Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Sindri Sverrisson skrifar 20. apríl 2026 09:32 Gabriel og Erling Haaland voru stöðugt í baráttu í toppslagnum í gær og þar hafði Haaland betur. Getty/Michael Regan Brasilíski miðvörðurinn Gabriel getur þakkað Erling Haaland fyrir að hafa sloppið við rautt spjald í toppslag Arsenal og Manchester City í gær, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Þetta sagði Kjartan Henry Finnbogason í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport þar sem þeir Arnar Gunnlaugsson rýndu í leiki helgarinnar, ásamt Kjartani Atla Kjartanssyni. Brot úr þættinum má sjá hér að neðan. Klippa: Messan - Gabriel skallaði Haaland Gabriel og Haaland voru stöðugt að atast hvor í öðrum í leiknum en á 84. mínútu fengu þeir báðir að líta gula spjaldið. Gabriel hafði þá brotið á Haaland og í kjölfarið fóru þeir að hvor öðrum, enni í enni, áður en Gabriel ýtti svo höfði sínu í höfuð Haaland. Norðmaðurinn gerði ekki mál úr þessu en hefði að mati Kjartans vel getað fiskað Gabriel af velli með rautt spjald. „Því miður þarf að henda sér niður og rúlla sér um, því þá er þetta væntanlega skoðað. Gabriel, hann missir hausinn algjörlega. Hann í rauninni skallar hann [Haaland]. Ef Haaland hefði hent sér niður og haldið um andlitið þá held ég að Gabriel hefði ekki klárað leikinn. Þetta er bara rautt spjald,“ sagði Kjartan en atvikið og brot úr þættinum má sjá hér að ofan.
Enski boltinn Messan Arsenal FC Manchester City Tengdar fréttir Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk Markatala mun ráða því hvaða lið verður Englandsmeistari, ef bæði Arsenal og Manchester City vinna þá leiki sem þau eiga eftir. Mörkin úr toppslagnum og öðrum leikjum gærdagsins má sjá á Vísi. 20. apríl 2026 07:57 Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Handbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira
Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk Markatala mun ráða því hvaða lið verður Englandsmeistari, ef bæði Arsenal og Manchester City vinna þá leiki sem þau eiga eftir. Mörkin úr toppslagnum og öðrum leikjum gærdagsins má sjá á Vísi. 20. apríl 2026 07:57