Við þurfum að geta tekið samtalið því orð eru til alls fyrst og athafnir næsta skrefið Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir. skrifar 21. apríl 2026 17:00 Í kosningabaráttunni hitti ég allskonar fólk og tek umræðuna um allskonar mál, stundum er fólk með útúrsnúning eða vill ekki heyra hvað ég hef að segja - sem er í góðu lagi.Stöku sinnum er fólk með hreina vanvirðingu við okkur sem teljum mannréttindi þess virði að berjast fyrir, sem er hreint út sagt sorglegt og sannar virkilega vel fyrir okkur af hverju við, sem það getum, verðum að taka slaginn fyrir hönd þeirra sem ekki geta það.En stundum verð ég fyrir whataboutism eða hvaðmeðisma af hálfu fólks sem gerir með því lítið úr mér og því sem ég hef að segja án þess að bæta neinu við málefnið eða gera umræðunni gagn.Ég velti því stundum fyrir mér hvort að fólk sé almennt meðvitað um hvaðmeðisma og beiti honum markvisst þess vegna eða hvort viðkomandi sé bara svo illa við umræðuefnið að gripið sé til þessarar tækni ómeðvitað til að gera lítið úr einhverju sem þeim stendur ógn af og reyna því að beina athyglinni annað.Ég lagðist því í gamaldags grúsk og útkoman er eftirfarandi pistill sem hljóðar svo... Hvað með „hvaðmeðisma“ eða what about „whataboutism“ Hvaðmeðismi er í dag orðin ein helsta aðferðafræði þeirra sem þykir að sér vegið eða hafa lélegan málstað. Hún er notuð til að draga úr mikilvægi umræðu en gera um leið lítið úr umræðuefninu og málshefjanda. Með því að nota hvaðmeðisma er verið að draga úr fókus á aðalatriðum, drepa á dreif, snúa út úr og kæfa málefnið/málstaðinn og koma sér þannig hjá því að takast á við upphaflegt málefni sem viðkomandi þykir þá væntanlega óþægilegt eða höggva nærri sér og sínum lífsskoðunum enda mun þægilegra að slá fram ákæru/hvaðmeðisma en að þurfa að opinbera skoðanir sínar, tala fyrir þeim og færa rök fyrir máli sínu. Almennt var talið hér áður fyrr að það væru frekar ómenntaðir, þeir sem stjórnast af hópefli eða þeir sem stjórnast af tilfinningum sínum frekar en af rökum, sem væru líklegastir til að nota hvaðmeðisma í stað raka en aukin notkun samfélagsmiðla sýnir að æ fleiri grípa til hvaðmeðisma og því er það svo að enska orðið whataboutism var formlega tekið inn í orðabók Merriam Webster í október árið 2021. Hver er fræðilega skilgreiningin á þessari orðnotkun? Hvaðmeðismi telst vera tegund af "tu quoque" sem þýðir "þú líka" á latínu og felur í sér að ákæra ákæranda þinn fyrir hvað sem það er sem þú hefur nýlega verið sakaður um frekar en að hrekja sannleikann í ásökuninni á hendur þér. Tu quoque telst þannig vera rökrétt rökvilla því hvort sem upphaflegi ákærandinn er sömuleiðis sekur um brot eða ekki hefur engin áhrif á sannleiksgildi upprunalegu ákærunnar - heldur gefur til kynna að: Af því að mér líkar ekki það sem þú segir þá ætla ég í staðinn fyrir að færa rök fyrir máli mínu að ákæra þig um eitthvað og gera lítið úr þér og þar með því sem þú segir, jafnvel þó að það sé satt. Því miður tekst þeim sem nota þessa aðferðarfræði alltof oft að snúa út úr markvissri og heilbrigðri umræðu og jafnvel að drepa niður frekari umræðu um mál eða málefni sem sem þarft er að ræða opinskátt, sér í lagi málefni sem snúa að réttindum fólks og manngildum, eða m.ö.o. umræðu sem á fyllilega heima í því siðaða vestræna samfélagi sem við teljum okkur tilheyra. Upplýsingar þessar koma víða að og eru þýddar og staðfærðar af mér, í þeim eina tilgangi að fræða og almennt að draga úr notkun þessarar skaðlegu aðferðarfræði í almennum samskiptum. Höfundur skipar 4. sæti á lista Vinstrisins fyrir borgarstjórnarkosningar 2026. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar