Allegri og allir stjórnendur AC Milan reknir Valur Páll Eiríksson skrifar 25. maí 2026 16:45 Allegri er meðal fjögurra sem var rekinn frá AC Milan í dag. Framkvæmdastjórinn og yfirmenn íþróttamála voru einnig látnir taka poka sinn. Giuseppe Maffia/NurPhoto via Getty Images Eigendur AC Milan eru allt annað en sáttir eftir að félaginu mistókst að komast í Meistaradeild Evrópu með því að hafna í fimmta sæti ítölsku A-deildarinnar eftir lokaumferð gærdagsins. Allir æðstu prestar klúbbsins hafa verið reknir.
AC Milan tapaði 2-1 fyrir Cagliari á heimavelli í lokaumferð ítölsku A-deildarinnar í gær. Um var að ræða þriðja tapið í síðustu fjórum leikjunum og það gerði að verkum að Como tókst að fara upp fyrir AC í fjórða sæti deildarinnar. Como fer því í Meistaradeildina í fyrsta sinn í sögu félagsins, á kostnað AC Milan, sem verður af töluverðu tekjutapi spilandi í Evrópudeildinni á komandi leiktíð. RedBird Capital Partners, eigendahópur AC Milan, hikaði ekki við stórvægar breytingar sökum árangursins, eða öllu heldur skortsins þar á. Allir sem fara með eitthvað vald er kemur að fótboltahlið félagsins voru reknir. Framkvæmdastjórinn Giorgio Furlani, íþróttastjórinn Igli Tare, þjálfarinn Massimiliano Allegri og tæknistjórinn Geoffrey Moncada voru allir reknir í dag. Þetta kemur fram í yfirlýsingu á heimasíðu félagsins. Í yfirlýsingunni segir meðal annars: „Stærstan hluta tímabilsins vorum við í tveimur efstu sætunum í Serie A, með raunhæfan möguleika á að keppa um titilinn. Lokakaflinn var algjörlega úr samræmi við frammistöðuna fram að þeim tímapunkti, þar sem vonbrigðatapið í síðasta leiknum í gærkvöldi breytti tímabilinu í ótvírætt klúður.“ Enn fremur segir að leit sé hafin að eftirmönnum í stöðurnar fjórar. Andoni Iraola, fráfarandi stjóri Bournemouth á Englandi, er sagður ofarlega á lista hvað þjálfarastöðuna varðar.
Ítalski boltinn Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ Sjá meira