Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Kristján Már Unnarsson skrifar 18. maí 2026 22:10 Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur ræðir mögulegar sviðsmyndir í umbrotum á Reykjanesskaga. Bjarni Einarsson Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir allt stefna í nýtt eldgos á Sundhnúksgígaröðinni. Margir aðrir möguleikar séu þó í stöðunni, eins og að annað eldstöðvakerfi taki við, þar á meðal Krýsuvíkurkerfið.
Í kvöldfréttum Sýnar var rifjað upp að liðlega níu mánuðir eru frá því síðasta eldgosi lauk. Síðan þá hafa sérfræðingar Veðurstofu talið líklegasta framhaldið vera kvikuhlaup og nýtt eldgos á Sundhnúksgígaröðinni. Það mat var enn ítrekað í síðustu viku. Við spurðum Pál Einarsson hvort hann væri sammála því mati: „Það er erfitt að komast að annarri niðurstöðu með það vegna þess að þessi atburður er í gangi. Það er sem sé bullandi landris í gangi og það stefnir allt í það,“ svarar Páll, sem er prófessor emeritus í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. „Þetta landris er komið langt umfram það sem að við þekktum hæst áður þarna. Þannig að, eins og staðan er núna, þá stefnir allt í gos þarna.“ Páll segir þó einnig vel hugsanlegt að þetta lognist út af hægt og rólega. Síðasta eldgos í Sundhnúksgígaröðinni hófst þann 16. júlí í fyrrasumar. Því lauk þann 5. ágúst.Björn Steinbekk „Ein sviðsmynd líka; að það lognist hreinlega út af í Svartsengi og nýtt kerfi taki við. Og þá er það Krýsuvíkurkerfið sem er langalvarlegast í þessu. En það eru fleiri kerfi,“ segir Páll og nefnir einnig Reykjanesið og Brennisteinsfjöll sunnan Reykjavíkur. Páll minnir á að í yfirstandandi umbrotahrinu, sem hófst árið 2020, hafi í raun þrjú eldstöðvakerfi þegar virkjast: Svartsengi, Fagradalsfjall og Krýsuvík. Reynslan sýni að mest tjón verði þegar sprungur opnast í kvikuhlaupum sem verði án eldgoss, eins og gerðist í upphafi atburðanna í Grindavík í nóvember 2023. Miklar skemmdir urðu á mannvirkjum í Grindavík í kvikuhlaupinu 10. nóvember 2023.Vilhelm Gunnarsson „Krýsuvík er það kerfi sem býður upp á stærstu tjónaatburði. Það stafar af því að hluti af Krýsuvíkurkerfinu liggur hér um inn í úthverfi Reykjavíkur. Þannig að ef það kemur stórt kvikuhlaup frá Krýsuvík, þá gæti það valdið verulegri sprunguvirkni hér uppi í Hólmsheiði, upp í Rauðavatn og á þeim slóðum og valdið stórkostlegu tjóni. Sem væri þá miklu stærra heldur en það tjón sem þegar er orðið, sem varð náttúrulega í Grindavík,“ segir Páll Einarsson. Í ítarlegra viðtali er Páll spurður hvort Kröflueldar gætu gefið vísbendingar um framhald umbrota á Reykjanesskaga:
Eldgos á Reykjanesskaga Eldgos og jarðhræringar Grindavík Vísindi Almannavarnir Tengdar fréttir Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi. 21. apríl 2026 15:30 Svona gætu eldgosin orðið ef þau líkjast Kröflueldum Kvikusöfnun virðist hafin að nýju undir Svartsengi. Vísindamenn segja þessa atburðarás og þetta stutta eldgos, sem lauk í dag, helst minna á Kröfluelda. 21. desember 2023 21:31 Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira
Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi. 21. apríl 2026 15:30
Svona gætu eldgosin orðið ef þau líkjast Kröflueldum Kvikusöfnun virðist hafin að nýju undir Svartsengi. Vísindamenn segja þessa atburðarás og þetta stutta eldgos, sem lauk í dag, helst minna á Kröfluelda. 21. desember 2023 21:31