Borgin sem hætti að hlusta 1. maí 2026 14:16 Húsnæðisvandinn í Reykjavík snýst ekki bara um fjölda íbúða. Hann snýst fyrst og fremst um það hvort við erum að byggja íbúðir fyrir fólk sem er til, hefur áhuga á að búa í borginni eða flytja til hennar. Búið er að skapa ástand þar sem gengið er út frá því að kerfið viti betur en íbúarnir hvernig þeir vilja búa. Skipulagið ekki í takt við raunveruleikann HMS birti á dögunum niðurstöður nýrrar búsetukönnunar. Niðurstöðurnar staðfesta það sem margir hafa lengi upplifað: skipulag borgarinnar er ekki í takt við óskir og þarfir fólks. Reykjavíkurborg lagði áður metnað í að hlusta á íbúa og mældi húsnæðis- og búsetuóskir. Þessi gögn voru grunnur að skipulagi sem átti að endurspegla þarfir og áhuga fólks. Síðasta áratug eða svo hætti borgin að spyrja Reykvíkinga hvernig þeir vildu búa og fór að ákveða það sjálf. Niðurstaðan er að borgin er að byggja fyrir fortíð sem er liðin. Hljóð og mynd fer ekki saman Í búsetukönnun HMS er niðurstaðan skýr. Fólk vill minni íbúðir - ekki risastór fjölbýlishús, græn svæði, birtu og veruleikatengingu í magni bílastæða fyrir sig og sína. Þetta eru ekki jaðaróskir heldur vilji yfirgnæfandi meirihluta. Og þetta heyrum við í Viðreisn daglega í þeirri kosningabaráttu sem nú stendur yfir. Gögnin vísa veginn Þótt Reykjavík sé einstök er hún í mörgu lík höfuðborgum hinna Norðurlandanna. Við erum hins vegar um 15 árum á eftir í lýðþróun. Höfuðborgir Norðurlandanna eiga það þó sameiginlegt að eftirspurnin er mest eftir minni eignum. Í hinum Norðurlöndum er um 60 prósent íbúða undir 80 fermetrum en hlutfallið hér á höfuðborgarsvæðinu er 23%. Stærðin skiptir máli Afleiðingar þess að byggja of dýrar íbúðir, eins og raungerst hefur í Reykjavík undanfarin ár, blasa við. Færri komast inn á markaðinn, fólk situr fast í óhentugu húsnæði, hreyfanleiki minnkar og unga fólkið flyst annað. Fleiri litlar og ódýrar eignir gera unga fólki kleift að komast inn á markaðinn og eldra fólki kleift að færa sig úr stóru húsunum. Minni eignir halda hringrás markaðarins á lífi. Þegar skortur er á þeim lokast fólk inni í kerfinu. Fyrstu eignar verkefni í fókus Á dögunum var höggvið á hnút sem lengi hefur staðið fastur varðandi uppbyggingu á ríkislóðum í borginni. Þar má sérstaklega hrósa fjármálaráðherra og varaformanni Viðreisnar, Daða Má Kristóferssyni, fyrir að koma þeim lóðum upp úr skotgröfum í samvinnu við borgina. Þetta eru allt að 1400 íbúðir. Við í Viðreisn leggjum áherslu á að á þessum reitum rísi íbúðir sem fólk vill búa í og hefur efni á. Þarna væri t.a.m. hægt að fara í sérstakt fyrstu eignar verkefni fyrir unga fólkið. Með fleiri minni eignum á viðráðanlegu verði komum við meiri hringrás á markaðinn sem við nauðsynlega þurfum á að halda. Snúum við í húsnæðismálum Það skiptir okkur í Viðreisn miklu máli að næsta kynslóð Reykvíkinga hafi efni á því að búa í borginni og vilji búa í borginni. Eins er mikilvægt að eldra fólk geti flutt sig úr stórum eignum í minni eignir sem þau langar að búa í og við nýtum þannig innviði sem best. Lykillinn að þessu er að vera í góðu samtali við íbúa, uppbyggingaraðila og markaðinn og byggja það samtal á gögnum og mælingum. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björg Magnúsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Viðreisn Reykjavík Mest lesið Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar