Alræmdur faðir stígur fram Atli Heiðar Gunnlaugsson skrifar 22. maí 2026 07:01 Barnið mitt er í Vesturbæjarskóla. Við foreldrarnir lögðum fram þá ósk til skólastjórnenda að fá undanþágu fyrir barnið okkar frá kynfræðslu skólans sem er í samvinnu við Samtökin 78. Á fundi með skólastjórnendum var ég spurður hvort ekki ætti að senda barnaverndarnefnd heim til okkar og kanna heimilishaldið. Mér fannst það högg fyrir neðan beltisstað. Líklega var hætt við að siga barnavernd á okkur þegar skólastjórnendur áttuðu sig á að það kæmi illa út í fjölmiðlaumræðu að barnaverndarnefnd væri kölluð til svo kveða mætti í kútinn mótbárur gegn skringilegri kynfræðslu. Í fræðslunni sem um ræðir, kynfræðslu fyrir börn, er kennt að börn geti verið fædd í röngum líkama, að kyn sé ,,fljótandi“, ákvarðað af samfélaginu eða börnunum sjálfum (nú, eða foreldrum þeirra) en ekki líkamlegum staðreyndum og ómótmælanlegum hlutlægum veruleika, sem er að kynin eru tvö. Já, það er víst líka kennt að kynin séu fjölmörg án þess þó að fjöldi kynja sé tilgreindur. Ef kynin eru óteljandi er marklaust að tala um kyn yfir höfuð. Ég er kristinnar trúar og tel kenningarnar í kynfræðslunni stangast á við kristna trú um eðli mannsins. Ef það væri svo að vísindalegar staðreyndir sýndu fram á að kynin væru fjölmörg og kyn réðist af huglægum þáttum en ekki hlutlægum myndi ég vitanlega sættast á að barnið fengi kennslu í samræmi við bestu fáanlegu þekkingu. Kristin sérviska foreldranna myndi víkja fyrir menntun og velferð barnsins. En þær kenningar sem kynfræðslan í Vesturbæjarskóla byggja á eru hvorki byggðar á hlutlægum veruleika né vísindalegri þekkingu. Nær væri að tala um veraldleg trúarbrögð. Ég tel, í sem fæstum orðum, að kynfræðslan í Vesturbæjarskóla sé barninu hættuleg og til þess fallin að rugla það ríminu og valda skaða á sjálfsmynd barnsins. Börn vita ósköp vel að kynin eru tvö. Jón fyrir hádegi getur ekki verið Guðrún eftir hádegi. Nema í hlutverkaleik. Ábyrgðarhluti er að opinber menntastofnun kyndi undir óreiðu í barnshuga. Ég ætlaði ekki að stíga fram undir nafni með mín sjónarmið. Hugmyndin var að vinna málið í samvinnu við lögmann og fá skólann til að viðurkenna rétt foreldra til að fá kennslu fyrir barnið sem er í samræmi við trúar- og lífsskoðanir fjölskyldunnar. Þessi réttur er í viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu sem hefur lagagildi hér á landi. Tillaga okkar er að barnið okkar fái að sitja á bókasafni skólans á meðan kynfræðslan fer fram í skólastofunni. Er það til of mikils mælst? Ástæðan fyrir því að ég, þessi alræmdi faðir, geng fram fyrir skjöldu er skoðanagrein Ingileifar Friðriksdóttur aðstoðarmanns utanríkisráðherra sem birtist á Vísi. Ingileif gerir því skóna að ósk okkar, byggð á velferð barnsins, sé óeðlileg og til marks um andstöðu við velferð annarra. Svo er ekki. Ég er aðeins með í huga mitt barn og fer ekki fram á að högum annarra barna sé raskað á einn eða annan hátt. Ingileif á beinna hagsmuna að gæta í málinu. Hún er höfundur bókar um ,,hinsegin“ sem kennd er í Vesturbæjarskóla. Að sjálfsögðu getur hún þess ekki í Vísis greininni. Ég fer ekki fram á annað en sanngirni. Ingileif er í valdastöðu í samfélaginu og býr að víðtæku tengslaneti. Í krafti þess talar hún niður til fólks sem er kannski með sína sérvisku – en hvað á þá að kalla hugmyndafræðina sem Ingileif aðhyllist? Höfundur er stoltur faðir og fylgjandi mannréttindum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hinsegin Jafnréttismál Mannréttindi Tjáningarfrelsi Grunnskólar Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar