Það er ekki víst að þetta reddist Kristinn Árni L. Hróbjartsson og Hafsteinn Hauksson skrifa 6. maí 2026 07:40 Við Íslendingar reiðum okkur á úrræðagóða viðbragðsaðila, lipra ákvarðanatöku og vilja til að láta hluti ganga upp, og þannig reddast málin oft - jafnvel án mikils undirbúnings. Þannig redduðust tvær nýlegar krísur tengdar alþjóðlegum aðfangakeðjum, fyrst í kjölfar heimsfaraldurs og aftur eftir innrás Rússa í Úkraínu. Nú glímir heimurinn við þriðja framboðsáfallið á fimm árum, í þetta skiptið vegna átaka í Persaflóa og lokunar skipaumferðar um Hormússund. Þótt Ísland flytji tiltölulega lítið beint inn frá Flóaríkjunum, þá bendir ný greining sem við unnum fyrir Vörðu, hugveitu um þjóðaröryggi og viðnámsþrótt, til þess að meira en helmingur alls innflutnings til Íslands sé í vöruflokkum sem eiga á hættu að raskast verulega og að mun meira en bara olía sé undir. Þessi röð framboðsáfalla á undanförnum árum undirstrikar hvernig tíðni truflana á alþjóðlegu viðskiptaumhverfi hefur aukist margfalt. Það kallar á forsjálni í stað reddinga. Meira en (bara) olía Hnattvæðing viðskipta felur í sér að vörur sem ganga kaupum og sölum á alþjóðlegum mörkuðum verða fyrir áhrifum þegar framboð á heimsvísu skerðist. Verð á olíu sem er unnin í Noregi hefur til dæmis hækkað vegna framleiðsluskerðingar í Persaflóa. Þótt við séum fjarri vígaslóðum finnum við samt fyrir hækkun olíuverðs á dælunni. Vonandi einskorðast áhrifin við verðhækkanir, en langvarandi truflun á skipaumferð í Persaflóa eykur hættuna á að afhending aðfanga skerðist, tefjist verulega eða falli jafnvel alveg niður, sem allt leiðir til skorts. Þar er eldsneyti ekki eini vöruflokkurinn sem er í húfi. Um þriðjungur helíumframleiðslu heimsins kemur frá svæðinu, en helíum er nauðsynlegt til framleiðslu hátæknivara á borð við örgjörva og til reksturs segulómtækja á spítölum. Þá er um þriðjungur áburðar upprunninn frá svæðinu. Þrátt fyrir að á Íslandi hafi forsjálni (eða heppni?) orðið til þess að íslenskir heildsalar höfðu tryggt sér nægar birgðir fyrir sumarið, flytjum við inn mikið magn af matvælum sem þurfa áburð til framleiðslu. Plast er unnið úr hráolíu og þó að við notum ekki lengur plaströr þá reiðum við okkur á plast í margvíslegri mikilvægri starfsemi, til dæmis þegar kemur að einnota lækningavörum og umbúðum og pakkningum fyrir ýmsar útflutningsvörur. Innflutningseyjan Við reiðum okkur á innflutning, bæði til að halda samfélaginu gangandi og til að framleiða þær vörur sem við flytjum út og skapa gjaldeyri. Í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu gaf Þjóðaröryggisráð út skýrslu um neyðarbirgðir og lagði til að einum aðila yrði falið að byggja upp þekkingu og getu til að stuðla að auknu aðfangaöryggi, meðal annars með gagnaöflun og uppbyggingu nauðsynlegra öryggisbirgða til lengri tíma. Þótt réttur lærdómur hafi verið dreginn af síðustu aðfangakrísu þá hefur skort á eftirfylgni, því þessi aðili hefur enn ekki orðið að veruleika. Samstarf er lykilatriði Innflutningur lykilaðfanga er í dag að langmestu leyti á hendi einkaaðila. Sömu einkaaðilar búa oft að bestu þekkingu á áhættustýringu birgða og ómetanlegum markaðstengslum sem gefa góða mynd af þróun mála. Sú þekking ætti að nýtast við áætlanagerð og greiningar. Því er algjört grundvallaratriði að stjórnvöld og innflytjendur rækti samband sem miðar að því að efla viðnámsþrótt landsins. Þjóðaröryggi er ekki einkamál stjórnvalda heldur samstarfsverkefni okkar allra. Skýr ábyrgð og einbeitt starf Í dag er ábyrgð á birgðaöryggi dreifð og óskýr. Engin ein stofnun eða eining ber ábyrgð á greiningu, þróun þekkingar og reynslu, samstarfi við systurstofnanir erlendis og uppbyggingu og umsýslu neyðarbirgða. Við ættum að líta til þjóða á borð við Finna og Svisslendinga þar sem þessi verkefni heyra undir sérhæfðar stofnanir. Öryggisbirgðir ættu að vera meginverkefni eins aðila fremur en hliðarverkefni á víð og dreif um kerfið. Látum ekki „góða“ krísu fara til spillis Ófyrirsjáanleiki á alþjóðasviðinu er nú viðvarandi ástand. Stríðandi fylkingar og alþjóðapólitískir samkeppnisaðilar nýta viðskipti og birgðakeðjur sem vopn í köldum átökum. Í litlu landi eins og okkar þarf lítið að fara úrskeiðis til að það hafi langvarandi áhrif. Raunverulegt fullveldi er háð því að þjóðfélagið verði ekki óstarfhæft þegar aðföng eru tekin í gíslingu. Látum þessa krísu ekki fara til spillis og setjum neyðarbirgðir í forgang. Kristinn Árni er meðstofnandi og forstöðumaður hugveitunnar Vörðu og Hafsteinn er aðalhagfræðingur Kviku banka. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar