Ofbeldislýður í sauðagæru Huginn Þór Grétarsson skrifar 21. apríl 2026 11:17 Á Íslandi viðgengst ákveðin tegund af ofbeldi fyrir opnum tjöldum og fjölmiðlar, stjórnvöld og stór hluti almennings líta undan. Þessi hópur gerenda er samsettur af fólki sem blindast af reiði og telur sig mega beita ofbeldi því það HELDUR að viðkomandi sem þolir árásirnar hafi gert eitthvað ósæmilegt. Það veit þó oftast lítið eða jafnvel ekkert um málin. Þessi tegund af ofbeldi hefur grafið sig inn í samfélagið undir yfirskyni ýmissa hugsjónabylgna eða baráttuhreyfinga gegn ofbeldi. En það er aldrei í lagi að beita ofbeldi, ekki heldur þá sem eru sakaðir um slíkt. Algeng birtingamynd er opinbert níð þar sem reynt er að rægja manneskju, sem þróast síðan út í hópeinelti af hálfu fullorðinna. Einn ólánsamur „svartur sauður“ er tekinn fyrir í einu, þar til hann liggur eftir óvígur og sá næsti verður fyrir barðinu. Þetta stingur í stúf, þar sem við reynum flest öll að kenna börnum að stunda ekki slíka meinsemd, gróft einelti, en þegjum svo þunnu hljóði þegar illa innrættir fullorðnir einstaklingar beita skipulögðu einelti. Hatrið vex og fólk í þessum ofbeldisham espir fleiri upp, sem slást í hópinn. Ekki dugar að niðurlægja því einnig er reynt að eyðileggja fyrir þolandanum og vega að lífsgæðum hans. Þetta fólk sem svona hagar sér vill öðrum ekki vel. Það vill meiða. Það vill jafnvel að þolandinn missi vinnuna sína. Og já, það þarf slæmt innræti til að haga sér með þessum hætti. Árásirnar eru endurteknar og standa jafnvel yfir árum saman. Sumir missa allt, lifibrauð sitt og mannorð. Þolandi þessa eineltisofbeldis verður eins og heit kartafla… enginn vill snerta á neinu sem tengist viðkomandi. Tilganginum er náð hjá glefsandi úlfunum. Þolandi situr eftir með sárt enni, og brotna sál. Gerendahópurinn afmarkast ekki bara við einstaklinga, sem beita svívirðingum og þrýstingi til að skemma fyrir. Starfsfólk hjá hinu opinbera tekur líka þátt og fer að refsa viðkomandi eftir fremsta megni, t.d. með því að loka á viðskipti, eða lágmarka þau. Það misnotar stöðu sína til að slást í hóp ofbeldislýðsins og beitir stjórnsýslunni til þess. Dæmin eru fjölmörg. Svo mikið hatur er til staðar að gerendurnir leggja á sig umtalsverða vinnu til að valda sem mestum skaða. Það er ljóst út frá þessu hegðunarmynstri í samfélaginu að múgurinn þarf enn á sínum gapastokk að halda, blóðþyrstur í að taka fyrir einstaklinga og lítillækka þá. Eyðileggja fyrir öðrum. Gerendurnir nærast á óförum annarra. Við erum sömu villimennirnir og grýtir fólk eða pyntar úti á torgum, án dóms og laga. Þetta er æstur múgurinn úr hringleikahúsum fortíðar. Lýðurinn sem hrópaði óorð að saklausum einstaklingum sem voru hýddir og aflífaðir á torgum úti. Og eins og forðum daga þykist þetta fólk sem beitir þessu ofbeldi vera voðlega gott. Þetta fólk er glefsandi úlfar í sauðagæru, með háværa dyggðaflöggun og réttlætingar á því hvers vegna megi skemma líf ákveðinna einstaklinga, og oft eru þetta sömu gerendurnir sem ráðast á einn af öðrum, aftur og aftur. Þetta fólk hefur stundað slíkt ofbeldi árum saman, sama fólkið hef ég séð ötult að verki og bíður færis og slæst í árásarhópinn um leið og nýtt fórnarlamb er fundið. Það einfaldlega virðist ekki mettast af hatrinu og þörfinni til að meiða. Þetta er þykjustuleikur þeirra