Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. apríl 2026 08:02 Á leið í sjómannamessu í Grindavík. Aðsend Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Guðbjörg Eyjólfsdóttir er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Grindavík. Guðbjörg Eyjólfsdóttir oddviti sjálfstæðismanna í Grindavík. Ég er 64 ára og er innheimtufulltrúi. Ég er gift Óskari Sævarssyni og eigum við 3 börn, 3 tengdabörn og 3 barnabörn. Ég hef unnið á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll, hjá Pósti og síma, Landsbankanum í Grindavík og unnið ýmis störf tengd sjávarútveginum eins og gengur og gerist hjá þeim sem alast upp í sjávarplássi. Ég hef mikinn áhuga á allskonar félagsmálum. Ég var formaður sóknarnefndar Grindavíkurkirkju og er í Björgunarsveitinni Þorbirni og hef verið þar í áratugi. Ég er formaður Járngerðar hagsmunasamtaka um endurreisn bæjarins. Grindavík og nágrenni hafa átt hug minn allan síðan ég var unglingur og ég þreytist ekki á að skoða hið fjölbreytta landslag sem það hefur upp á að bjóða. Ég brenn fyrir verkefinu sem er framundan sem er að taka þátt og vera í fararbroddi varðandi endurreisn og uppbyggingu Grindavíkur. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Reykholtsdal í Borgarfirði.“ Hver er uppáhalds bókin þín? „Fjarvera þín er myrkur eftir Jón Kalmann.“ Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna, þannig að við erum komin að þorlmörkum.“ Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Í verkefni tengd æskulýðs og málefnum eldri borgara, til þess að efla samfélagið.“ Með Steinunni Ásu vinkonu minni og hundinum Kæju.Aðsend Hver væri titill ævisögu þinnar? „Járngerður“ Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Hringja, það er sennilega aldurstengt.“ Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Ég er ekki viss, ég hef ekki reynt það.“ Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Hvernig bregðast eigi við náttúruhamförum og áfallaþoli samfélags sem í því lendir.“ Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Bygging nýrrar innisundlaugar.“ Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Hef aldrei notað hana.“ Á hreindýraveiðum.Aðsend Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. „Að hafa kannski ekki menntað mig meira.“ Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Það var allt best í Grindavík fyrir rýmingu, þar er verk að vinna.“ Hvað borðar þú í morgunmat? „Tebolla og tvö hrökkbrauð með osti.“ Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Rýrt upplýsingaflæði.“ Á Kaleo-tónleikum.Aðsend Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „Að hefja endurreisn í öruggum skrefum, fá fólkið heim.“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Wonderful Tonight með Eric Clapton.“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Klárlega að miðla upplýsingum til íbúa á óvissutímum.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Iron Lady vegna þess að formanni björgunarsveitarinnar fannst ég frekar ráðrík á tímabili.“ Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Að kalla íbúa að borðinu og eiga samtalið við þá og berjast eins og ljón fyrir framtíð Grindavíkur, samfélagsins og bæjarins.“
Oddvitaáskorunin Grindavík Sjálfstæðisflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Lífið Fleiri fréttir Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Sjá meira