Modric í aðgerð eftir harkalegt höfuðhögg Ágúst Orri Arnarson skrifar 27. apríl 2026 18:01 Luka Modric lenti í vondu samstuði við Manuel Locatelli í gærkvöld. Timothy Rogers/Getty Images Luka Modric kinnbeinsbrotnaði þegar hann lenti í samstuði við Manuel Locatelli í gærkvöldi. Króatinn mun gangast undir aðgerð og óttast er að hann gæti misst af HM í sumar.
Við fyrstu sýn virtist ekkert alvarlegt hafa átt sér stað þegar Modric og Manuel Locatelli lentu saman á 80. mínútu í 0-0 jafntefli AC Milan gegn Juventus í gær. Læknateymi AC Milan sendi allavega ekki eftir sjúkrabíl og sagði Modric að bíða með myndatöku þar til í dag. Úr myndatökunni kom hins vegar annað högg, því þar kom í ljós að Modric hefði kinnbeinsbrotnað. Hann mun nú gangast undir aðgerð og samkvæmt La Gazzetta dello Sport mun Modric ekki spila meira með AC Milan á þessu tímabili. Modric fékk kælipoka en var ekki fluttur upp á spítala. Timothy Rogers/Getty Images Þrátt fyrir að vera rúmlega fertugur er Modric algjör lykilmaður hjá AC Milan og hefur spilað 33 af 34 leikjum liðsins á tímabilinu. Höggið er samt ekki svo mikið því AC Milan er nánast búið að tryggja sér Meistaradeildinni. Áfallið yrði mun meira fyrir króatíska landsliðið ef Modric missir af HM í sumar. Hann er fyrirliði liðsins og hefur spilað hvern einasta landsleik síðustu ár. Ef Króatía ætlar að gera aðra atlögu að heimsmeistaratitlinum, eins og þegar liðið vann silfurverðlaun árið 2018, þarf Modric líklega að spila stóran þátt í því. Modric gæti hins vegar náð sér í tæka tíð og mögulega spilað með andlitsgrímu til að verja nýbrotna kinnbeinið.
Ítalski boltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ Sjá meira