sem þykjast vera svo góðir en ráða sér ekki fyrir reiði og hatri og óvild í garð annars fólks. Þetta fólk er ofbeldisfólk. Sem þolandi slíks ofbeldis hef ég horft upp á lágkúrulega hegðun, illa innrætta einstaklinga; fávísi og þekkingarleysi eru aðaleinkenni þeirra sem taka þátt í blindni, og ekki vantar klappstýrurnar og meðvirknina í samfélaginu, og hjá stjórnvöldum og dómstólum. Þessu ofbeldi linnir ekki. Tíu ár líða og ef eitthvað er, horfi ég upp á ljótari birtingamyndir með hverju árinu. Þetta fær mann til að missa trú á samfélagi manna, fólki upp til hópa (því þeir sem taka ekki þátt, þeir þegja). Sumir hafa kiknað undan þessum viðbjóði, opinberu níði sem margir fjölmiðlar taka þátt í, og þeir þolendur hafa tekið eigið líf. Þeir höfðu misst allt, æruna, vinnuna, vinina og jafnvel fjölskyldu. Aðrir eru andlega niðurbrotnir, því þeir mega sín einskis gegn svona fjölmennum ofbeldislýð. Náungakærleikur og góðmennska virðist víkja tiltölulega auðveldlega fyrir meðvirkni og þátttöku í svona skrípaleik, einelti og ofbeldi. Gerendurnir fá klapp á bakið af samfélaginu þegar þeir beita ofbeldi af þessari gerð. Gerendur mínir urðu ráðherra, borgarstjóri og svo má áfram telja, á meðan ég sit eftir með stórskaða og áframhaldandi níð. Er það virkilega svona samfélag sem við viljum búa í? Að níðingsverk og ofbeldi séu verðlaunuð? Höfundur þessa hugrenningspistils getur æ minna samsamað sig samfélagi manna hér á landi þar sem ofbeldi af þessari tegund grasserar. Hvar eru hugrökku krakkarnir á skólalóðinni sem risu upp og börðust gegn svona hegðun? Mega þeir sín einskis í samfélagi fullorðinna? Ég man eftir vel innrættum krökkum sem stóðu upp og létu í sér heyra og börðust gegn svona ranglæti, en ég man líka eftir einelti og grimmd barna. En sú hegðun var alls ekki litin jákvæðum augum, eins og samfélagið gerir í dag gagnvart hópeinelti fullorðinna. Og skrímslið hefur vaxið og nærst undanfarin ár á meðan ekki er spyrnt gegn ódæðum þeim sem ég lýsi, svo múgurinn er orðinn að fullvaxta fenrisúlfi og löngu búinn að kasta gærunni, því nú eru það ekki bara þeir sem SAGÐIR eru hafa gert eitthvað misjafnt sem verða fyrir árásum heldur líka þeir sem hafa ekki réttar skoðanir. Ofbeldið er framið frammi fyrir alþjóð og telst orðið „eðlilegt“. Enn herðist taumurinn um háls frjálsra manna og fólk er hreinlega orðið hrætt við að tjá skoðanir sínar, því „góða fólkið“ ræðst að þeim sem eru ekki sammála með mikilli heift og grimmd og rakkar það niður. Útilokar. Ákveðnar skoðanir eru bannaðar eins og í góðum einræðisríkjum og refsivöndurinn fer á loft. En fæst trúum við á villimannsleg kerfi á borð við hugmyndina um auga fyrir auga. Við erum flest ekki sammála því að fólk megi beita þann ofbeldi sem sagður er hafa beitt ofbeldi. Samt fær þetta að líðast í samfélaginu án afleiðinga fyrir ofbeldisfólkið. Samt taka fjölmiðlar þátt og styðja við slíka orðræðu. Við eigum ekki að góðkenna að fólk sem þykist hefna, megi beita níði, einelti og ofbeldi. Við eigum að taka á þessari ofbeldishegðun og fordæma hana, eins og allt annað ofbeldi, jafnvel þó gerendur þykist vera voðalega góðar manneskjur. Höfundur er baráttumaður fyrir betra samfélagi, og er á móti eineltisofbeldi, hvort sem gerendur séu börn eða fullorðnir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar