Móðurást eða menningarhrun Einar Baldvin Árnason skrifar 10. maí 2026 13:00 Í Mæðragarðinum við Lækjargötu stendur afsteypa af fallegu en látlausu listaverki eftir Nínu Sæmundsson. Verkið nefnist Móðurást og er af móður sem heldur barni sínu þétt að sér. Þegar verkið var sett upp árið 1926 var því komið fyrir í garði sem var hugsaður sérstaklega fyrir börn og mæður þeirra en hann var töluvert stærri þá en í dag og í kringum hann var myndarlegur veggur. Bæði verkið, stallur þess og sú umgjörð sem það hlaut, bera íslensku samfélagi þess tíma fagurt vitni. Það var samfélag sem vildi upphefja mæður, falleg listaverk og móðurástina sjálfa. Nú, 100 árum síðar, þá er Mæðragarðurinn ekki nema svipur hjá sjón; veggurinn er horfinn og garðurinn minni og fáum ef nokkrum kemur til hugar að setjast þar til að sækjast eftir skjóli. Þessi vanræksla endurspeglar tíðarandann sjálfan sem einkennist fyrst og fremst á skeytingarleysi eða jafnvel fjandsemi gagnvart öllum æðri gildum. Félagsmótun eða frelsi? Eitt áhugaverðasta mál í yfirstandandi sveitastjórnarkosningum er umræða um heimgreiðslur frá sveitarfélagi til foreldra sem velja að vera heima með börnum sínum í stað þess að senda þau í dagvistun eða á leikskóla. Slíkt kerfi er nú þega við lýði m.a í Kópavogi en í Reykjavík tala amk. Miðflokkur, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur fyrir því að koma því á fót. Heimgreiðslur eru einföld leið til þess að minnka álag á leikskólum og jafnframt tryggja foreldrum frelsi til þess að taka virkan þátt í uppeldi barna sinna.. Stefnan er góð og væri ekki umdeild í heilbrigðu samfélagi en það má segja að viðbrögðin við henni hafi verið afar afhjúpandi fyrir það bága sálarástand sem einkennir jafnan „kvennabaráttu” og stjórnmál á Íslandi. Dómsmálaráðherra Viðreisnar brást t.d ókvæða við í Facebook-færslu og sakaði Miðflokkinn um að selja snákaolíu. Ráðherra vill meina að heimgreiðslur hafi varanleg áhrif á tekjur kvenna vegna þess þær væru líklegri en karlar til að velja að vera heima með börn sín. Hún vísaði þar m.a í tap á áunnum réttindum og segir kerfið til þess fallið að draga úr frelsi kvenna til lengdar. Lífeyrisréttindi eru þó mannanna verk og það væri lítið mál að breyta hvernig heimavinnandi konur vinna sér þau inn ef viljinn væri fyrir hendi, enda væri það bæði eðlilegt og æskilegt að heimavinnandi mæður myndu njóta ríkulegs lífeyris fyrir framlag sitt til samfélagsins. Þetta er þó varla það sem dómsmálaráðherra og aðrar keimlíkar „kvenréttindakonur” hræðast. Þær hræðast miklu frekar móðureðlið sjálft og hvað meginþorri kvenna myndi mögulega velja sér í kerfi sem gæfi þeim raunverulegt val. þ.e það ríkidæmi sem felst í samveru með börnum sínum á uppvaxtarárum þeirra. Hér færi betur að ráðherra myndi hlusta á það sem Viðreisnarfólk segir sjálf svo oft, þó í yfirleitt í öðru og verra samhengi: „Við treystum konum.” Traust virðist þó ekki vera í boði í þessu tilfelli. Það skyldi þó ekki vera að hugmyndir Viðreisnar snúist frekar um félagsmótun en raunverulegt frelsi? Heimgreiðslur eða hórdómur Það er kaldhæðnislegt að í sömu andrá og dómsmálaráðherra ræðst harkalega að heimgreiðslum þá tali hún um að berjast harðar gegn vændi. Það er auðvitað mikilvægt að gera það, en eins og venjulega vill Viðreisn ekki gera neitt nema í vera í stríði við náttúrulögmálin á meðan. Dómsmálaráðherra boðar nefnilega eingöngu aukna hörku gegn kaupum en ekki sölu vændis. Eins og eftirspurn sé aðeins vandamál en ekki framboðið sjálft, þegar þessir tveir þættir haldast augljóslega í hendur. Framboðshliðin blómstrar sem aldrei fyrr, þökk sé bæði lögleiðingu vændis frá árinu 2009 og áróðursherferðum ríkisstyrktra jölmiðla sem virðast ekki þrá neitt heitar en að lokka íslenskar stúlkur til þess að selja líkama sinn. Þessa síðustu viku hefur Heimildin t.d gert lítið annað en að fegra vændi með viðtölum við vændiskonur. Ein þeirra er „ljóðskáld í súlufitness og kynlífsþjónustu á netinu” og önnur „kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks”. Vandamálin eru víst viðhorf fólks frekar en iðnaðurinn sjálfur sem einkennist umfram allt af ofbeldi, þrældómi og almennri niðurlægingu kvenna. Hér er hinsvegar víst langbest að treysta bara konum. Treysta þeim til að vera vændiskonur. Ég held þó það geri sér flestir grein fyrir því að konur leiðast aðeins út í vændi þegar þær eru neyddar til þess eða eru í einhverskonar andlegri eða líkamlegri neyð. Slíkar konur eiga miskunn og mildi skilda en það er engin náð fólgin í því að ríkisvaldið leggi blessun sína yfir vændi, hvað þá að fjölmiðlar fegri myndina og lokki þar með fleiri konur í ánauð. Það er ótalmargt sem þarf að gera áður en íslenskt samfélag getur talist heilbrigt. Það er einfaldlega á hvolfi þegar heimgreiðslur eru hættulegar frelsi kvenna en sala á líkama þeirra er æskileg. Við gætum þó byrjað á því að heyja kvennabaráttu á eðlilegum forsendum og tala fyrir- og styðja stefnur sem bæta samfélagið í heild í stað þess að leiða það til glötunar. Síðan mætti jafnvel huga að því endurreisa Mæðragarðinn við Lækjargötu til fyrri vegs og virðingar. Stækka hann og hlaða vegg í kring svo nýbakaðar mæður geti sótt sér þar skjól og fegurð eins og alltaf stóð til. Höundur er listamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar