Hafnarfjörður er heimili okkar allra Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar 6. maí 2026 09:10 Hafnarfjörður er frábær bær. Hér er gott að búa, starfa og ala upp börn. En eitt af því sem gerir Hafnarfjörð sérstaklega sterkan er fjölbreytileikinn. Í upphafi árs 2026 voru Hafnfirðingar 33.729 talsins. Þar af voru 6.217 íbúar með erlent ríkisfang eða 18,4% bæjarbúa. Það þýðir að nærri fimmti hver Hafnfirðingur kemur með annan menningarlegan bakgrunn, annað tungumál, aðra reynslu og ný sjónarhorn inn í samfélagið okkar. Fjölmennustu hóparnir koma meðal annars frá Póllandi, Litháen, Rúmeníu, Úkraínu, Lettlandi, Venesúela og Portúgal. Þessi fjölbreytni birtist í skólunum okkar, á vinnustöðum, í íþróttafélögum, í menningarlífi, í hverfunum og á leikvöllunum. Hún gerir bæinn líflegri, víðsýnni og sterkari. Fjölbreytnin er styrkur Hafnarfjarðar Hafnarfjarðarbær hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á að byggja upp þjónustu, samráð og verkefni sem styðja við inngildingu og þátttöku allra íbúa. Þar skiptir máli að nýir íbúar finni að þeir séu velkomnir, fái upplýsingar, geti tekið þátt og hafi raunveruleg tækifæri til að verða virkir þátttakendur í bæjarlífinu. Fjölmenningarráð Hafnarfjarðar gegnir þar mikilvægu hlutverki. Ráðið veitir bæjaryfirvöldum ráðgjöf, kemur sjónarmiðum innflytjenda á framfæri og vinnur að auknu samráði milli íbúa, hagsmunaaðila, atvinnulífs og bæjarins. Þá starfar samráðshópur fjölmenningar innan bæjarkerfisins sem styður við samvinnu ólíkra sviða, miðlun þekkingar og þróun þjónustu. Fjölskyldu- og barnamálasvið sinnir heildstæðri þjónustu við flóttafólk og innflytjendur, meðal annars með félagslegri ráðgjöf, stuðningi við húsnæðismál, fræðslu, réttindi, nám og félagslega þátttöku. Brúarsmiðir vinna síðan mikilvægt starf í leikskólum, grunnskólum, frístunda- og íþróttastarfi. Þeir byggja brýr milli heimila og skóla, styðja foreldra og starfsfólk og auðvelda samskipti á tungumálum eins og íslensku, ensku, pólsku, arabísku og spænsku. Þá má nefna frístundastyrk Hafnarfjarðarbæjar sem styður börn og ungmenni til þátttöku í íþróttum, tómstundum og tónlistarnámi. Slíkur stuðningur skiptir miklu máli fyrir jöfn tækifæri, því börn eignast vini, læra tungumálið hraðar og verða hluti af samfélaginu í gegnum leik, hreyfingu og samveru. Menningarstofnanir bæjarins leggja líka mikið af mörkum. Bókasafn Hafnarfjarðar býður upp á safnkost á mörgum tungumálum, fjölmenningarlega viðburði og aðstöðu fyrir lestur, fundi og námskeið. Hafnarborg hefur sömuleiðis unnið að fjöltyngdum viðburðum og verkefnum sem auka aðgengi ólíkra hópa að menningu og listum. Verkefni eins og „Velkomin heim“, „Living in Hafnarfjörður“, lýðræðisvinnustofur fyrir íbúa af erlendum uppruna og garðræktarverkefnið „Uppskera“ sýna einmitt hvernig hægt er að tengja fólk saman með einföldum, mannlegum og árangursríkum hætti. Íslenskan er lykillinn að virkari þátttöku Við getum verið stolt af því sem hefur verið gert. En við megum ekki staðnæmast. Fjölmenningarlegt samfélag þarf stöðuga ræktun. Það þarf skýra stefnu, góðar upplýsingar, aðgengilega þjónustu og raunveruleg tækifæri fyrir alla til þátttöku. Eitt mikilvægasta verkefnið fram undan er að efla íslenskukennslu. Íslenskan er lykill að samfélaginu. Hún opnar dyr að vinnumarkaði, námi, vináttu, lýðræðislegri þátttöku og sjálfstæði í daglegu lífi. Þess vegna skiptir miklu máli að íslenskunám sé aðgengilegt, hagnýtt og tengt raunverulegum aðstæðum fólks. Hafnarfjarðarbær hefur þegar stigið mikilvæg skref með verkefninu „Gefum íslensku tíma“, sem miðar að því að efla íslenskukunnáttu starfsfólks leikskóla sem talar íslensku sem annað mál. Verkefnið byggir á starfstengdu námi, tungumálamentorum og virkri notkun íslensku í daglegu starfi. Einnig er í undirbúningi samstarf við tungumálaappið ,,Bara tala“ þar sem starfsfólki bæjarins verður veittur aðgangur að íslenskuþjálfun með það að markmiði að styrkja sjálfstraust og færni í samskiptum. Næstu skref þurfa að vera enn markvissari. Við þurfum að efla íslenskukennslu fyrir fullorðna, styðja betur við börn með fjöltyngdan bakgrunn, styrkja foreldra í samskiptum við skóla og frístundastarf, bæta aðgengi að upplýsingum á fleiri tungumálum og tryggja að fólk þekki réttindi sín og skyldur. Við þurfum líka að halda áfram að hvetja fólk til lýðræðislegrar þátttöku. Það skiptir máli að allir íbúar upplifi að rödd þeirra skipti máli, ekki bara á fjögurra ára fresti, heldur alla daga. Við eigum að halda áfram að vera bær sem tekur vel á móti fólki. Bær sem gerir kröfur en veitir líka stuðning. Bær sem býður fólk velkomið en býður því líka að taka þátt, hafa áhrif og leggja sitt af mörkum. Þannig byggjum við Hafnarfjörð áfram sem heimili okkar allra. Höfundur er félagsráðgjafi og skipar 4. sæti á lista Framsóknar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar