Kerfið sem á að vernda börnin en bregst þeim Ingibjörg Einarsdóttir skrifar 28. apríl 2026 23:01 Það er eitthvað alvarlegt að þegar foreldrar þurfa að óttast kerfið sem á að hjálpa börnunum þeirra. Félagslega kerfið og heilbrigðiskerfið eru að bregðast börnunum okkar. Það er eitthvað mikið að í samfélagi sem veitir ekki eigin börnum lífsnauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Það er eitthvað mikið að þegar foreldrar þurfa að fara með börnin sín alla leið til Suður-Afríku vegna þess að viðeigandi heilbrigðisþjónusta er ekki til fyrir þessi börn í velferðarríkinu á Íslandi. Ný skýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála dregur upp mynd sem við megum ekki horfa fram hjá. Þetta eru ekki einstök mistök. Þetta er kerfisbundinn vandi. Og fórnarlömbin eru börnin okkar. Börn fá ekki þá hjálp sem þau þurfa Í tæp tvö ár stóðu drengir á Íslandi án raunverulegrar framhaldsmeðferðar. Þetta er ekki smávægilegt skipulagsvandamál, þetta er alvarleg kerfisbilun. Þegar börn eru komin á þann stað að þau þurfa sérhæfða meðferð, þá skiptir tíminn öllu máli. Samt bregst kerfið. Ekki af því að við vitum ekki hvað þarf, heldur af því að úrræðin eru ekki til staðar. Kerfið getur gert vandan verri Eitt alvarlegasta sem kemur fram í skýrslunni er þetta: Börn með ólíkan vanda eru sett saman í sömu úrræði. Börn með vægan vanda eru sett með börnum í djúpri neyslu eða ofbeldishegðun. Afleiðingin? Smitáhrif. Foreldrar lýsa því að börnin þeirra hafi versnað í kerfinu. Að þau hafi lært skaðlega hegðun sem þau höfðu ekki áður. Að þau hafi komist í snertingu við neyslu sem þau voru ekki komin í. Þetta á ekki að gerast. Öryggi barna er ekki tryggt Það er ótrúlegt en samt staðreynd að börn á meðferðarheimilum komast ítrekað yfir fíkniefni og hættulega hluti eins og kveikjara. Hvernig getur það gerst í úrræði sem á að vera öruggt? Þetta er ekki bara galli. Þetta er öryggisbrestur. Börn með alvarlegan geðvanda detta á milli kerfa Starfsfólk segir það sjálft: Sum börn ættu ekki að vera í þessum úrræðum, þau ættu að vera í geðheilbrigðisþjónustu. En þau komast ekki þangað því geðheilbrigðiskerfið neitar að taka við þeim þrátt fyrir augljósan geðrænan vanda. BUGL neitar að taka við börnum séu þau að fikta við áfengi eða fíkniefni þrátt fyrir að undirliggjandi vandi sé í mörgum tilfellum geðrænn vandi. Þannig sitja börn með sjálfsvígshugsanir og alvarlegan geðrænan vanda í kerfi sem er ekki byggt til að hjálpa þeim. Afvötnunardeild ungmenna sem var opnuð með pomp og prakt heldur áfram að synja börnum jafnvel þótt þau komi ítrekað meðvitundarlaus á bráðamóttöku. Þetta er ekki bara ófullnægjandi þjónusta. Þetta er hættulegt. Þetta er ábyrgðarlaust. Enginn veit hvort meðferðin virkar Kannski það sem er mest sláandi: Það hefur ekki verið markvisst metið hvort meðferðin sem börnin fá skili árangri. Við erum bókstaflega að setja viðkvæmustu börnin okkar inn í kerfi þar sem við vitum ekki hvort það hjálpar eða skaðar. Hvernig er hægt að tala um „gagnreyndar aðferðir” í kerfi sem aldrei hefur verið árangursmælt? Óskýrt kerfi, óskýr ábyrgð Reglur eru óljósar. Kvörtunarleiðir barna eru óskýrar. Eftirlit er ekki nægilegt. Þegar kerfi sem hefur vald yfir lífi barna er svona óljóst, þá er hættan augljós. Þetta er ekki ásættanlegt Við erum ekki að tala um abstrakt kerfi. Við erum að tala um raunveruleg börn. Börn sem eiga rétt á öryggi. Börn sem eiga rétt á réttri meðferð. Börn sem eiga rétt á því að kerfið vinni fyrir þau ekki gegn þeim. Við verðum að gera betur Það sem þarf er skýrt: - Fleiri og fjölbreyttari úrræði - Aðskilnaður barna eftir þörfum og vanda - Samþætting barnaverndar og geðheilbrigðisþjónustu - Raunverulegt eftirlit og árangursmat - Og kerfi sem er byggt í kringum börnin – ekki takmarkanir kerfisins Mosfellsbær er ekki undanskilinn Sem sveitarfélag ber Mosfellsbær ábyrgð. Við getum ekki bent bara á ríkið og sagt: „Þetta er ekki okkar mál“. Börnin okkar búa hér. Fjölskyldurnar okkar eru hér. Og þegar kerfið bregst, þá er það samfélagið okkar sem tekur við afleiðingunum. Við þurfum raunverulegar lausnir ekki fleiri skýrslur. Ef við ætlum að taka þetta alvarlega, þá þurfum við aðgerðir. Í skýrslunni kemur fram að það sé á ábyrgð sveitarfélaga að hafa tiltæk neyðarúrræði þegar dvöl á Neyðarvistun Stuðla líkur og að sá tími sem barn getur dvalið þar eigi barnavernd að nýta til þess að finna viðeigandi úrræði. En oftar en ekki eru það aðeins biðlistar sem taka við, biðlistar á meðan sum þessara barna eru einfaldlega í bráðri lífshættu. Þetta á ekki að vera svona og þessu þarf að breyta. Ég vil koma á neyðarúrræði í Mosfellsbæ sem hægt er að nýta á meðan beðið er eftir úrræðum þegar börn eru talin í lífshættu. Að lokum Ég býð mig fram sem móðir, ekki sem pólitíkus. Móðir með reynslu af baráttu við brotið kerfi, reynslu sem hægt er að nýta til þess að breyta því. Ég óska eftir þverpólitískri sátt um það að breyta þessu. Þetta á ekki að verða að pólitísku bitbeini, þetta er spurning um ábyrgðarkennd og mennsku. Samfélag er mælt eftir því hvernig það kemur fram við veikustu meðlimi sína. Spurningin er einföld: Ætlum við að horfast í augu við þetta eða halda áfram að bregðast börnum? Höfundur skipar 2. sæti á lista Miðflokksins í Mosfellsbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fíkn Geðheilbrigði Miðflokkurinn Mosfellsbær Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar