Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. apríl 2026 23:00 Orri Steinn Óskarsson með bikarinn á flugvellinum. @realsociedad Orri Steinn Óskarsson varð spænskur bikarmeistari með Real Sociedad á laugardagskvöldið eftir sigur í vítaspyrnukeppni á móti Atlético Madrid í úrslitaleiknum.
Orri kom inn á sem varamaður á 78. mínútu en lék í meira en fjörutíu mínútur því leikurinn fór í framlengingu. Orri tók annað víti Real Sociedad í vítakeppninni en klikkaði. Hann slapp með það því allir liðsfélagar hans nýttu sín víti. Sociedad vann vítaspyrnukeppnina 4-3 og þar með bikarmeistaratitilinn. Real Sociedad varð því bikarmeistari í þriðja sinn og í fyrsta sinn í sex ár. Orri skoraði eitt mikilvægasta markið á leið Real Sociedad að bikarnum því hann skoraði sigurmarkið í 3-2 sigri á Deportivo Alavés í átta liða úrslitunum. Það var mikil gleði í Baskalandi eftir sigurinn og tekið á móti leikmönnum Real Sociedad sem þjóðhetjum. Orri tók það að sér að hugsa um bikarinn á leiðinni frá Sevilla til Sociedad. Hann komst þó ekki langt á flugvellinum í Sevilla því hann var stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu eins og sjá má hér fyrir neðan. Öryggishliðið blikkaði auðvitað en það var bara gamansemi hjá okkar manni að reyna að fara með bikarinn í gegnum vopnaleitina. View this post on Instagram A post shared by Real Sociedad de Fútbol (@realsociedad)
Spænski boltinn Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira