Framþróun í tónlistarnámi á háskólastigi á Íslandi Pétur Jónasson skrifar 18. maí 2026 16:31 Það eru spennandi tímar framundan í Tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Undanfarin misseri hefur staðið yfir endurskipulagning á bakkalárnámi deildarinnar. Ljóst var orðið að breytinga var þörf ef námið ætti að þróast til framtíðar í takt við þarfir nemenda og þá þróun sem á sér stað í tónlistarnámi á háskólastigi. Þar var sérstaklega horft til erlendra háskóla sem teljast leiðandi. Ráðist var í aðgerðir sem miða að því að skapa hnitmiðað og nútímalegt nám, með auknum möguleikum fyrir nemendur til að móta eigin námsferil, án þess þó að missa sjónar á kjarnanum í því námi sem þeir velja sér. Í fyrsta lagi var námsleiðum fækkað með það að markmiði að gera námsframboðið skýrara og markvissara. Áður var talsverð skörun milli sumra námsleiða, og nokkrar þeirra voru fámennar. Lá því beint við að sameina þær og einfalda skipulagið. Þegar nemendafjöldi er of lítill getur það rýrt félagslegt gildi námsumhverfisins og jafnframt veikt rekstrarlegar forsendur námsleiðarinnar. Námsleiðum var því fækkað úr sjö í þrjár. Þrátt fyrir það var lögð rík áhersla á að halda áfram kennslu í öllum helstu þáttum námsins, þ. á m. kennslufræði sem er veigamikill hluti af starfi margra tónlistarmanna. Í öðru lagi var val í náminu stóraukið. Nemendur geta nú mótað sína eigin áherslu í náminu með því annars vegar að ráða samsetningu valnámskeiða sjálf eða að nýta allt valið fyrir aukagrein. Þetta er veruleg breyting frá fyrra fyrirkomulagi, þar sem t.d. kennslufræðilegt nám stóð aðeins fáum til boða. Nú geta allir nemendur deildarinnar aflað sér slíkrar menntunar, hvort sem þeir eru flytjendur eða stunda nám í tónsmíðum. Með þessu er einnig brugðist við skorti á tónlistarkennurum í landinu. Þeir sem hyggjast starfa sem kennarar þurfa þó áfram að ljúka meistaragráðu í Listkennsludeild til að hljóta fullgild kennsluréttindi. Unnið er að þróun fleiri sambærilegra aukagreina, svo sem áherslu á samtímatónlist, meðleik, tónfræði og rannsóknir. Þannig gæti söngvari lagt stund á tónsmíðar samhliða námi sínu, tónskáld bætt við sig kennslufræði eða rafgítarleikari unnið með fræðileg vinnubrögð og rannsóknir svo nokkur dæmi séu tekin. Að auki verður þeim nemendum sem kjósa að dýpka þekkinguna á sínu sérsviði gert það kleift: hljóðfæraleikari gæti þá t.d. nýtt valið til að sérhæfa sig enn meira í aðalfagi sínu. Í þriðja lagi var stofnuð ný námsleið fyrir flytjendur í rytmískri tónlist. Að undangenginni ítarlegri þróunarvinnu var nýju námi - Tónlist Nýsköpun Tækni (TNT) - hleypt af stokkunum sl. haust. Um er að ræða fjölbreytt og framsækið nám fyrir þá sem vilja helga sig djassi, poppi, rokki, laga- og textasmíðum eða annarri rytmískri hljóðlist. Þau nýmæli eru að hér er ekki gerð krafa um formlegt tónlistarnám við inntöku. Með því var opnað fyrir breiðari hóp hæfileikaríks fólks sem áður hafði ekki átt kost á háskólanámi í tónlist þrátt fyrir raunhæfa færni. Aðsókn hefur þegar sýnt að þörfin var til staðar enda var metfjöldi umsókna um námið nú í vor, annað árið í röð. Í fjórða lagi hefur deildin átt frumkvæði að breytingum á skipulagi náms innan Listaháskólans í heild. Frá og með næsta hausti verða öll námskeið á bakkalárstigi skipulögð sem 5, 10 eða 15 eininga námskeið. Á næstu misserum munu aðrar deildir skólans taka upp sama fyrirkomulag. Þetta auðveldar nemendum að sækja sér fjölbreyttari menntun þvert á listgreinar, og jafnvel þvert á háskóla þegar til lengri tíma er litið. Í heild er því ástæða til að horfa bjartsýnum augum til framtíðar íslensks tónlistarlífs. Eitt af því sem hefur einkennt íslenska tónlist síðustu ár er hversu listafólk sækir efnivið víða, vinnur yfir mörk ólíkra greina og tileinkar sér fjölbreyttar hefðir. Hin nýja uppbygging námsins styður við þessa þróun auk þess sem henni er ætlað að stuðla að fjölgun tónlistarkennara. Í samantekt eru því nú þrjár námsleiðir í boði á bakkalárstigi: klassískt flytjendanám (hljóðfæraleikur; söngur; kirkjutónlist), rytmískt flytjendanám (TNT, sjá að ofan) og endurskoðað tónsmíðanám (tónsmíðar og -fræði; tónsmíðar rafmiðla; tónsmíðar á opnu svæði). Hver þessara leiða býður svo upp á fjölbreytta möguleika hvað aukagreinar varðar. Ætlunin er að námsleiðirnar vinni saman og að þannig skapist vettvangur fyrir nemendur til að þróa eigin rödd á traustum grunni. Tónlistardeild starfar eftir metnaðarfullri stefnu Listaháskólans og þeim leiðarljósum að vera hreyfiafl í síbreytilegum heimi, að deildin endurspegli fjölbreytileika samfélagsins og að skapandi hugsun sé lykilforsenda framþróunar. Öll nýsköpun felur í sér breytingar og með þessu nýja námsframboði teljum við okkur enn betur í stakk búin að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda. Markmiðið er að bjóða upp á nám sem endurspeglar raunverulegar þarfir samtímans og undirbýr nemendur fyrir fjölbreyttan starfsvettvang að námi loknu, jafnt hérlendis sem erlendis. Höfundur er prófessor og forseti Tónlistardeildar Listaháskóla Íslandsi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Menning Skóla- og menntamál Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar