Öruggt húsnæði eru mannréttindi - líka í Hafnarfirði Ester Bíbí Ásgeirsdóttir skrifar 30. apríl 2026 09:01 Við vitum að húsnæði er mannréttindi okkar allra, ekki bara fjárfestingartæki fyrir fáa. Öruggt húsnæði er líka lykilatriði fyrir lýðheilsu og velsæld fólks og til að sporna gegn fátækt. Þetta á líka við um Hafnarfjörð og húsnæði Hafnfirðinga. Þar er ljóst að gera þarf átak í því að bæta úr húsnæðisskorti enda eru 344 Hafnfirðingar á biðlista óhagnaðardrifna leigufélagsins Bjarg til að komast í viðráðanlegt og öruggt húsnæði í Hafnarfirði. Bak við þessar tölur, sem birtar voru í nýrri greiningu ASÍ og BSRB, er alvöru fólk sem bíður eftir öruggara og viðráðanlegra húsnæði fyrir sig og fjölskyldur sínar. Fjöldinn sýnir að þörfin er mikil. Til að bæjarfélagið sinni skyldunni um að útvega íbúum sínum húsnæði við hæfi, þurfum við að efla almenna íbúðakerfið, styðja við óhagnaðardrifin leigufélög, eins og Bjarg, og tryggja að öll sveitarfélög axli ábyrgð og taki virkan þátt í uppbyggingu hagkvæms húsnæðis. Hafnarfjörður hefur gert það og staðið sig ágætlega, en fjöldi Hafnfirðinga á biðlista hjá Bjargi sýnir að það þarf að gera meira og gefa verulega í til að útvega íbúum í bænum okkar húsnæði við hæfi. Til viðbótar við það þarf að tryggja lóðir í Hafnarfirði séu til fyrir félagslegt húsnæði og haga úthlutun lóða þannig að framboð íbúða sem venjulegt fólk hefur efni á verði aukið en ekki bara framboð lóða fyrir lúxusíbúðir eða fjársterka aðila. Þannig viðurkennum við að húsnæðismálin séu eitt stærsta réttlætismál samtímans. Hafnarfjarðarbær þyrfti líka að gera breytingar á húsnæðisáætlun bæjarins með það markmið að 35% nýbygginga sé óhagnaðardrifinn. Við í Hafnarfirði getum líka tryggt meira fjármagn í uppbygginu heimila fyrir fólk með fötlun og innleitt breytta nálgun í uppbyggingu nýrra svæða með sérstöku innviðafélagi. Við getum líka aukið stuðning við leigjendur. Allt þetta er vel hægt og hefur td. nýlega verið samþykkt af sitjandi meirihluta í Reykjavík. En til þess þurfa stjórnmálaöfl að vera við stjórnvölinn í Hafnarfjarðarbæ sem leggja áherslu á að fjölga raunverulegum valmöguleikum í húsnæði fyrir Hafnfirðinga af öllum stærðum og gerðum, af öllum stéttum og með allskyns bakgrunn og fjárhagslega stöðu. Ekki bara fyrir fjársterka aðila eða fasteignabraskara. Við getum valið að halda áfram á sömu braut eða valið að fara aðra leið í anda Vinstrisins í Hafnarfirði sem setur þarfir fólks í forgang en ekki þarfir markaðarins. Það er augljóst að fókusinn hefur færst frá því að byggja fyrir fólkið sem þarfnast húsnæðis. Við þurfum að taka stjórn á húsnæðismálum og tryggja það að þeir sem byggi, miði byggingarnar að þörfum íbúa. Það er hagur okkar allra að kostnaðarliður heimila og fjölskyldna við að koma sér þak yfir höfuðið lækki en éti ekki upp allt okkar fé. Til þess þarf pólitíska sýn um að húsnæði sé raunveruleg mannréttindi okkar allra, hvaða bakgrunn sem við höfum eða hvaða tekjur við höfum. Höfundur er oddviti Vinstrisins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar