Icelandair enn og aftur í vandræðum Eiður Þór Árnason skrifar 14. maí 2026 22:37 Icelandair Cargo þota tekur á loft í Keflavík. Vísir/vilhelm Icelandair aflýsti í kvöld fraktflugi frá Keflavíkurflugvelli til Liege í Belgíu vegna skorts á flugmönnum. Boeing 767 fraktþotan átti að fara í loftið klukkan 20:20 í kvöld. Þetta er í þriðja sinn á rúmri viku sem ferð flugfélagsins er aflýst vegna áhafnarskorts og þá hefur öðru áætlunarflugi verið seinkað af sömu ástæðu.
Þetta staðfestir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við Vísi en mbl.is greindi fyrst frá. Forstjóri flugfélagsins hefur sakað flugmenn um að stunda óformlegar aðgerðir í tengslum við kjaraviðræður Icelandair við Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA). Formaður félagsins hefur hafnað þessu. Áætlunarflugi Icelandair til Kaupmannahafnar var aflýst 5. maí og ferð til Seattle þremur dögum síðar. Þá var flugi Icelandair frá Keflavíkurflugvelli til Brussel í Belgíu seinkað um rúma tvo tíma 11. maí vegna forfalla hjá áhöfn. Kjarasamningar FÍA við Icelandair féllu úr gildi í lok september og er kjaradeila þeirra komin inn á borð ríkissáttasemjara. Samningar eru sömuleiðis lausir við flugvirkja og flugþjóna. Vill að aðilar sýni ábyrgð Icelandair segir að þótt FÍA fullyrði að engar aðgerðir séu hafnar sem tengist kjaraviðræðum bendi margt til þess að um óformlegar aðgerðir sé að ræða, eftir nánari skoðun flugfélagsins. Vísbendingar séu um samantekin ráð og hefur Bogi Nils Bogason, forstjóri félagsins, kallað eftir því að allir aðilar sýni ábyrgð. Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, hefur sagt af og frá að félagið sé í óformlegum verkfallsaðgerðum. Félagið hafi um árabil varað við því að viðvarandi ástand líkt og nú geti komið upp vegna gríðarlegs álags á hóp flugmanna. „Þegar álagið er svo mikið þá er hætt við því að þessi sveigjanleiki, sem er sennilega það verðmætasta sem við hjá Icelandair eigum, að hann verði ekki eins aðgengilegur og áður hefur verið,“ sagði Jón Þór á mánudag. Hann hafnaði fullyrðingum Boga um að kröfur flugmanna í kjaraviðræðunum séu óraunhæfar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Icelandair Flug Keflavíkurflugvöllur Kjaramál Tengdar fréttir Icelandair grunar flugmenn um græsku Icelandair segir að þótt Félag íslenskra atvinnuflugmanna fullyrði að engar aðgerðir sé hafnar sem tengist kjaraviðræðum bendi margt til þess að um óformlegar aðgerðir sé að ræða, eftir nánari skoðun flugfélagsins. Vísbendingar séu um samantekin ráð og kallar forstjóri félagsins eftir því að allir aðilar sýni ábyrgð. 11. maí 2026 17:49 Flugi seinkað vegna forfalla í áhöfn Flugi Icelandair frá Keflavíkurflugvelli til Brussel í Belgíu seinkaði um rúma tvo tíma í morgun vegna forfalla hjá áhöfn. Frá þessu er greint á vef Ríkisútvarpsins en þar er haft eftir Guðna Sigurðssyni, upplýsingafulltrúa Icelandair, að hluti áhafnar hafi forfallast og ekki hafi verið bætt við á bakvakt. 11. maí 2026 11:35 Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Flugi Icelandair til Seattle var aflýst í gærkvöldi með skömmum fyrirvara vegna þess að ekki tókst að manna áhöfn. Upplýsingafulltrúi Icelandair segist ekki vita af verkfallsaðgerðum en þetta er í annað sinn í vikunni sem flugi er skyndilega aflýst vegna mönnunar. 9. maí 2026 10:37 „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Forstjóri Icelandair telur ekki líkur á því að áhafnarskortur sem leiddi til þess að flugferð til Kaupmannahafnar var aflýst í dag tengist kjaraviðræðum við flugmenn og flugvirkja. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) segir engar aðgerðir í gangi á vegum félagsins. Formaður Flugfreyjufélags Íslands tekur í sama streng. 5. maí 2026 21:14 Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Sjá meira
Icelandair grunar flugmenn um græsku Icelandair segir að þótt Félag íslenskra atvinnuflugmanna fullyrði að engar aðgerðir sé hafnar sem tengist kjaraviðræðum bendi margt til þess að um óformlegar aðgerðir sé að ræða, eftir nánari skoðun flugfélagsins. Vísbendingar séu um samantekin ráð og kallar forstjóri félagsins eftir því að allir aðilar sýni ábyrgð. 11. maí 2026 17:49
Flugi seinkað vegna forfalla í áhöfn Flugi Icelandair frá Keflavíkurflugvelli til Brussel í Belgíu seinkaði um rúma tvo tíma í morgun vegna forfalla hjá áhöfn. Frá þessu er greint á vef Ríkisútvarpsins en þar er haft eftir Guðna Sigurðssyni, upplýsingafulltrúa Icelandair, að hluti áhafnar hafi forfallast og ekki hafi verið bætt við á bakvakt. 11. maí 2026 11:35
Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Flugi Icelandair til Seattle var aflýst í gærkvöldi með skömmum fyrirvara vegna þess að ekki tókst að manna áhöfn. Upplýsingafulltrúi Icelandair segist ekki vita af verkfallsaðgerðum en þetta er í annað sinn í vikunni sem flugi er skyndilega aflýst vegna mönnunar. 9. maí 2026 10:37
„Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Forstjóri Icelandair telur ekki líkur á því að áhafnarskortur sem leiddi til þess að flugferð til Kaupmannahafnar var aflýst í dag tengist kjaraviðræðum við flugmenn og flugvirkja. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) segir engar aðgerðir í gangi á vegum félagsins. Formaður Flugfreyjufélags Íslands tekur í sama streng. 5. maí 2026 21:14