Bonnie Tyler haldið sofandi eftir garnarof Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. maí 2026 13:43 Bonnie Tyler keppti fyrir hönd Breta í Eurovision árið 2013. Vísir/EPA Velsku tónlistarkonunni Bonnie Tyler er haldið sofandi meðan hún jafnar sig eftir bráðaaðgerð á þörmum. Tyler var flutt með hraði á spítala í Faro í Portúgal á miðvikudag vegna garnarofs og gekk aðgerðin vel fyrir sig.
Matt Davis, talsmaður söngkonunnar, greindi frá ástandi hinnar 74 ára Tyler í tilkynningu. „Bonnie er haldið sofandi af læknum til að stuðla að bata hennar,“ sagði í tilkynningunni. „Við vitum að þið óskið henni öll góðs bata og óskum eftir næði á þessum erfiða tíma. Við munu senda frá okkur aðra tilkynningu þegar við getum,“ sagði jafnframt í tilkynningunni. Fréttir af aðgerð Tyler bárust á miðvikudag þegar það birtist færsla á Instagram-síðu söngkonunnar um að farið hefði verið með hana í hraði á spítala í Faro, skammt frá heimili hennar, vegna garnarofs sem getur verið lífshættulegt. „Aðgerðin gekk vel og hún er nú að jafna sig,“ sagði í tilkynningunni. Bonnie Tyler, sem heitir réttu nafni Gaynor Hopkins, öðlaðist heimsfrægð á níunda áratugnum með slagaranum „Total Eclipse Of The Heart“ sem fór efst á vinsældalista víða um heim. Tyler er þekkt fyrir sína hásu rödd og hefur gefið út fjölda þekktra laga í gegnum tíðina, svo sem „Holding Out For A Hero“ og „If You Were A Woman (And I Was A Man“. Söngkonan stefnir á Evróputúr síðar á árinu í tilefni af því að fimmtíu ár eru liðin frá því hún gaf út fyrstu smáskífu sína, „Lost In France“ sem rataði á vinsældalista víða um heim. Tyler átti að troða upp í Möltu og Þýskalandi síðar í þessu mánuði en óvíst hvort verði af því.
Tónlist Wales Portúgal Hollywood Tengdar fréttir Bonnie Tyler kemur fram á Secret Solstice Söngkonan fræga Bonnie Tyler mun koma frá á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í sumar en hátíðin fer fram í Laugardalnum 21.-24. júní. 7. febrúar 2018 12:30 Sjáðu framlag Bonnie Tyler í Eurovision Bonnie Tyler hefur verið valin til þess að flytja framlag Breta í Eurovision í vor. Söngkonan hefur verið ein sú vinsælasta í heimi allt frá áttunda áratug síðustu aldar. Vonir standa til að henni muni ganga betur en Engelbert Humperdinck í fyrra, en hann var í næstsíðasta sæti. Eitt þekktasta lag Bonnie Tyler er líklegast Total Eclipse of a Heart 7. mars 2013 10:03 Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Fleiri fréttir Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Sjá meira
Bonnie Tyler kemur fram á Secret Solstice Söngkonan fræga Bonnie Tyler mun koma frá á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í sumar en hátíðin fer fram í Laugardalnum 21.-24. júní. 7. febrúar 2018 12:30
Sjáðu framlag Bonnie Tyler í Eurovision Bonnie Tyler hefur verið valin til þess að flytja framlag Breta í Eurovision í vor. Söngkonan hefur verið ein sú vinsælasta í heimi allt frá áttunda áratug síðustu aldar. Vonir standa til að henni muni ganga betur en Engelbert Humperdinck í fyrra, en hann var í næstsíðasta sæti. Eitt þekktasta lag Bonnie Tyler er líklegast Total Eclipse of a Heart 7. mars 2013 10:03