„Erum á réttri leið“ Árni Gísli Magnússon skrifar 17. apríl 2026 20:38 Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkinga stýrði sínum mönnum til sigurs á Akureyri í kvöld. Vísir/Paweł Víkingur hafði betur gegn KA í annarri umferð Bestu deildar karla fyrir norðan í dag. Lokatölur urðu 2-0 þar sem Víkingar skoruðu bæði mörkin í síðari hálfleik og hafa nú fjögur stig eftir tvo leiki en KA-menn eru enn án stiga eftir tvo heimaleiki.
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, var ánægður með að fara með öll þrjú stigin til baka suður og segir sitt lið hafa sýnt mikla þolinmæði sem skilaði sér að lokum. „Bara fyrst og fremst sáttur með frammistöðu minna leikmanna. Þetta var erfitt og þetta var mikil þolinmæðisvinna. Hrikalega sáttur með stuðninginn sem við fengum frá Víkingum sem gerðu sér ferð hérna norður og við þurftum á þeirra hjálp að halda í dag þannig að ég var virkilega ánægður með stuðninginn bara eins og alltaf hjá Víkingunum.“ „Þetta var erfið fæðing, völlurinn var dálítið þurr þannig að tempóið var hægt á boltanum hjá okkur og spilið var aðeins hægara en ég vildi sjá. Við breyttum aðeins um áherslur í seinni hálfleik og fórum að reyna að sækja aðeins meira á bak við þá en við gerðum í fyrri hálfleik og þá fannst mér leikurinn opnast aðeins okkur í vil. Annars virkilega sáttur við hvernig leikmennirnir tækluðu þennan leik og héldu þolinmæðinni í gegnum þetta. Við létum ekkert fara í taugarnar á okkur eða pirra okkur, við héldum bara skipulagi og það skilaði okkur sigri í dag. Virkilega sáttur líka með varamennina sem komu inn á, þeir áttu stóran þátt í öðru markinu hjá okkur og það er mikilvægt fyrir liðið“ Klókindi og góðar skiptingar Víkingar fengu vítaspyrnu þegar Daníel Hafsteinsson setti boltann beint yfir vörn KA þegar dómari leiksins lét boltann detta fyrir framan hann eftir að leikurinn var stopp og Steinþór Már í marki KA braut á Valdimari Þór. Það er hægt að segja að þetta séu litlu atriðin sem bestu liðin nýta sér til fullnustu með klókindum. „Maður er með fókusinn og maður er að reyna að sjá einhverja glufu í þeirra varnarleik og þeir gerðu það vel þannig að ég var bara virkilega sáttur með það.“ Elías Már Ómarsson skoraði seinna mark Víkings í dag eftir aukaspyrnu frá Helga Guðjónssyni en báðir komu þeir inn af bekknum í síðari hálfleik og má vænta að Sölvi hafi verið sáttur með skiptingarnar í dag. „Já, virkilega sáttur með það og Helgi er náttúrulega búinn að vera byrjunarliðsmaður í langan tíma og spilaði mjög stórt hlutverk fyrir okkur í fyrra, búinn að vera mjög flottur þannig að það var alveg högg fyrir hann að þurfa að setjast á bekkinn en hann sýndi bara enn og aftur hvers megnugur hann er og hann tók það bara á kassann og var tilbúinn þegar kallið kom og nýtti það vel, gerði vel.“ Eiga meira inni Fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina. Finnst þér liðið eiga marga gíra inni? „Já, verður maður ekki að segja það, að maður eigi einhverja gíra inni? En þetta er bara nýbyrjað mótið og ég er virkilega sáttur með fyrstu tvo leikina. Fyrri hálfleikurinn á móti Breiðablik, við hefðum kannski getað gert betur þar en ef við lítum á tölfræðina og hvað við erum búnir að fá á okkur mörg mörk, þá erum við búnir að vera mikið með boltann og inni á vítateig andstæðingsins þannig að þá er tölfræðin mjög okkur í vil, þannig að við erum á réttri leið og þurfum bara að halda áfram þessari þolinmæðisvinnu sem við erum búnir að þurfa að sýna í þessu tveimur leikjum og ég býst við að margir aðrir leikir í sumar verði þannig.“
Olís-deild karla KA Víkingur Reykjavík Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Enski boltinn Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport KA - KR | Hvað gerir Eiður Smári í nýju starfi fyrir norðan? Íslenski boltinn Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Fleiri fréttir ÍA - FH | Heldur sigurganga Skagamanna áfram eða nær FH vopnum á ný? Keflavík - ÍBV | Heimamenn vilja halda sér í efri hlutanum KA - KR | Hvað gerir Eiður Smári í nýju starfi fyrir norðan? Stjarnan - Þór | Nýir menn við stjórnvölinn hjá Stjörnunni Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Sjá meira