Gæði kennslu: Læsiskennsla á unglingastigi Anna Kristín Sigurðardóttir, Berglind Gísladóttir, Birna María B. Svanbjörnsdóttir, Guðmundur Engilbertsson, Hermína Gunnþórsdóttir, Jóhann Örn Sigurjónsson, Rannveig Oddsdóttir, Rúnar Sigþórsson og Sólveig Zophoníasdóttir skrifa 7. maí 2026 09:01 Í þessari fjórðu og síðustu grein í greinaflokki um gæði kennslu fjalla höfundar um læsiskennslu á unglingastigi. Hjá flestum þjóðum er læsi talið einn af hornsteinum farsællar menntunar og grundvallarforsenda þess að ná árangri í hvaða námsgrein sem er. Ísland er þar engin undantekning. Læsi er einn af grunnþáttum menntunar í íslenskri menntastefnu og kennsla í læsi á að fléttast inn í allar námsgreinar. Læsi gegnir einnig mikilvægu hlutverki til að ná viðmiðum um lykilhæfni nemenda sem sett eru í Aðalnámskrá grunnskóla. Lykilhæfnin miðar að því að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda og búa þá undir þátttöku í lýðræðissamfélagi og frekara nám. Læsi í þessum skilningi gengur mun lengra en sú tæknilega færni sem nemendur þurfa til að geta umskráð texta. Samkvæmt skilgreiningum OECD og UNESCO felur það í sér hæfni til að greina, skilja, túlka og nota ritað mál í mismunandi samhengi. Læsi er auk þess ein af meginundirstöðum menntunar og forsenda þess að geta metið og nýtt sér fjölbreyttar upplýsingar, til dæmis úr rituðum texta, og miðlað upplýsingum til annarra. Læsi er því langt frá því að vera fullmótuð þegar einstaklingur hefur náð þeim áfanga að geta lesið lipurt því hann þarf einnig að þróa lesskilning sinn, og færni í ritun og miðlun. Þess vegna er nauðsynlegt að kennarar láti ekki staðar numið í læsiskennslu þegar nemendur hafa náð tæknilegri færni heldur sé markviss læsiskennsla óaðskiljanlegur hluti af kennsluskipulagi kennara í öllum námsgreinum og á öllum skólastigum. Þetta er meðal annars undirstrikað í nýrri skýrslu um árangursríka starfshætti í læsiskennslu sem unnin var af alþjóðlegu teymi læsisfræðinga. Árangursrík læsiskennsla Kennslufræðingar á sviði læsis leggja áherslu á að kennarar skipuleggi fjölbreyttar lestrarathafnir sem mæta misjöfnum þörfum nemenda; vinni markvisst með sköpun merkingar, ritun og munnlega tjáningu og séu fundvísir á áhugaverða texta til að leggja til grundvallar kennslunni. Rannsóknir sýna einnig að kennsluaðferðir sem byggjast á samræðum, ásamt markvissum aðferðum við að byggja upp lesskilning nemenda og kenna þeim að sækja upplýsingar í texta skila bestum árangri. Ritun nemenda er einnig góð leið til að efla lesskilning. Hún gagnast nemendum ekki einungis í þeirra eigin textagerð heldur hjálpar hún þeim líka að skilja texta sem aðrir hafa skrifað. Textavinna á unglingastigi grunnskóla Samræður í skólastofunni og kennsla með textum þar sem nemendur þurfa að beita greinandi rökhugsun er meðal þess sem talið er einkenna góða kennslu. Í íslenskum hluta QUINT-rannsóknarinnar var kannað hvernig unnið var með texta í 76 kennslustundum íslensku og samfélagsfræði í 8. bekk. Við þá athugun fundust samtals 24 verkefni þar sem textar voru notaðir á heildstæðan hátt þannig að viðfangsefni nemenda mátti tengja við framangreindar skilgreiningar á læsi og læsisnámi. Vinnan við hvert verkefni stóð í mislangan tíma, frá í einni kennslustund, eða stærstum hluta hennar, upp í fjórar kennslustundir. Textarnir í þessum viðfangsefnum voru flokkaðir í fjóra flokka: bókmenntatexta, fræðilega texta í námsbókum, upplýsingatexta sem skrifaðir eru fyrir almenning og annan texta, þar sem einkum var um að ræða ritun nemenda. Greining á vinnulagi nemenda leiddi í ljós að í helmingi þessara heildstæðu verkefna voru viðfangsefni nemenda yfirborðsleg; texti var lesinn en lítið unnið með hann eða texti var lesinn heima og nemendur svöruðu spurningum um þekkingaratriði, munnlega eða skriflega. Í hinum helmingi verkefnanna unnu nemendur hins vegar með textann á fjölbreyttan og skapandi hátt í því augnamiði að skilja textann betur og ná færni í að beita hugtökunum sem fjallað var um í stærra samhengi þannig að úrvinnslan reyndi á sjálfstæði, sköpun og ályktunarhæfni nemenda. Í þessum verkefnum mátti sjá dæmi sem hægt er að læra af til að styrkja skapandi vinnu sem byggð er á textalæsi. Til dæmis vel útfært viðfangsefni sem samþætti samfélagsfræði og íslensku og sýnir vel að textavinna þarf ekki – og á ekki – að vera bundin við íslensku. Einnig sáust dæmi um hvernig hægt er að vinna á skapandi hátt bæði með bókmenntatexta, fræðilega texta og upplýsingatexta með því að kafa í þá, ræða um þá undir handleiðslu kennara og tjá, munnlega og skriflega, skilning sinn og viðbrögð við því sem í textunum stendur. Dæmin sýna einnig hvernig hægt er að kenna nemendum aðferðir við að lesa og leita upplýsinga í textum sem fjalla um flókin málefni og kynna þær fyrir öðrum og hvernig hægt er að leiðbeina þeim við að leita upplýsinga á markvissan hátt á vef og setja þær fram í rituðu máli með tiltekinn lesendahóp í huga. Loks er ástæða til að vekja athygli á því að mörg verkefnanna fólu í sér mikla vitsmunalega áskorun fyrir nemendur. Þau reyndu á túlkun og ályktanir og greinandi hugsun þar sem nemendur þurftu að taka saman upplýsingar, leggja mat á þær og rökstyðja niðurstöður og afstöðu. Lokaorð Í framangreindum niðurstöðum eru skýr dæmi um markvissa textavinnu nemenda á unglingastigi. Rannsóknin svarar hins vegar ekki þeirri mikilvægu spurningu hvers vegna slík viðfangsefni voru ekki fleiri en raun ber vitni og hvað það er sem í raun og veru stýrir áherslum í kennslunni. Af niðurstöðunum má draga þá ályktun að þörf sé á að fjölga viðfangsefnum, í íslensku, samfélagsfræði og öðrum námsgreinum, sem fela í sér vitsmunalega áskorun, reyna á skilning, túlkun, ályktanir og greinandi hugsun nemenda; og kenna þeim að leita upplýsinga og miðla þeim til annarra. Til þess þarf læsismenntun að vera snar þáttur í grunnmenntun kennara og veigamikil í starfsþróun þeirra enda bendir fjöldi rannsóknarniðurstaðna til þess að hæfni kennara hafi úrslitaáhrif á námstækifæri nemenda. Í starfsþróun þarf að sameina það sem best er vitað um árangursríka læsiskennslu og það sem best er vitað um árangursríkt skipulag starfsþróunar þar sem kennarar fá tækifæri og stuðning til að endurskoða og þróa kennsluhætti sína. Höfundar: Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ Berglind Gísladóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ Birna María B. Svanbjörnsdóttir, dósent við Kennaradeild HA Guðmundur Engilbertsson, lektor við Kennaradeild HA Hermína Gunnþórsdóttir, prófessor við Kennaradeild HA Jóhann Örn Sigurjónsson, sérfræðingur í stærðfræðimenntun hjá MMS Rannveig Oddsdóttir, dósent við Kennaradeild HA Rúnar Sigþórsson, prófessor emeritus við Kennaradeild HA Sólveig Zophoníasdóttir, aðjúnkt við Kennaradeild HA Heimildir Anna Kristín Sigurðardóttir, Hermína Gunnþórsdóttir og Rúnar Sigþórsson (ritstj.). (2025). Gæði kennslu. Námstækifæri fyrir alla nemendur. Háskólaútgáfan. https://haskolautgafan.is/products/gaedi-kennslu-namstaekifaeri-fyrir-alla-nemendur?taxon_id=4 Klette, K., Magnusson, C.G. og Sigurjónsson, J.Ö. (ritstj.). (2026). Investigating teaching quality through video capture: Equity and quality in Nordic classrooms. Springer. https://link.springer.com/book/10.1007/978-3-032-06893-4 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Grunnskólar Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar