Reykjavík - Hið skapandi hjarta Guðmundur Ingi Þorvaldsson skrifar 12. maí 2026 21:40 Hjarta mannsins er skapandi. Skapandi hjarta sem slær. Hugtakið skapandi greinar vísar til atvinnugreina sem nýta skapandi hæfni, menningarauðlindir og hugverk til verðmætasköpunar. Greinarnar einkennast af samþættingu lista, menningar, tækni og viðskipta og gegna mikilvægu hlutverki í nútíma þekkingar- og hugverkahagkerfi. Skapandi greinar standa undir 3,5% af vergri þjóðarframleiðslu og það hefur verið sýnt fram á það aftur og aftur að opinber fjárfesting í þessum greinum skilar sér þrefalt til baka. Þá má nefna að ríflega helmingur erlendra ferðamanna sem hingað koma nefna íslenska menningu sem einn meginþátt af ástæðu heimsóknar sinnar til landsins. Afreksfólk okkar á sviði lista, menningar og íþrótta eru okkar besta landkynning. Skapandi hugsun er stærsta kraftaverk mennskunnar og líklegast síðasta óþrjótandi auðlind heimsins. Að vera skapandi er okkur öllum gefið í vöggugjöf og fólk er hamingjusamast þegar það fær að vera skapandi og sjá hugverk sín og hugmyndir verða að veruleika, hvers eðlis sem þær kunna að vera. Við njótum þess öll, hvert með sínu nefi, að dást að hugviti, sköpunarkrafti, listum, menningu, geimferðum, arkítektúr og fátt er það sem sameinar fólk og þjóðir betur en sameiginleg upplifun af menningarlegum þrekvirkjum stórum og smáum. Mannskepnan er félagsvera. Að tilheyra hóp og trúa á eitthvað sér æðra (fjölskylduna, samfélagið, íþróttaklúbbinn, þjóðina, æðri mátt) er henni mikilvægara en lífið sjálft. Að upplifa menningarviðburði saman mætir þessarri þörf. Að vinna saman að því að skapa menningarviðburði, enn betur. Félagsleg einangrun og einmannaleiki er faraldur sem Alþjóða heilbrigðisstofnunin hefur skilgreint sem lýðheilsuógn til jafns við reykingar, óhóflega áfengisneyslu og offitu. Íslendingar verja orðið að meðaltali aðeins um einni klukkustund á dag í samskipti við aðra augliti til auglitis og fagaðilar sem þjónusta ungmenni sem eiga við hverskonar erfiðleika að etja nefna að félagsleg einangrun, einmannaleiki, og afleiðingarnar, kvíði og þunglyndi, séu algengustu ástæður þess að þau leita sér aðstoðar. Skjámiðlar, hraði samfélagsins og sjálfvirknivæðing þjónustu er með öðrum orðum að ganga af okkur dauðum. Besta meðalið við þessu er virk þátttaka í félags-, íþrótta-,-eða menningarstarfi, hvort sem það er atvinna fólks eða tómstund, og það hefur verið marg sýnt fram á það að hver króna sem sett er í hverskonar fyrirbyggjandi aðgerðir gegn áhættuhegðun eða heilbrigðisvanda, skilar sér sjöfallt til baka. Þannig sýnir t.a.m nýleg rannsókn í Bretlandi, framkvæmd af NHS, fram á að hver heimsókn í leikhús, sparar bresku þjóðinni um 12 pund í heilbrigðiskostnað. Það þýðir um 100 milljónir punda árlega eða 17 milljarða. Reykjavík er höfuðborg landsins og á að vera hjarta þjóðarinnar; hið skapandi hjarta þjóðarinnar. Reykjavík á að dæla peningum í listir, menningu, hreyfingu og skapandi greinar fyrir fólk á öllum aldri óháð stétt, stöðu eða bakgrunni. Fyrir það fyrsta vegna þess að þetta skapar ómetanleg menningarverðmæti og er það sem gerir Reykjavík að eftirsóknarverðum stað að búa á. Í öðru lagi vegna þess að það bætir lýðheilsu og 1 hamingju, og í þriðja lagi vegna þess að það sparar borginni stórar fjárhæðir til lengri tíma. Þetta þarf ekki endilega að vera flókið eða dýrt. Það er nóg til af húsnæði í borginni sem stendur autt. Skapandi fólk þarf yfirleitt ekki annað en aðstöðu, samastað. Sköpunarkraftur mannsins sér um rest. Skapandi greinar eru ólíkar annarri atvinnustarfsemi að því leiti að það er erfitt að spá fyrir um hvaða fræ verða að arðbærri uppskeru, og þess vegna er raunin sú að þessar greinar eru yfirleitt fyrstar til mæta niðurskurði þegar excel fólkið panikkerar. En fegurðin er einmitt í ófyrirsjánleikanum og því meira sem við sáum og sjáum til þess að hinn frjói mannshugur fái þá næringu/aðstöðu sem hann þarf til að vaxa og dafna, því meiri eru líkurnar á því að við uppskerum ríkulega. Og hvort sem að verkefnin enda sem hæf til útflutnings eða ekki, eru þau besta forvörnin gegn hverskyns krankleikum. Hættum að eyða peningum íbúa í rándýrar fötur til að taka við lekanum og gerum við þakið. Framsókn vill breyta forgangsröðuninni í borginni og setja skapandi greinar í forgang fyrir fólk á öllum aldri. Ég skora á áhugasama að skoða málefna skrá okkar. Höfundur er leikari, leikstjóri og tónlistarmaður og skipar 8.sæti á lista Framsóknar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framsóknarflokkurinn Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar