Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Kjartan Kjartansson skrifar 15. maí 2026 11:26 Petteri Orpo, forsætisráðherra Finnlands, telur ekki að of langt hafi verið gengið með því að vara 1,8 milljónir íbúa í Helsinki og nágrenni við eftir að viðvörun barst um að sprengjudróni gæti farið inn í finnska lofthelgi í nótt. Vísir/EPA Finnsk yfirvöld segja að engir flökkudrónar hafi fundist eftir að almannavarnatilkynning var gefin út til íbúa Helsinki í nótt um að halda kyrru fyrir innandyra. Forsætisráðherrann segir viðbrögð yfirvalda ekki hafa verið ýkt miðað við tilefnið.
Íbúum í Uusimaa-héraði sem Helsinki tilheyrir fengu tilkynningu frá almannavörnum í nótt þar sem þeim var ráðlagt að halda kyrru fyrir. Þá var flugumferð um Vantaa-flugvöll stöðvuð tímabundið. Litlar upplýsingar voru veittar um tilefni tilkynningarinnar á fréttamannafundi Petteri Orpo forsætisráðherra í morgun. Þar kom fram að engir drónar hefðu fundist. Nokkur dæmi eru um að úkraínskir drónar hafi villst inn í lofthelgi nágrannaríkja að undanförnu, þar á meðal Finnlands. Finnsku embættismennirnir vildu ekki staðfesta að mögulegir flökkudrónar væru úkraínskir en sögðu að bandalagsríki hefðu varað stjórnvöld við að drónir með miklu magni sprengiefnis væri um 500 kílómetra frá Finnlandi og gæti vafrað inn í loftrými þess. Sérfræðingur sem finnska ríkisútvarpið ræddi við telur það benda til þess að viðvörunin hafi annað hvort komið frá Úkraínu eða Atlantshafsbandalaginu. Rússar segjast hafa skotið niður á fjórða hundrað úkraínskra dróna víðsvegar yfir Rússlandi í nótt. Finnland og Rússland deila rúmlega 1.300 kílómetra löngum landamærum. Viðbrögðin ekki ýkt Orpo varði ákvörðunina um að senda viðvörunina út í nótt. Ef það er klár hættu á að dróni búinn vopnum gæti farinn inn í þéttbýlasta hluta Finnlands þá held ég að það teljist ekki ýkt viðbrögð að auka viðbúnað,“ sagði Orpo við blaðamenn. Timo Herranen, hershöfðingi og yfirmaður finnska flughersins.Finnski flugherinn Timo Herranen, yfirmaður flughersins, sagði tilefni hafa verið til að ætla að mikil hætta væri á að stórir drónar búnir sprengjum gætu ratað inn í finnska lofthelgi. Orpo sagði ennfremur að áfram yrði hætta á að drónar gætu ratað inn í finnska lofthelgi svo lengi sem stríðið í Úkraínu héldi áfram.
Finnland Öryggis- og varnarmál Flug Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu NATO Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Fleiri fréttir Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Sjá meira