Framsækið skipulag á landsvísu Guðjón Sigurbjartsson skrifar 29. apríl 2026 15:48 Þróun byggðar, samgangna og atvinnulífs á Íslandi hefur verið meira sjálfsprottin út frá aðstæðum en skipulögð. Það er skiljanlegt að svo hafi verið áður fyrr í litlu dreifðu samfélagi en nú eru aðstæður breyttar og við getum gert betur. Með því að ástunda fram sækna stefnumarkandi áætlanagerð fyrir landið allt einstaka landshluta getum við eflt land og þjóð hraðar og betur, eins og margar nágrannaþjóðir hafa lengi gert með árangursríkum hætti um langa hríð. Samkeppni um framtíðarsýn Meðal skýringa á takmarkaðri áætlanagerð eru mismunandi skoðanir og væntingar um hvert skal stefna bæði innan og milli landshluta. Opinberar skipulagsstofnanir virðast fara sér hægt í að leggja fram áætlanir sem kunna að vera umdeildar. Við þurfum að koma okkur út úr þessari stöðu. Til að leiða fram áhugaverða framtíðarsýn fyrir landið og einstaka landshluta ætti á nokkurra ára fresti að efna til opinberrar samkeppni, hérlendis og erlends um stefnumótun fyrir landið til næstu 30 ára eða svo. Niðurstöðurnar ætti að meta af skipulagsyfirvöldum væntanlega á vegum HMS og kynna fyrir landsmönnum. Líta mætti á niðurstöðuarnar sem gagnagrunn fyrir almenning, stjórnmálaflokkar og stjórnvöld sem síðan getur leitt til markvissari stefnumótunar landinu öllu til heilla. Kostnaðurinn við ferlið gæti numið um 10 milljónum króna en afraksturinn gæti verið mikill ef fram kæmu nýtanlegar hugmyndir. Hér á landi eru það helst sveitarfélög sem halda samkeppni um skipulag og hönnun einstakra svæða þar sem fagfólk leggur fram ólíkar og metnaðarfullar tillögur sem valið er út og þróað áfram. Með því að yfirfæra þessa aðferð á landið allt mætti kalla fram áhugaverðar sviðsmyndir þar sem fram kæmi heildstæð sýn á búsetu, samgöngur, atvinnuvegi og nýtingu lands. Það þýðir ekki að það verði að fara beint eftir tilteknum niðurstöðum, en afurðirnar væru gott innlegg í umræðuna og myndu væntanlega nýtast beint að hluta til. Undirbúningurinn er mikilvægur? Skilgreina þarf skýrt í útboðsgögnum hvaða spurningum á að svara. Þar kæmi til greina að ávarpa: Hvar og hvernig er skynsamlegast að byggja upp húsnæði á Íslandi? Hvar á landinu ætti helst að stunda helstu atvinnuvegi svo sem landbúnað, sjávarútveg, iðnað? Hvernig dreifum við ferðamönnum betur um landið? Hvernig á samgöngukerfið að vera? Ættu hágæða almenningssamgöngur að ná til alls stór höfuðborgarsvæðisins? Ætti að koma háhraða fluglest KEF – REY? Ættum við að koma upp heils árs hálendisvegum? Hvar ætti miðstöð innanlandsflugsins að vera ef hún þarf að fara úr miðbæ Reykjavíkur og hvar ætti næsti (vara) alþjóðaflugvöllur að vera? Hvaða svæði hafa raunhæfa vaxtarmöguleika og hvar þarf að forgangsraða? Þetta eru ekki einfaldar spurningar og svörin eru sjálfsagt umdeild – en það er einmitt ástæðan fyrir því að taka þarf þær skipulega fyrir jafnvel þó ekki verði sátt um aðgerðir. Skýr matsviðmið Mikilvægt er skilgreina fyrir fram hvernig tillögur verði metnar. Væntanlega ætti að taka mið af: áhrifum á mannfjölda og byggðaþróun, sjálfbærni og umhverfisáhrifum, samfélagslegum kostnaði og ábata, og raunhæfni í framkvæmd. Án skýrra viðmiða verður samanburður á tillögum meira umdeildur og gagnsemin minni. Ekki ein lausn – heldur betri stefna Það er mikilvægt að átta sig á því að engin ein tillaga og sviðsmynd mun leysa öll vandamál né hugnast öllum. Markmiðið er ekki að finna „réttu“ lausnina í einu skrefi, heldur að skapa traustan grunn að umræðum og framsýnni stefnumótun. Tillögurnar verða dýrmætur hugmyndabanki. Úr þeim má velja einhverjar til að skoða vel og þróa áfram. Möguleikar sem ekki má glata Meðal þess sem flækir þessi mál fyrir okkur er fjöldi og smæð sumra sveitarfélaganna, skortur á öflugum landshlutasamböndum eða sem betra væri, stærri sveitarfélögum sem ná yfir svæði sem eiga margt sameiginlegt og ættu að þróast saman. Gott dæmi um þetta er Austurland og stór Höfuðborgarsvæðið. Skipta þyrfti landinu í 5-6 svona svæði og þróa þau saman. Ísland stendur frammi fyrir góðu tækifæri. Með skýrri sýn, faglegri nálgun og pólitískum vilja er hægt að bæta og hraða góðri þróun. Án markvissra vinnubragða verður þróunin áfram ómarkviss og tilviljanakennd. Spurningin er ekki hvort við eigum að skipuleggja framtíðina – heldur hvort við gerum það af festu og framsýni eða látum reka á reiðanum. Höfundur er viðskiptafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Byggðamál Vinnumarkaður Stjórnsýsla Húsnæðismál Mest lesið Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Skoðun Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Sjá meira
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar