Skýr í svörum aðspurður um möguleika KR á Íslandsmeistaratitli Aron Guðmundsson skrifar 1. maí 2026 10:02 Hermann Hreiðarsson telur að KR verði í toppbaráttu Bestu deildarinnar líkt og Valur Vísir/Samsett Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals á von á fjörugum leik þegar hans menn taka á móti KR í Reykjavíkurslag annað kvöld. KR verði í toppbaráttu eins og Valur. „
Gríðarleg spenna. Frábært að fá þennan leik svona snemma í mótinu. Á laugardagskvöldi. Vonandi verður bara fullt í stúkunni og alvöru fótboltaleikur sem boðið verður upp á,“ segir Hermann í samtali við Val Pál Eiríksson, íþróttafréttamann Sýnar. Klippa: Hemmi Hreiðars um Reykjavíkurslaginn við KR Hvernig leik má búast við? „Ég hugsa að þetta verði í takt við það sem hefur verið boðið upp á hjá báðum liðum. Við höfum verið að keyra upp tempóið og KR spilar á gríðarlegu tempói. Ég hugsa að þetta verði frábær fótboltaleikur.“ Lið KR hefur farið afar vel af stað í Bestu deildinni þetta tímabilið eftir að hafa verið í fallbaráttu á því síðasta. Lærisveinar Óskars Hrafns hafa unnið alla leiki sína til þessa í deildinni og verma toppsætið. Aðspurður hvort KR séu Íslandsmeistaraefni, verði í titilbaráttunni, taldi Hermann svo vera. „Það segir sig sjálft. Þar sem þeir eru staddir í dag, skora mikið af mörkum og spila agressívan fótbolta. Þeir eru komnir langt, með alla heila, sterka leikmenn og frábæra fótboltamenn. Það er engin spurning að þeir verði í toppbaráttu.“ En þið? „Að sjálfsögðu verðum við í toppbaráttu,“ svaraði Hermann en Valsmenn hafa komist á gott skrið í undanförnum leikjum eftir brösótta byrjun. Lærisveinar Hermanns hafa nú unnið þrjá leiki í röð og geta með sigri annað kvöld jafnað topplið KR að stigum. Viðtalið við Hermann Hreiðarsson, þjálfara Vals, má sjá í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni. Leikur Vals og KR á N1-vellinum á Hlíðarenda hefst klukkan korter yfir sjö annað kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.
Besta deild karla Valur KR Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Sjá meira