Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir, Ragnhildur Guðmundsdóttir, Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir og Skúli Skúlason skrifa 22. maí 2026 08:00 Í dag, þann 22. maí, er alþjóðlegur dagur líffræðilegrar fjölbreytni og á þessum degi er gott að rifja upp af hverju það er mikilvægt að vernda fjölbreytni lífsins. Hugtakið nær yfir breytileika allra lífvera jarðar, breytileika innan og milli tegunda ásamt breytileika þeirra vistkerfa sem þær búa í. Líffræðileg fjölbreytni er undirstaða alls lífs á jörðinni og þegar fjölbreytnin rýrnar þá hafa stofnar og tegundir litla möguleika á að bregðast við með aðlögun að breyttum aðstæðum. Hnignun líffræðilegrar fjölbreytni og afleiðingar loftslagsbreytinga eru meðal stærstu ógna sem lífríki jarðar, og þar með mannkynið, stendur frammi fyrir í dag og mikilvægt er að þjóðir heims finni lausnir sem tækla þessar áskoranir saman. Á Íslandi hefur umræðan um líffræðilega fjölbreytni loksins fengið meðbyr, þó enn sé langt í land. Nýlega kom út stefna frá stjórnvöldum um líffræðilega fjölbreytni og nú er unnið að aðgerðaráætlun. Með þessari stefnu setja stjórnvöld sér markmið til ársins 2030 til að stuðla að vernd líffræðilegrar fjölbreytni. Þessi stefna er liður í því ferli að standa við skuldbindingar Íslands við Samning Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni sem Ísland hefur verið aðili að síðan árið 1994 og samkomulagið Kunming-Montreal Global Biodiversity Framework eða GBF sem samþykkt var í lok árs 2022. Í stefnu íslenskra stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni, sem og í GBF, gegna sveitarfélög oft lykilhlutverki. Sveitarfélög bera ábyrgð á skipulagsmálum, framkvæmdum, grænum svæðum og mörgum þáttum sem hafa bein áhrif á lífríkið í nærumhverfi fólks, bæði í borgum og á landsbyggðinni. Ákvarðanir um ný hverfi, samgöngur, fráveitur, virkjanir eða útivistarsvæði geta ógnað líffræðilegri fjölbreytni en með upplýstri ákvarðanatöku er hægt að lágmarka neikvæð áhrif framkvæmda á vistkerfi og líffræðilega fjölbreytni eða jafnvel hafa jákvæð áhrif. Þess vegna er mikilvægt að sveitarfélög líti á bæði villta náttúru og borgarnáttúru sem dýrmæta auðlind sem eykur lífsgæði og velferð íbúa. Sveitarfélög geta gert fjölmargt í þágu líffræðilegrar fjölbreytni. Þau geta verndað og endurheimt votlendi og önnur mikilvæg vistkerfi og stuðlað að grænni og sjálfbærri hönnun í þéttbýli. Einnig geta þau lagt áherslu á notkun innlendra plöntutegunda í stað framandi og mögulega ágengra tegunda, bætt aðstöðu fyrir fugla og nýtt skipulagsvald sitt til að samþætta líffræðilega fjölbreytni inn í stefnumótun. Fræðsla til íbúa og samstarf við skóla, félagasamtök og atvinnulíf getur einnig haft jákvæð áhrif og skapað sátt um ákvarðanir í þágu náttúrunnar. Samstarfsvettvangurinn Biodice var stofnaður árið 2020 en þar koma saman stofnanir, háskólar, sérfræðingar, áhugafólk, samtök og fyrirtæki sem vilja stuðla að aðgerðum og vitundarvakningu um líffræðilega fjölbreytni. Náttúruminjasafn Íslands og Biodice hafa um árabil haldið fræðsluviðburði og fyrirlestra um líffræðilega fjölbreytni vítt og breitt um landið og bjóða fram krafta sína í formi fræðslu, miðlun og samtals um líffræðilega fjölbreytni. Nú þegar sveitarstjórnarkosningar eru að baki gefast nýkjörnum fulltrúum spennandi tækifæri til að styrkja tengsl samfélags og náttúru. Náttúran gegnir mikilvægu hlutverki í lífsgæðum íbúa, heilsu og aðdráttarafli sveitarfélaga og því getur markviss áhersla á græn svæði, sjálfbærar lausnir og vernd og endurheimt vistkerfa skapað enn betri byggðir til framtíðar. Mannkynið er hluti af náttúrunni og sveitarfélög geta verið leiðandi í uppbyggingu samfélaga þar sem náttúra og blómlegt mannlíf dafna hlið við hlið. Í tilefni dagsins verður haldinn opinn viðburður um líffræðilega fjölbreytni og stöðu Íslands kl. 13-14:30 í sal N-132 í Öskju, Háskóla Íslands. Á viðburðinum verður kafað ofan í stefnu Íslands um líffræðilega fjölbreytni og yfirstandandi verkefni sem miða að því að vernda líffræðilega fjölbreytni. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi Biodice, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og Náttúruminjasafns Íslands. Við hjá Biodice, Náttúruminjasafni Íslands og Háskólanum á Hólum notum tækifærið á degi líffræðilegrar fjölbreytni til að óska David Attenborough til hamingju með 100 ára afmælið sitt um daginn og þakka fyrir hans framlag í þágu náttúrunnar og miðlunar á henni. Við hvetjum öll, þar á meðal nýkjörið sveitarstjórnarfólk landsins, til að gefa sér tíma í dag til að njóta náttúrunnar í nærumhverfi sínu og upplifa tengingu við náttúruna. Eftir þessa náttúruupplifun er tilvalið að fá enn meiri innblástur úr náttúrunni með því að horfa á náttúrulífsþátt í boði Davids. Höfundar starfa hjá Náttúruminjasafni Íslands og við Háskólann á Hólum við verkefni Biodice. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar