Ekki benda á mig Guðmundur Stefán Gunnarsson skrifar 22. apríl 2026 16:30 Það er auðvelt að ræða ábyrgð þegar allt gengur vel. Þá eru margir tilbúnir að taka heiðurinn. En þegar mál fara úrskeiðis, þegar verkefni dragast, þegar eftirlit bregst eða þegar viðkvæmir hópar fá ekki þá þjónustu sem þeir eiga rétt á, þá kemur að spurningunni: hver ber ábyrgð? Þegar hreinskilnina vantar Undanfarið hafa komið fram dæmi úr bæði framkvæmdum og þjónustu sveitarfélaga sem kalla á þessa umræðu. Í skýrslu um málavinnslu barnaverndar í Reykjanesbæ kemur fram alvarleg mynd af kerfi sem hefur á köflum ekki náð að sinna grundvallarhlutverki sínu. Þar er lýst hvernig eftirlit með fósturheimilum hefur brugðist, í sumum tilvikum í áraraðir, og hvernig börn í viðkvæmri stöðu hafa ekki fengið þá eftirfylgni og vernd sem lög gera ráð fyrir Heiðarleiki skiptir máli Í skýrslunni kemur einnig fram að tímabil hafi myndast þar sem engar áætlanir um umsjá barna voru í gildi, jafnvel mánuðum eða árum saman . Þetta er ekki smávægilegt frávik. Þetta er kerfisbrestur. Þegar fósturforeldrar lýsa því að enginn hafi komið í heimsókn í þrjú ár, eða að samskipti hafi takmarkast við stutt símtöl í stað faglegs stuðnings, þá er ekki lengur hægt að tala um mistök. Þá erum við komin að kjarna málsins, ábyrgðinni. Traust byggist á verkum, ekki orðum Svipuð mynstur má sjá í öðrum málum, til dæmis í framkvæmdum þar sem kostnaður hækkar, áætlanir breytast og ákvarðanir eru teknar á ferðinni. Þá skapast oft ágreiningur milli meirihluta og minnihluta, þar sem hvor aðili bendir á hinn. Spurningar eru lagðar fram, en svörin verða óljós. Það sem tengir þessi mál saman er ekki bara niðurstaðan. Það er ferlið. Hreinskilni í stað afsakana Í stjórnsýslu eru það embættismenn sem bera faglega ábyrgð á því að vinna mál rétt, fylgja lögum og tryggja eftirlit. En þeir starfa ekki í tómarúmi. Þeir starfa í umboði kjörinna fulltrúa, innan ramma sem pólitíkin setur. Þegar kerfi bregst með þeim hætti sem lýst er í skýrslu um barnavernd, þá er ekki nóg að benda á álag, manneklu eða erfiðar aðstæður. Það þarf að muna að þegar einn fingur bendir á sökudólg þá benda þrír fingur á þann sem bendir. Það þarf líka að spyrja: hver skapaði þessar aðstæður? Hver bar ábyrgð á forgangsröðun? Hver fylgdist með? Og þar komum við að óþægilegu en nauðsynlegu svari. Þegar öllu er á botninn hvolft liggur pólitíska ábyrgðin hjá þeim sem fara með meirihlutavald. Það eru þeir sem taka ákvarðanir um fjárveitingar, skipulag og áherslur. Það eru þeir sem bera ábyrgð á því að kerfið hafi burði til að sinna sínum verkefnum. En ábyrgðin stoppar ekki þar. Minnihlutinn hefur einnig hlutverk. Hann hefur andmælarétt, hann hefur eftirlitshlutverk og hann hefur skyldu til að bóka, spyrja og gera athugasemdir þegar tilefni er til. Ef alvarleg mál fara í gegnum kerfið án þess að þau séu dregin fram, án þess að þau séu skráð eða rædd opinberlega, þá vaknar spurning um hvort að hlutverki minnihluta hafi verið nýtt til sinnt. Traust krefst ábyrgðar En þegar litið er yfir lengri tíma verður umræðan enn skýrari. Þegar kjörnir fulltrúar hafa setið í meirihluta árum saman er ekki lengur hægt að vísa frá ábyrgð með því að benda á einstök atvik, embættismenn eða aðstæður. Þá þarf einfaldlega að gera upp tímabilið af hreinskilni. Traust byggist ekki á því að segja að allt hafi gengið vel. Það byggist á því að horfast í augu við það sem fór ekki vel. Ef kerfisbrestir koma fram, eins og skýrsla um barnavernd bendir til, þá er það ekki bara mál starfsfólks eða verklags. Það er spegilmynd af stjórnun, forgangsröðun og eftirfylgni yfir tíma. Þeir sem fara með meirihlutavald bera því að lokum meginábyrgð. En lýðræðið krefst meira. Það krefst þess að minnihlutinn nýti sitt hlutverk, spyrji erfiðra spurninga og bóki þegar tilefni er til. Þögn er sama og samþykki. Það er freistandi að segja: „ekki benda á mig“. En í opinberri stjórnsýslu gengur það ekki til lengdar. Ábyrgð er ekki eitthvað sem hægt er að færa til eftir hentugleika. Hún fylgir valdi. Og ef við ætlum að halda trausti í samfélaginu, þá verðum við að byrja þar. Höfundur er nemi og fyrrverandi íþrótta- og tómstundafulltrúi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar