Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Hólmfríður Gísladóttir skrifar 26. maí 2026 06:33 Rússar hóta enn frekari árásum á Kænugarð. Getty/Global Images Ukraine/Andriy Zhyhaylo Stjórnvöld í Rússlandi hafa hótað kerfisbundnum árásum á Kænugarð þar sem skotmörkin yrðu stjórnstöðvar og drónaframleiðsla Úkraínumanna. Sendifulltrúar og erlendir ríkisborgarar eru hvattir til þess að yfirgefa höfuðborgina sem fyrst og almennir borgarar til að halda sig frá opinberum byggingum og hernaðarinnviðum.
Frá þessu greinir í yfirlýsingu rússneska utanríkisráðuneytisins en Rússar gerðu á dögunum eina umfangsmestu árásina á Kænugarð frá upphafi stríðsins. Stjórnvöld í Úkraínu segja um að ræða „skammarlausa kúgun“ og hvetja bandamenn til að gefa enn í refsiaðgerðir sínar gegn Rússum. Í yfirlýsingu stjórnvalda í Úkraínu segir meðal annars að með því að hvetja sendifulltrúa til að forða sér séu Rússar í raun og veru að viðurkenna að þáttur í aðgerðum þeirra sé að ógna fulltrúum erlendra ríkja í landinu. Þá sé sannleikurinn sá að Kænugarður hafi sætt stöðugum árásum og ógnin af völdum Rússa verið svo til óbreytt síðustu misseri. Að minnsta kosti fjórir létust og fjöldi særðist í árásum Rússa á Kænugarð aðfaranótt sunnudags, þar sem Rússar skutu tugum eldflauga og hundruðum dróna að höfuðborginni og ofurfrárri Oreshnik eldflaug að Bila Tserkva, sem er í um 90 km fjarlægð frá borginni. Meðal skotmarka voru Listasafn Úkraínu, Chernobyl-safnið og verslanamiðstöð.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Fleiri fréttir Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Sjá meira