Eigið eldvarnaeftirlit fyrirtækja – mikilvægur þáttur í rekstrinum Sigrún A. Þorsteinsdóttir skrifar 20. apríl 2026 13:02 Eigið eldvarnaeftirlit fyrirtækja er reglubundið eftirlit með eigin eldvarnabúnaði og eldvörnum. Slíkt eftirlit er framkvæmt af fyrirtækinu sjálfu og ætti að vera sjálfsagður hluti af rekstri, gæðastjórnun og öryggismálum hvers fyrirtækis. Markmið eftirlitsins er að koma í veg fyrir eldsvoða og tryggja að fólk og eignir séu eins vel varin og kostur er. Eldvarnaeftirlit slökkviliða er annar og aðskilinn þáttur. Það er formlegt eftirlit þar sem tíðni skoðana ræðst af þeim notkunarflokki sem húsnæði og starfsemi fyrirtækja fellur undir. Öll fyrirtæki eiga að sinna eigin eldvarnaeftirliti Ábyrgð á því að eigið eldvarnaeftirlit sé sinnt og framkvæmt liggur hjá eigendum og/eða stjórnendum fyrirtækja. Þeir geta t.d. falið eldvarnafulltrúa eða öryggisnefnd að annast framkvæmdina. Gæta þarf þess meðal annars að: Unnið sé eftir eldvarnastefnu fyrirtækisins. Eldvarnabúnaður, svo sem slökkvitæki, brunaviðvörunarkerfi, sprinklerkerfi, reyklúgur og neyðarlýsing, sé í lagi og reglulega yfirfarinn. Flóttaleiðir séu rétt merktar, vel upplýstar og ávallt greiðfærar. Starfsfólk fái fræðslu um rétt viðbrögð við eldsvoða, skipulag rýmingar húsnæðis og staðsetningu söfnunarsvæða. Eldfim efni séu geymd við réttar aðstæður og að ruslsöfnun sé haldið í lágmarki. Árlegt og mánaðarlegt eigið eldvarnaeftirlit Eigið eldvarnaeftirlit fyrirtækja er ekki aðeins lagaleg skylda heldur lykilþáttur í forvörnum sem verndar bæði fólk og verðmæti. Með skýrri eldvarnastefnu, vel skilgreindu verklagi, árlegum og mánaðarlegum skoðunum, daglegu eftirliti og reglulegri fræðslu starfsfólks má tryggja öruggt vinnuumhverfi og lágmarka áhættu vegna eldsvoða. Fyrirtæki sem sinna þessum þáttum á markvissan og kerfisbundinn hátt sýna bæði ábyrgð og fagmennsku í eldvörnum. F.h. Eldvarnabandalagsins,Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Eigið eldvarnaeftirlit fyrirtækja er reglubundið eftirlit með eigin eldvarnabúnaði og eldvörnum. Slíkt eftirlit er framkvæmt af fyrirtækinu sjálfu og ætti að vera sjálfsagður hluti af rekstri, gæðastjórnun og öryggismálum hvers fyrirtækis. Markmið eftirlitsins er að koma í veg fyrir eldsvoða og tryggja að fólk og eignir séu eins vel varin og kostur er. Eldvarnaeftirlit slökkviliða er annar og aðskilinn þáttur. Það er formlegt eftirlit þar sem tíðni skoðana ræðst af þeim notkunarflokki sem húsnæði og starfsemi fyrirtækja fellur undir. Öll fyrirtæki eiga að sinna eigin eldvarnaeftirliti Ábyrgð á því að eigið eldvarnaeftirlit sé sinnt og framkvæmt liggur hjá eigendum og/eða stjórnendum fyrirtækja. Þeir geta t.d. falið eldvarnafulltrúa eða öryggisnefnd að annast framkvæmdina. Gæta þarf þess meðal annars að: Unnið sé eftir eldvarnastefnu fyrirtækisins. Eldvarnabúnaður, svo sem slökkvitæki, brunaviðvörunarkerfi, sprinklerkerfi, reyklúgur og neyðarlýsing, sé í lagi og reglulega yfirfarinn. Flóttaleiðir séu rétt merktar, vel upplýstar og ávallt greiðfærar. Starfsfólk fái fræðslu um rétt viðbrögð við eldsvoða, skipulag rýmingar húsnæðis og staðsetningu söfnunarsvæða. Eldfim efni séu geymd við réttar aðstæður og að ruslsöfnun sé haldið í lágmarki. Árlegt og mánaðarlegt eigið eldvarnaeftirlit Eigið eldvarnaeftirlit fyrirtækja er ekki aðeins lagaleg skylda heldur lykilþáttur í forvörnum sem verndar bæði fólk og verðmæti. Með skýrri eldvarnastefnu, vel skilgreindu verklagi, árlegum og mánaðarlegum skoðunum, daglegu eftirliti og reglulegri fræðslu starfsfólks má tryggja öruggt vinnuumhverfi og lágmarka áhættu vegna eldsvoða. Fyrirtæki sem sinna þessum þáttum á markvissan og kerfisbundinn hátt sýna bæði ábyrgð og fagmennsku í eldvörnum. F.h. Eldvarnabandalagsins,Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar