstýring og allt sem fylgir er mun flóknara, meiri áskorun en menn eru að vanda sig.“ Hann segir stefna í mikla aðsókn. „Það er heimild fyrir 20.000 og það er svona að sigla í það. Síðustu miðarnir eru núna bara að síga út um mánaðamótin og það er moment.is sem er að selja þessa miða og selur líka miða í rúturnar. Við mælum með því að fólk taki hópferðabíl. Þeir sem vilja koma á bíl geta bókað bílastæði.“ Jakob segir markmiðið að gestir komist greiðlega til og frá Þingvöllum og að upplifunin verði ekki lituð af umferðarvandamálum. „Það er auðvitað markmiðið að þetta verði ekki eins og veghátíðin mikla '94, þetta verði núna með auknum tengingarmöguleikum og samskiptum, þá sé hægt að gera þetta að ánægjulegri upplifun fyrir alla, alveg frá því þú leggur af stað á heimilinu þangað til þú kemur heim aftur.“ Tónleikarnir á tveimur sviðum Tónleikarnir fara fram á tveimur sviðum. Jakob segir dagskrána hefjast á Valhallarsviði, þar sem gamla Hótel Valhöll stóð, áður en stærri atriðin taka við á aðalsviðinu við Lögberg. „Valhallarsvið, þar sem gamla Hótel Valhöll var, byrjar klukkan 11 um morguninn. Sætaferðirnar hefjast klukkan tíu og þú nærð fyrstu atriðunum á Valhallarsviði. Við erum að dreifa dagskránni þannig yfir að eftir hina formlegu setningu klukkan tvö á Lögbergs-stóra sviðinu þá koma þeir fram Kaleo-menn órafmagnaðir í akústískum búningi sem fer þeim mjög vel.“ Jakob segir aðstandendur leggja mikið í sviðsmynd, hljóð, ljós, aðstöðu og skipulag á svæðinu. „Við ætlum að hafa þetta eins fallegt og vel gert og nokkur kostur er.“ Fyrir Kaleo verða tónleikarnir bæði heimkoma og tímamót. Sveitin fagnar tíu ára afmæli plötunnar sem kom henni út í heim en gerir það á stað sem hún telur stærsta verkefni sitt til þessa.
Kaleo Þingvellir Bláskógabyggð Tónleikar á Íslandi Tónlist Menning Tónleikar Kaleo á Þingvöllum 2026 Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fleiri fréttir Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sjá meira