Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 28. apríl 2026 07:00 Missy Bo Kearns er að ganga í gegnum mikið áfall en vonar að hennar saga hjálpi öðrum. Aston Villa/Aston Villa FC via Getty Images Missy Bo Kearns, landsliðskona Englands í fótbolta og leikmaður Aston Villa, lenti í hræðilegu áfalli nýlega en þakkar liðslækninum fyrir að hafa líklega bjargað lífi sínu þegar hún missti fóstur.
Bo Kearns og Liam Walsh, leikmaður Luton Town á Englandi, áttu von á sínu fyrsta barni en hún missti fóstrið. Kearns segir frá því í viðtali við ITV News að hún hafi verið á styrktaræfingu á æfingasvæði Aston Villa þennan örlagaríka dag. Þá hafi hún skyndilega fengið „hrollinn“ en ekki vitað að eitthvað mikið væri að. Liam Walsh, leikmaður Luton Town, átti von á barni með Bo Kearns. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images Hún hélt að flensa hefði náð henni en þegar hún mældist með 42 stiga hita stóð læknunum ekki á sama. „Ég er svo þakklát læknunum hjá Aston Villa. Ef ég hefði verið heima hjá mér þennan dag hefði ég örugglega hringt í mömmu eða eitthvað og það hefðu örugglega bara allir sagt mér að leggja mig aðeins.“ „[Læknarnir] létu mig fara upp á spítala. Ég nennti því ekki, því það er ekkert leiðinlega en að fara upp á spítala, en þeir björguðu líklega lífi mínu,“ sagði Kearns en hún fékk alvarlega blóðsýkingu eftir að hafa misst fóstrið. „Ég var ekki einu sinni að hugsa um það þá. Eina sem ég hugsaði um var: „Ég er búin að missa barnið mitt.“ Ég held að fólk átti sig ekki á því hvaða áhrif það hefur á mann,“ sagði Kearns. View this post on Instagram Hún vonar að með því að segja sína sögu geti hún opnað á umræðuna og hjálpað öðrum. „Ég vona bara að fólk þurfi ekki að þjást í hljóði.“ Kears einbeitir sér nú að því að ná heilsu á ný og koma sér aftur í leikform. Hún stefnir á að spila á HM 2027 með enska landsliðinu, eftir að hafa spilað fimm landsleiki frá því hún þreytti frumraunina í fyrra.
Enski boltinn Aston Villa FC Mest lesið Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Íslenski boltinn Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Handbolti Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Sport Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Enski boltinn „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Enski boltinn Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á uppboði Fótbolti Fleiri fréttir Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjá meira