Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sindri Sverrisson skrifar 29. apríl 2026 17:32 Mykhailo Mudryk hefur ekki mátt spila fótbolta í eitt og hálft ár og má að óbreyttu ekki spila aftur fyrr en í desember 2028. Getty/Daniel Kopatsch Úkraínski fótboltamaðurinn Mykhailo Mudryk hefur ekki mátt spila fótbolta í eitt og hálft ár, eftir fall á lyfjaprófi, og var dæmdur í fjögurra ára bann. Hann hefur áfrýjað dómnum til CAS, alþjóða íþróttadómstólsins.
Enska knattspyrnusambandið dæmdi Mudryk, sem er 25 ára leikmaður Chelsea, í fjögurra ára bann eftir að ólögleg, árangursaukandi efni fundust í þvagsýni frá honum. Um er að ræða hámarksrefsingu vegna brota af þessu tagi. Ef bannið stendur þá mun Mudryk ekki geta spilað fótbolta að nýju fyrr en í desember 2028, eða rétt áður en hann verður 28 ára gamall. BBC hefur hins vegar eftir heimildamönnum sem tengjast Mudryk að bjartsýni ríki varðandi það að CAS muni stytta dóminn. CAS hefur staðfest að áfrýjun barst 25. febrúar síðastliðinn en ekki hefur verið ákveðið hvenær málið verður tekið fyrir. Mudryk kom til Chelsea fyrir 70 milljónir evra í janúar 2023 en hefur eins og fyrr segir ekki spilað fótbolta síðan í nóvember 2024. Í einu yfirlýsingunni sem Úkraínumaðurinn hefur gefið út varðandi málið sagði hann um algjört áfall að ræða og að hann myndi aldrei vísvitandi nota ólögleg efni.
Enski boltinn Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira